Stundum verður maður alveg gáttaður á fótboltanum. Maður horfir á leik og þetta er úrslitaleikur EM. Svo þarf maður að horfa upp á algeran dómaraskandal. Jú, kannski var hann ekki að draga taum Spánverjanna viljandi en gæti maður auðmjúklegast beðið um að það sé settur dómari á leikinn sem ræður við svona verkefni.
Vítaspyrnan í fyrri hálfleiknum var eins augljós og albinói í myrkruðum bíósal. Og nota bene, hann er með útrétta hendi og spilar knettinum með hendinni. En það er allt í lagi þar sem ´Spánverjarnir eru svo æðislegir. Og svo þegar Silva skallar Podolski, hvað var það eiginlega???? Þessi dómari ætti allavega ekki að fara til Dresden án lögreglufylgdar.
Allavega. Allur heimurinn hlýtur að vera í sæluvímu, því að “Spánverjarnir spila svo skemmtilegan bolta”. Uss, Keizarinn var sko ekki var við þennan léttleikandi bolta. Bara þrusað fram á oflaunaða slánann með unglingabólurnar sem reynir eins og hægt er að detta nógu fljótt svo hann fái aukaspyrnu. Svo fengu þeir að tefja endalaust, voru sívælandi allan leikinn en sjálfir alveg ferlega grófir.
Svo , til að summa þetta upp, þá ætlar Keizarinn að sýna heiminum stóra fuglinn að hætti þokkagyðjunnar Liz Hurley. Þeir geta tekið það til sín sem halda með einhverjum hommalegum landsliðum eins og Portúgal og Spáni.
Og svona í lokin, spænsk rauðvín eru ódrekkandi………………………
Systir mín og Mr Hö eru í heimsókn þessa dagana. Bröllum margt skemmtilegt. Við Hö rákumst í dag á spænska knattspyrnumenn sem voru að ræða leikinn við Þjóðverjana á morgunn. Hö náði vídeóupptöku af fundinum. Þvílíkar kellingar maður…
Þið verðið að afsaka en Keizarinn er nefnilega í fríi þessa dagana. Þá slekkur maður á heilanum og er einhvernveginn ekki eins á tánum. Vegna þessa er bloggið soldið lamað og Keizarinn nennir helst að blogga um EM. Ætlunin var nú ekki að þetta yrði eitthvað fótboltablogg þannig að ég bið lesendur velvirðingar á þessu en þessu verður úr bætt bráðlega.
Annað. Nú er fyrir höndum stórleikur, “baráttan um Evrópu” eins og sumir kalla þetta. Annarsvegar er það hið sigursæla lið Þjóðverja, sem er af öllum þeim sem hafa eitthvað vit á fótbolta, langbesta lið heimsins í dag. Mótherjar þeirra verða Spánverjar. Þeir hafa einhvernveginn grísað sig inn í úrslitaleikinn á fáránlegri heppni og af enn meiri heppni hefur þjálfarinn þeirra ekki enn fengið heilablóðfall á hliðarlínunni.
Illa innrættir menn hafa stundum vænt Keizarann um að vera hallur undir (og búa til sjálfur) samsæriskenningar um hitt og þetta. Mig er reyndar farið að gruna að þetta mót sé eitt stórt samsæri. Ég held að það hafi verið haldinn leynifundur hjá UEFA um að Spánn eigi að vinna þetta mót þegar ljóst var hverjir leika saman í úrslitunum. Lítum á nokkrar mjög grunsamlegar staðreyndir……
- Árið 1984 fóru Frakkar að grenja þegar þeir töpuðu fyrir Þjóðverjum í vítaspyrnukeppni. Patric Battistone meiddist lítillega þegar hann fór alltof harkalega í samstuð við Tony Shumacher, markvörð Þjóðverjanna. Hver var mikill vinur Battiston? Jú, það er nefnilega Michel Platini, sem fór að hágrenja eftir leikinn. Hann er forseti UEFA núna og gæti riggað þessu….
-Strax eftir undanúrslitaleikina kom skoðanakönnun í sænska sjónvarpinu sem sýndi að 80% vildu að Spánn yrði meistari, ekki Þýskaland. Greinilega plantað til að undirbúa jarðveginn…..
-Einkennislag EM 2008 er sungið af Enrique Iglesias. Hmmm, Spánverji ekki satt???
Allavega. Þetta verður ágætur leikur. Vonandi ekki spennandi þar sem Þjóðverjarnir munu valta yfir Spánverjana. Við skulum bara vona að þetta verði sigur fótboltans þrátt fyrir Platini og félagar muni reyna allt til að það verði ekki úrslitin. Ég vona bara að Spánverjarnir grenji ekki mjög mikið svo fleiri vellir í Sviss og Austurríki eyðileggist ekki vegna rigningar og bleytu.
Besserwisserinn er væntanlegur í heimsókn bráðlega og þá verður hægt að fagna sigrinum með þýskum bjór og bratwurst á pallinum. Jæja, meira síðar.
Var að horfa á leikinn í kvöld. Sennilega einhver lélegasti leikur Þjóðverjanna í keppninni. Tyrkirnir höfðu reyndar allt að vinna. Allir farnir að vorkenna þeim af því að þeir voru ekki með nóg af kælispreyi í töskunni sinni svo öllum var orðið illt í fótunum. Þar að auki setti markmaðurinn þeirra heimsmet í heimsku með þessu rauða spjaldi sem hann fékk á lokamínútum unnins leiks og í verðlaun fékk hann 2ja leikja bann.
Keizarinn sýnir þessu reyndar lítinn skilning. Menn leika 11 á móti 11 á vellinum og þeir geta sjálfum sér um kennt fyrir það að einhverjir voru í banni í þessum leik.
Mér fannst leikurinn ekki góður af Þjóðverjanna hálfu. Lehmann átti afleitan, já afleitan dag. Hann átti allavega einhverja sök á báðum mörkunum. Maður fann svo að eftir herfilega byrjun hans fór óöryggi að smitast út í vörnina. Löw valdi að spila með 2djúpa miðjumenn, nokkuð sem sýnir hve ótrúlega mikilvægur maður Torsten Frings er. Mér fannst Ballack daufur og hann náði aldrei að setja neinn hraða í spilið. Schweinsteiger og Podolski voru nokkuð liprir, reyndar fannst mér Schweinsteiger þreytast í síðari hálfleik.
Allavega. Sigur er sigur. Reyndar olli gífurlegri reiði í Keizarahöllinni þegar útsendingin rofnaði þegar einhver tyrki hjó í sundur stóru snúruna á vellinum í Basel til að umheimurinn myndi ekki sjá tyrknesku niðurlæginguna. Nú skulum við vonast eftir góðum leik á morgunn, helst mjög spennandi leik sem verður svo jafn að hann fer í framlengingu og vító, svo allir verði nú þreyttir í úrslitaleiknum………………..
Já, þetta var skemmtilegur leikur í gær. Þýska aflvélin var ógnvekjandi. Svæðisvörn dauðans, mikill hreyfanleiki á liðinu þegar andstæðingarnir voru með boltann og gríðaleg pressa allan tímann. Mér fannst þessi sigur aldrei í hættu og gat notið ítalskra rauðvína, afslappaður yfir þessum leik.
Núna sannast sem Keizarinn var búinn að halda fram. Portúgalirnir voru ekki nógu “harðir” til að fara lengra í keppninni. Þetta er ekki keppni í hver er sætastur, hver getur tekið tilhlaup að aukaspyrnu með sem mestum stælum eða hver getur haldið boltanum lengst á lofti. Málið er bara að vinna leikina. Þetta er ekkert kjaftæði um “megi betra liðið vinna”, það eru bara lúserar sem segja það. Málið er “megi rétt lið vinna, sama hvernig það er gert.
Allt þýska liðið fær 5typpi fyrir leikinn. Meira að segja Lehmann var bara nokkuð öruggur með sig. Spennandi leikur í kvöld, en það hlýtur að vera frekar niðurdrepandi fyrir liðin í kvöld að vita að þú kannski vinnur í kvöld en svo kemstu pottþétt ekki lengra. En þú gætir kannski fengið að skipta á peysu við Ballack!!
Úff, dagurinn á morgunn verður rosalegur. Málið er að vínklúbbur Keizarans heldur “fund” á morgunn. Keizarinn var nefnilega laumulega búinn að stinga upp á fimmtudeginum þar sem ég hélt að það væri ekkert leikið á morgunn og þannig myndi maður ekki missa af neinu.
EN, svo komst ég að því að Þýskaland-Portúgal er á morgunn. Ég hafði samband við Gunna zækó, hann varð náttúrulega brjálaður yfir þessu en ákvað á endanum að maður megi horfa á leikinn.
Þannig að þá get ég bæði notið ítalskra rauðvína sem Gunni zækó og Dr Leifsson hafa valið, og dáðst að enn einum sigri Þýska Stórveldisins. Það munu örugglega allir innst inni verða fegnir að losna við þessa sólbrúnu gelstráka út úr mótinu og þeir munu þá væntanlega geta einbeitt sér því í sumar að liggja á ströndinni, drekka Breezer og lesa kellingablöð. Fótbolti er nefnilega fyrir alvöru karlmenn.
Vona bara að Portúgalarnir skilji nú eitthvað af hárgelinu eftir heima og taki í staðinn með sér nóg af tissjúi, þeir munu þurfa á því að halda þegar hálft liðið fer að grenja inn í klefa.
Svo skulum við bara að vona að þetta verði enginn dómaraskandall og Þjóðverjarnir geti spilað sinn leifturbolta í friði fyrir einhverjum ruddalegum tæklingum eins og í síðasta leik.
Djöfulsins aumingjar eru allir orðnir á skerinu, það er allt að verða vitlaust yfir þessum ísbirni. Og nú má auðvitað ekki drepa dýrið. Dýraverndunarsamtök komin í málið, Björgólfur Thor vill kosta “björgunina” og það er meira að segja farið að vakta dýrið , sennilega til að því leiðist nú örugglega ekki.
Hvað kemur næst, á ekki bara að bjóða því í rauðvín og osta, gætum fengið svo umhverfishommana í Sigurrós til að væla eitthvað fyrir dýrið og svo gæti Dorrit prjónað peysu svo því verði ekki kalt!!
Menn eru jafnvel farnir að velta fyrir sér forsetaframboði í næstu kosningum. Voðalegur aumingjaskapur er þetta. Ég legg til að helstu feministar landsins að ógleymdum Árna Finnssyni verði falið að nálgast dýrið, bjóða það velkomið og athuga hversu “hættulaust” svona bjarndýr er.
Skjóta þennan ófögnuð strax. Það er gömul og karlmennleg hefð á Íslandi að þegar ísbirnir ganga á land þá eru þau skotin. Þetta er bara lögmál Darwins í hnotskurn. Kill or be killed.
Nei, það er greinilegt að ísbirnirnir huga á innrás hér, sendu einn njósnara hér um daginn og svo kemur annar núna. Best að klára málið áður en hann nær að koma einhverjum upplýsingum um okkur til hinna ísbjarnanna sem eru á risastóra ísjakanum með utanborðsmótornum………..
Menn ættu að fara að íhuga það að við sem gerum sem mest grín að hinum tilfinningaríku könum erum stundum farin að taka þeim fram. Legg svo til að feldurinn verði sendur til Keizarans, hann myndi sæma sér vel sem svona motta á pallinum mínum………………..
Jæja, ég má nú til með að monta mig aðeins á þessum merkisdegi. Nú er pallurinn og hinn risavaxni skjólveggur tilbúinn. Málið er að garðurinn minn er beint á móti leikvelli sem er því miður aðeins og vinsæll í hverfinu ( og áður hefur verið fjallað um hér á síðunni ). Ég og E-man erum búnir að vera að dunda okkur við þetta í jú, soldinn tíma en málið er að gera þetta vel.
Skjólveggurinn varð í stærra lagi hefur nánast vakið skelfingu íbúanna í nágrenninu. Ég kalla hann “muren” eða Múrinn á íslensku. Þetta er svona veggur með attitúd sem segir “fuck off ” við þá sem horfa á hann….
Allavega. Hér koma myndir af verkinu…………
Svona leit þetta einu sinni út, hálf glatað eða þannig…………..
Kynþokkafullur og massaður vinnumaður á pallinum. Greinilegt að einhver hefur verið að rífa í járnin eins og Gillzenegger segir.
Svona lítur þetta út í dag. Fallegt, ekki sagt.
Svona Hús og Híbýlismynd til að sína “innsýnina af pallinum”
Hérna er “muren”. Þú messar sko ekkert við þennan vegg. Karlmannlegur veggur, finnst mér.
Helvítis, helvítis, já, hún dóttir mín lærði sko alveg fullt af nýjum orðum í kvöld þegar Keizarinn horfði á leik Þýskalands og Króatíu. Mikið eru nú Króatarnir alveg hrikalega leiðinlegt lið. OK, verð að viðurkenna að þeir spiluðu vel , en hvað er málið með allar þessar dýfingar ?
Þeir spila nefnilega alveg ótrúlega óheiðarlega sjálfir og það er gömul og góð regla í fótboltanum að ef þú sparkar mikið í fólk, þá tekurðu spörk sjálfur með jafnaðargeði. Og spjaldið hjá Schweinsteiger, hann varla kemur við manninn. Þvílíkur aumingjaskapur.
Og eitt enn, hvað er málið með að merkja teig sem þjálfararnir fá að halda sig inní ef fautinn hann Bilic fær svo að valsa nánast inná völlinn þegar honum sýnist. Hvað er fjórði dómarinn eiginlega að gera ?
Annars lítið við þessu að segja. Vorkenni aðallega Austurríki varðandi næsta leik. Spái því að mótstaðan verði álíka mikil og árið 1939………………