Er allt að verða vitlaust

April 23, 2008

http://www.youtube.com/watch?v=_f0GVK6wzfQ

Vá þetta er alveg eins og versta sápuópera.  Annars velti ég því stundum fyrir mér, þurfa þessir trukkabílstjórar virkilega aldrei að vinna  ?   Allavega.  Fréttirnar í dag voru næstum því súrrealískar.  Tími til kominn að taka nú aðeins á þessum gaurum.  En þetta í dag,  þetta var nú alveg ótrúlegt.

Mold sturtað á götuna, múgurinn meizaður, fréttakona á stöð 2 meizuð, steini kastað í löggu, eggjum kastað í löggur, óeirðalögregla mætt, þyrlur, “nasistarnir” mættu ölvaður og vildu vera með osfrv….

Vantar bara skriðdreka, vatnsdælur og bensínsprengjur og þá hefði þetta verið fullkomið. 

 

Annars var þetta með nasistana sem fannst tvímælalaust einhver fyndnasta frétta sem ég hef séð lengi.

Sumir hafa örugglega ekki húmor fyrir þessu en persónulega datt ég næstum því á gólfið þegar ég sá þetta í tölvunni.  “Nasistarnir röltu um í Smáralind”  , þetta er örugglega hugmynd sem fleiri hafa fengið á Dimmisjón en engir hafa þorað að framkvæma fyrr en nú.  Svo blönduðu þeir sér síðar um daginn í mótmælin við Suðurlandsveg og fullkomnuðu þá kaosið sem var þar.  Ég meina, það er total kaos, óeirðarlögregla, slagsmál og læti og svo mætir ölvað nasistagengi í uniformi og öllu  !!!!

Annars er Keizarinn að fara til Gotlands á morgunn að bæklast, kem heim aftur á föstudaginn.  Góðar stundir.

 


Abbas mættur til leiks

April 22, 2008

Öllum er nú sleppt inn í landið.  EInhverjir klámkallar mega ekki koma hingað, mótorhjólagaurar mega ekki koma hingað, Halim Al má örugglega ekki koma hingað  EN………………..

Abbas hryðjuverkamaður er mættur,kampakátur.  Og hitti náttúrulega forsetann.  Miðað við viðskiptaáhuga forsetans þykir mér ljóst að einhver viðskipti verða rædd og hvort Ísland geti nú ekki selt þeim eitthvað. Palestínumenn gætu nú helst selt okkur skipulagsleysi og almennan æsing en af því eigum við nóg af.  Og hvað getum við þá selt þeim ?     Og hvað dettur manni þá fyrst í hug…………….

Jú, áburðarverksmiðjan í Gufunesi,   maður.  Hægt að búa til hlussusprengiefni úr góðum áburði, spyrjið bara Timothy McVeigh, Oklahomamanninn ……………..


Húsfélagsfundurinn

April 21, 2008

Keizurum er almennt ekki mikið gefið um lýðræði.  Til hvers að spyrja sauðsvartan almúgan álits á einhverju sem það hefur yfirhöfuð ekki hundsvit á, miklu betra er að treysta sínum keizara og hvað hann ákveður, síðan fylgir maður bara því.  Þægilegra líf, ekki satt.

Málið er að ég þurfti að fara á húsfélagsfund í kvöld, ótrúlegt stuð.  Þar tapaði ég í kosningum, ekki einu sinni heldur þrisvar!!!   Þvílík ósvífni, ég er enn að jafna mig og hugsa upp einhverjar hefndaraðgerðir.

Ok, ég mætti soldið seint, svona eins og svala fólkið gerir.  Hinir voru allir mættir og af mikilli ósvífni höfðu þau byrjað fundinn án þess að keizarinn væri mættur. Jæja, ég settist aftast, aftur svona eins og svala fólkið gerir.  Síðan var byrjað að þrasa, og þetta var nú bara með leiðinlegri fundum sem ég hef farið á.  Síðan var byrjað að kjósa.  Sænski sólíalisminn hafði reyndar tekið bitið úr tillögunum sem átti að kjósa um. 

Fyrst var það breiðbandið, á að leggja það í húsin eða ekki ?    Þegar var búið að ræða þetta hafði tilllagan skyndilega breyst úr af eða á , í að hvort ætti að athuga þetta betur.  Jæja, allir voru sammála um að það væri hið besta mál, einn var á móti…..

Svo var það blessaða brekkan.  Málið er að á svæðinu er algerlega ónotað “grænt svæði”.  Svo hafði skyndilega komið tilllaga frá granna mínum um að gera hól þarna svo krakkarnir gætu rennt sér á snjóþotum í brekkunni á veturna.  Hann hafði rætt þetta mál við mig fyrirfram og keizarinn hafði lagt blessun sína yfir málefnið og lofað honum stuðningi þar sem ég vissi að fótboltavöllurinn yrði aldrei kosinn.  Jæja, menn fóru nú að ræða þetta.  Öllum þótti nú hið versta mál að þetta yrði ekki rætt frekar og komið jafnvel með frekari tillögur um nýtingu svæðisins.  Í mínum huga var málið klárt.  Engar athugasemdir, hér verður brekka.  Síðan var að lokum kosið.  Allir kusu að þetta yrði nú að athuga betur og jafnvel sá sem lagði fram tillöguna kaus með því eftir nánari umhugsun, semsagt, kaus gegn eigin tillögu. 

Ekki ég.  Hér var búið að lofa stuðningi og við hann stóð ég, einn var ég á móti. 

Svo kom asnaleg hugmynd um að húsfélagið yrði hluti af stóru hverfafélagi í nágrenninu.  Hið versta mál, þótti keizaranum, hvað haldiði að ég nenni að tala við eitthvað lið sem býr í nágrenninu, mér gæti ekki verið meira sama og vil bara alls ekki nein samskipti við þetta pakk.  EN…..auðvitað voru allir sammála um að þetta væri hið prýðilegasta mál.  Semsagt, öllum nema keizaranum.

Já, eins og Benito gamli sagði einu sinni “lýðræðið er rotnandi hræ”.  Ég veit að þetta er ein uppáhalds sögulegum tilvitnunum besserwissersins og hún á vel við hér.

bæþevei, gamall kall var handtekinn í fyrradag í nágrenni við mig (þó ekki í hverfinu mínu).  Ákveðinn maður átti afmæli og því ekki að taka fram gamla Eimskipsfánann og draga hann að húni til að fagna deginum.   Eiginlega soldið súrrealískt fyndið en jafnframt sorglegt.  Í framhaldi af þessu ákvað ég að googla þetta og fann þá þetta

Úff ég veit hvað ég gef besserwisserinum næst í afmælisgjöf. 


Lag dagsins : The Queens of the Stone Age

April 20, 2008

http://youtube.com/watch?v=wsPm9jJxhHI&feature=related

Var á alveg brjálaðri vakt þar sem var alveg geðbilað að gera.  Varð þá skyndilega huxað til bloggsíðunnar og að ég þyrfti nú að fara að blogga aftur.  Og tónslistarmyndböndin, maður.  Það kom nefnilega bara eitt til greina í dag.  OK, Rammstein voru góðir en hafa ekki alveg haldið dampi. Hinsvegar er önnur hljómsveit sem ég fíla alveg í tætlur, The Queens of the Stone Age.  Frontarinn er náttúrulega alger snillingur, hann er svona “Mozart rokksins” að mínu mati.  Josh lítur kannski út eins og aðeins út í steikina en sjitturinn hvað þessi gaur semur svala og þétta tónlist. 

Og svona í einlægni, myndirðu messa við bassaleikarann í hljómsveitinni, þennan sem er nakinn að spila (hann á víst til að gera þetta á tónleikum ef hann er í þannig skapi).  Þetta er allavega ekki gaur sem myndi kjósa samfylkinguna á Íslandi, held ég.  Allavega.

Þetta lag er að mínu mati langbesta lag þessa hlussuþétta bands.  Njótið vel…….


Vinsældakosningin

April 16, 2008

Verð reyndar að passa mig á því að blogga ekki yfir mig og verða eins og stebbi á mbl-blogginu en ég bara varð að kommentera á eitt.  Málið er að WordPress-bloggið er komið með einhverja íslenska útgáfu sem er reyndar alveg óþolandi.  Einhverjir íslenskunasistar sem eru búnir að íslenska öll hugtök á tölvunni.  Hinsvegar var ég að skoða þetta nú í kvöld. 

Á wordpress-síðunni er tölfræði yfir hin ýmsu blogg.  Svo var ég að skoða listann yfir “the fastest growing blogs” og sá þar að Keizarinn er hvorki meira né minna en í 6.sæti á þeim lista.   Þar sem ég er náttúrulega hégómafullur maður þá gladdist ég alveg óskiljanlega mikið yfir þessu. 

Þetta hvetur mig til að halda áfram.  Af mörgu er að taka.  Íþróttablogg, fréttablogg, steikablogg, bókadómar, tónlistarmyndbönd, OMG ég verð að fara að fara að skipuleggja þetta………….

ps

DJurgården gerði jafntefli við Örebro í kvöld, 1-1.  Örebro svindlar og spilar á gervigrasi sem gerir knattspyrnulegum smámennum kleift að standa jafnfætis alvöru fótboltaliðum.  En gott á meðan við töpum ekki, ég og E-man þurfum að fara að redda okkur miðum á næsta leik….    Rajalakso skoraði fimmta leikinn í röð, þurfum að fara að kæla hann niður svo hann verði ekki seldur á næstunni. 


E-man fær gult spjald

April 16, 2008

Dr Leifsson var að hvetja mig til að refsa E-man fyrir dónaskapinn í síðustu færslu.  Mér þykir reyndar Dr Leifsson nokkuð djarfur með þetta þar sem þetta gæti kostað hann starfið, allavega gert honum mjög erfitt fyrir í starfi. 

Allavega.  Ég fann þessa mynd hjá Henry Burger, sem er einmitt með link hér við hliðina.  Hann er einhver skemmtilegasti bloggarinn í dag, enda blaðamaður sem hefur ekkert betra að gera en að hanga í tölvunni allan daginn.  Myndin talar fyrir sig sjálfa.  Lýsi ég þar með að E-man hefur hlotið sína refsingu og við munum leggja þetta að baki okkur…..


Bayern-sigurgangan heldur áfram………

April 12, 2008

Úff, svo mikið hefur gengið á að undanförnu.  Ég varð 25ára og voðalega upptekinn við það.  Svo upptekinn, að ég gleymdi að minnast á glæsilegan sigur Bayern á spænska smáliðinu Getafe í UEFA-cup á fimmtudaginn.  Já, þetta var svo sannarlega spennandi.  Mér fannst mjög fallegt af Bayern að leyfa spánverjunum að jafna 1-1 á lokamínútunni í Þýskalandi til að gera síðari leikinn spennandi og tryggja að leikvangurinn yrði troðfullur sem hann var að sjálfsögðu.  Leikurinn byrjaði nánast á því að einn spænskur leikmaður var rekinn af velli, sem var auðvitað sjálfsögð kurteisi fyrir það að stórlið eins og Bayern kæmi í heimsókn á litla völl spænska liðsins. 

Reyndar var þetta alveg fáránlega spennandi leikur.  Getafe komst í 1-0 og hefði unnið á þeim úrslitum hefði Franck Ribery ekki skorað á 89mín.  Í framlengingunni komust svo spánverjarnir í 3-1 og hefði það nægt flestum til sigurs nema þegar leikið er á móti þýsku liði.  Já, á seiglunni náðu Bayern að jafna með tveimur mörkum frá Luca Toni og þarmeð Bayern komið áfram.  Stuðboltinn Oliver Kahn var hálf klökkur í leikslok og sagði að þetta væri nú eitt mesta drama sem hann hefði verið með í (og hefur maðurinn verið með í nokkrum drömum).   Sjáiði bara myndina af kallinum í leikslok, hann er næstum því meira ógnvekjandi þegar hann brosir, virkar eitthvað raunverulegt……………

Hér svo í lokin er mynd af hinum ógnvekjandi forseta Bayern, Karl-Heinz Rumenigge.  Hann er hér í einhverju small-talki við Spánverja.  Ef maður myndi skipta út frakkanum hans fyrir leðurfrakka þá væri þetta fullkomnað. 


Áríðandi tilkynning

April 11, 2008

Áríðandi tilkynning!!!

Hérmeð tillkynnist að Keizarinn á 25ára afmæli í dag.  Af því tilefni verður þetta kallaður dagur keizarans í framtíðinni……….   Tekið verður á móti sjálfsögðum hamingjuóskum í kommentakerfinu


Gróðurhúsaáhrifin

April 9, 2008

Ég vil byrja á því að þakka fyrir stemninguna hér á síðunni.  Mér finnst einhvern veginn eins og maður hafi aldrei hætt. 

Þegar ég vaknaði í morgunn, þá blasti við mér hvít jörð.  Já, HVÍT JÖRÐ!!!!!!!!!!!!   Eflaust er þetta einhver hefnd umhverfisins eftir pistilinn sem ég skrifaði um umhverfisbolluna Al Gore.  Enginn þykist botna í neinu hér, allir héldu að vorið væri að koma hér og keizarinn skipti meira að segja um dekk um helgina og keyri nú um á sumardekkjunum……..    

Það pósitífa í dag var að Djurgården vann Gävle í dag á útivelli 2-1.  Erfiður útivöllur í norðrinu þannig að þetta er góður sigur.  Asare og hinn ungi Sebastian Rajakalso gerðu mörkin.  Góðar stundir. 


Stórfundur Ó.Grímssonar og Gore

April 7, 2008

Vá hvað þetta er alveg STÓRMERKILEG FRÉTT eða þannig, tveir algerlega áhrifalausir menn eru að fara að hittast og ræða saman.  Jói kuti og Siggi skítur ætla reyndar líka að hittast í kvöld í íbúð 9b í Æsufellinu, ætla að ræða saman og síðan taka einn snókerleik niðri á Snókerstofuni á Klapparstíg………….

Þetta eru reyndar sambærileg dæmi fyrir utan að Jói kuti er ekki með heila skrifstofu af fólki sem fær laun fyrir að dæla út fréttatilkynningum hvað vinnuveitandi þeirra sé merkilegur, og bæðevei, hann þekkir sko fullt af merkilegu fólki, meiraaðsegja útlendinga.

Annars, don´t get me started með þennan Gore-propaganda um umhverfismálin.  Ef fólk yfirhöfuð kynnir sér málin aðeins sjálf en treystir ekki blint á mötunina úr vinstrisinnaðri fréttamennsku getur það sjálft myndað sér skoðun á málinu.  Sem Keizarinn hefur t.d. gert.  Lesið bara bók Svíans Björns Lomborg sem heitir “cool it”.  

Síðan í lokin, herra Gore……   Þú tapaðir (í alvörunni) kosningunum árið 2000.  Það kom frétt löngu seinna um það að þá var loksins búið að telja aftur og hann virkilega tapaði.  Þegar sumir tapa þá reyna þeir að vera töff.  Aðrir fara að éta snakk, verða feitir og hafa áhyggjur af umhverfismálum……………………