Já rosalega er ég orðinn þreyttur á þessu Ronaldomáli. Cristiano Ronaldo er orðinn álíka oft í fréttum og Lindsay Lohan og Britney Spears samanlagt. Og það verður að segjast eins og er, að það er eiginlega miklu skemmtilegra að skoða fréttirnar um þær þar sem yfirleitt eru myndir af þeim með.
Ég hef ákveðið að kryfja þetta mál í botninn. Hér duga engin vettlingatök, eins og Nietsche myndi hafa sagt. Lítum aðeins yfir málið.
Cristiano Ronaldo hefur, verð ég að játa, komið Keizaranum á óvart. Framfarir hans hafa verið mjög hraðar og ég get tekið undir það að hann er einn af bestu leikmönnum heims. Hann er að vissulega að leika í erfiðri deild þar sem varnarmenn gefa honum engin grið þannig að hann er vissulega að leika undir mikilli pressu allan tímann. Hann virðist einnig hafa náð að þróa sinn leik úr því það að vera kantmaður sem sífellt dettur og er fljótur yfir í það að vera leikstjórnandi sóknarleiks. Hann er fljótur, útsjónarsamur og jú, dettur sífellt.
Hugtak sem hefur komið fram á síðustu árum og nefnist “fótboltagreind” virðist hinsvegar eiga mjög vel við hann. Þetta hugtak nær yfir menn sem hafa yfir þeirri færni að ráða að vera með ólíkindum greindir á fótboltavelli en þeim mun heimskari utan vallar. Þetta hugtak hefur t.d. verið notað um menn eins og Jamie Garracher og Gary Neville. Ronaldo er á góðri leið inn í þann gáfnalausaklúbb manna sem tala í frösum.
Hvað er málið? Jú, hann er með samning við Man Utd. Gildir í nokkur ár í viðbót. Engin sérstök uppsagnarákvæði eru í samningnum utan þessi venjulegu fyrir atvinnumenn í knattspyrnu þykist ég vita. En…. enn á ný fer heilastarfssemi Ronaldos að flækjast fyrir honum, ólíkt inni á fótboltavellinum. Ef mig minnir rétt þá var hann með álíka stæla fyrir síðasta HM, “kannski sný ég aftur til Englands”, “það væri gaman að spila á Spáni” osfrv.
18.desember 2007 segir Ronaldo að “það væri gaman að spila einhvern tímann á Spáni, það er draumur minn” . 4.jan 2008 segja enskir fjölmiðlar að Real Madrid hafi lagt fram tilboð í Ronaldo sem hafi verið hafnað. Sama mánuð var haft eftir mömmu Ronaldos að það sé draumur hennar að fá að sjá son hennar leika fyrir Real Madrid, þá myndi hún deyja hamingjusöm. Ég reyndar leyfi mér að efast um að miðaldra kellingar í Portúgal hafi yfirhöfuð mikið vit á fótbolta. Á þessum tímapunkti er alveg greinilegt að Real Madrid eru bunir að kontakta Ronaldo “sub rosa” og hann er að reyna að snúa vindunum sér í hag til að losna frá Man Utd, örugglega fjarstýrt af PR mönnum Real.
Svo í maí birtist þetta undarlega viðtal við drenginn þar sem hann lýsti því yfir hve erfitt það væri að búa í Manchester, það rigndi svo mikið osfrv. Það er meira að segja svo erfitt að búa í Manchester að þegar upp komst um svallpartý hans og nokkra félaga, endurtekið, heima hjá Ronaldo, þar sem ekki var pöntuð ein, heldur fjórar, fimm vændiskonur, þá þurfti að panta þær frá fylgdarþjónustu í Leeds. Eins og allir vita eru konur frá Leeds með þeim fallegri í veröldinni…….
Svo kom úrslitaleikurinn í CL. Þá var Ronaldo athyglissjúki mættur á ný. Hann segir í viðtali að hann viti að Real fíli hans leikstíl, það gildi einnig um aðra klúbba á Spáni. Klikkir út með því að segja að “við sjáum svo hvað gerist eftir úrslitaleikinn”…. Í viðtali strax eftir úrslitaleikinn sannar Ronaldo regluna um fótboltagreindina, kemur í viðtal og segir að “hann muni alltaf leika með Man Utd, þetta sé hamingjusamasti dagur lífs hans osfrv………..
Svo fer EM að nálgast. Þá fara hlutirnir að gerast……….
Þá gerðist ýmislegt. Ronaldo sagði í viðtali að “hann vildi verða leikmaður Real Madrid”. Skv spænskum fjölmiðlum á þessum tima var búið að semja við hann um kaup og kjör en það strandaði á Man Utd. Svo fór hann víst að hóta verkfalli en Man sagði á móti að þeir myndu þá bara frysta hann……… Þetta endaði svo með því að hannsagðist ekki myndu ekki ræða þetta frekar fyrr en eftir EM. Á svipuðum tíma kærði Man Utd Real Madrid fyrir áreitni en FIFA vísaði málinu frá.
Eftir EM kom Ronaldo með yfirlýsingu ársins. Ég þarf að fara í viðræður við Man UTD og sjá hvað þeir hafa að bjóða en ég veit ekki hvað ég mun spila á næsta ári. Vá, hefði ég orðið fúll ef ég væri Alex Ferguson. Þetta er samningsbundinn leikmaður sem vill nú fara aftur í samningaviðræður um hvort hann eigi að halda áfram að spila fyrir vinnuveitanda sem hann hefur skrifað undir samning við áður að hann muni spila nokkur ár í viðbót á þessum stað. Maður nánast sér fyrir sér Ferguson, heima í betri stofunni, hlammar sér niður í hægindastólinn rekandi upp alveg risastórt “ÚFF” og teygja sig svo í viskíflöskuna hristandi hausinn yfir þessu unga fólki.
Á þessum tíma fór allt í gang. Man Utd sakaði Scolari um að hafa reynt að hafa áhrif á leikmanninn um að fara frá Man Utd, systir Ronaldos segir í viðtali að Real Madrid reyni mikið að hafa áhrif á bróður sinn um að fara að leika með þeim, Ramon Calderon forseti Real segir að Ronaldo vilji koma til þeirra en það sé erfitt vegna samningsins við Man Utd.
Eitthvað undarlegasta útspilið kom svo frá forseta FIFA, Sepp Blatter, þar sem hann hreinlega hvetur Man Utd til að fría Ronaldo frá samningnum af því að hann vilji spila með Real. Sama dag er hann svo gerður að heiðurfélaga Real. Alex Ferguson fær sér einn gráan og segir svo í fjölmiðlum að menn barasta skrifi undir samning eftir samningaviðræður og þær viðræður séu frjálsar og menn séu nú ekkert með byssu að gagnauganu undir formerkjunum “I´ll make you an offer you can´t refuse”.
Svo kemur það fyndnasta.
Kærasta Ronaldos blandast inní málið og þá er ég ekki að eiga við kærustur hans í fylgdarþjónustunni í Leeds. Sögur segja að hún vilji að hann spili áfram í Man Utd af því að hún var víst einu sinni með Sergio Ramos og vilji þess vegna ekki flytja þangað vegna þess að þá verði Ramos fúll. Á svipuðum tíma kemur hinn virti Fabio Cannavaro fram og segir Ronaldo að hann eigi nú bara að virða sinn samning. Nota bene, leikmaður og fyriliði Real Madrid vill ekki fá hann til sín…..
Inn í þetta spilar að Carlos Queiroz þjálfari er að hætta hjá Man Utd. Hann er náttúrulega Portúgali eins og Ronaldo og hefur lengi verið talað um að hann sé svona föðurímynd Ronaldos. Allavega voru fræg ummælin hjá Ruud van Nistelroy um árið, þegar þeim lenti heiftarlega saman á æfingu, honum og Ronaldo að hann “gæti nú bara farið grenjandi og klagað í pabba” , og átti þá við Queiroz.
Kærastan fékk svo að sigla sinn sjó nýverið, mamma Ronaldos sem fílar Real Madrid, fílaði semsagt ekki hana. Reyndar kom þetta ekki Keizaranum á óvart þar sem þekkt er að laumusamkynhneigðir menn eiga oft “kærustur” af og til til að halda andlitinu. Þær nenna hinsvegar ekki svona feluleik til lengdar svo oft verða þetta stutt sambönd…….
Svo fer Ronaldo í aðgerð eftir EM. Eftir aðgerðina verður hann frá fram í október, ekki í 6vikur eins og áður var talið. Einhver færasti ortoped heims, Dr van Dijk gerði aðgerðina. Þess má geta svona í forbifarten að Keizarinn hefur einmitt notið þess heiðurs að hafa hitt kallinn. Hann hefur líka opererað van Basten. Þetta átti að vera rútinuaðgerð en eftir aðgerðina kom í ljós að hann verður lengur frá en áætlað var.
Já þetta er sko orðin ein allsherjar sápuópera og farið að snúast um allt annað en fótbolta.
Nú vantar bara dramatík eins og að kærasta Ronaldos hafi smitað hann af HIV, einhver þarf helst að deyja svo það sé barátta um arfinn, og eru Ramos og Ronaldo í raun tvíburar sem voru aðskildir við fæðingu? Og svo sprengjan : Er Franco herforingi (yfirlýstur Real Madrid maður)hinn raunverulegi faðir Ronaldos?? ….
Og þá hvað gerist í framhaldinu……….
Hvernig verður reksturinn hjá fylgdarþjónustunni í Leeds ef Ronaldo flyst frá Englandi?
Hvar spilar Ronaldo á næsta tímabili ?
Er Sepp Blatter alger steik?
Fær Ferguson stroke yfir þessu og hvernig er staðan á vískískápnum hans þessa dagana?
Allavega. Smá yfirlit. Vona að lesendur séu eitthvað fróðari. Yfir og út.