Í dag leikur Bayern Munchen gegn smáliðinu Hertha Berlin. Að sjálfsögðu er Bayern löngu búið að tryggja sér titilinn í Þýskalandi þar sem önnur lið í Þýskalandi áttu ekki möguleika gegn bæverska stálinu. Leikurinn verður sögulegur ( og jafnvel tilfinningalegur) fyrir Keizarann og marga aðra þar sem þetta verður síðasti leikur Olivers Kahn. Hann er að hætta.
Hann byrjaði sinn feril í Karlsruhe 1987. Þegar hann var orðinn nógu góður þá kom hann til Bayern Munchen árið 1994 og hefur spilað þar alla sína tíð eftir þann tíma. Með Bayern hefur hann orðið Þýskur Meistari 8sinnum, bikarmeistari 6sinnum, Meistaradeildina 1x, UEFA cup 1x og Heimsmeistarakeppni félagsliða 1x. Einnig var hann kosinn kynþokkafyllsti knattspyrnumaður Evrópu 3x og er handhafi Tony Schumachersverðlaunanna sem “sá markvörður sem fyllir flesta hræðslu” .
Það hafa skipst á skin og skúrir á ferlinum eins og gerist og gengur og eins og alltaf með yfirburðamenn þá man fólk mest eftir mistökunum. Kahn lék t.d. frábærlega á HM 2002 og kom nánast einsamall frekar slöku þýsku landsliði alla leið í úrslitin á mótinu en fékk hinsvegar á sig klaufalegt mark í úrslitaleiknum sem auðvitað öll smámennin muna frekar eftir.
Allavega. Ég og Dr Leifsson fórum einu sinni á Allianz, heimavöll Bayern, sem er flottasti fótboltavöllur heimsins. Þar sá maður hve mikillar virðingar Kahn naut þegar hann kom út á völlinn til að hita upp og nánast allur völlurinn reis úr sætum sínum til að votta virðingu sína.
Svo maður vitni óbeint í hinn kolruglaða keisara, Neró, sem reyndar er dauður núna. “Heimurinn missir mikinn listamann, (þegar Kahn hættir).
Mig langar að slútta þessu með smávegis myndaseríu af ferlinum.
Eftir klippinguna hjá samkynhneigða hárgreiðslumanninum, hárgreiðslan kallaðist “austurþýski morðinginn”

Oliver beitir “Schumacher-tækni” við úthlaup

Oliver á góðri stundu. Gaman að hafa verið gaurinn sem sat við hliðina á honum í rútunni á leiðinni heim….

Leikmaður örvinglast yfir snilldinni og reynir að kyssa Kahn fyrir að vera svona góður maður…………

Já, en Jens, þótt þú sért ekki eins góður og ég, þá ertu samt næstbesti markmaðurinn í heimi…………
Góðar stundir.