Óheppni sölumaðurinn

September 30, 2008

Um helgina borðaði ég alveg ágætis Entrecote sem ég grillaði ásamt E-man.  Alltaf öruggt að grilla með E-man þar sem hann passar uppá mann og veitir ráðgjöf eftir þörfum. 

Drukkum alveg ágætis rauðvín með sem hét Infinitus, svona blanda af Cabernet Sauvignon og Tempranillo.  Ágætis kaup þar til að ég komst að því að þeir settu alltof lítið af rauðvíni í kassann.  Alveg óþolandi þegar þessir grallarar í Systembolaget gera manni svona grikk en svona er bara lífið.

Hinsvegar gerðist ansi skemmtilegt atvik snemma þetta kvöld.  Bjallan hringdi og Keizarinn opnaði með þjósti.  Þar var ungur maður sem kynnti sig og var hinn kurteisasti.  Hann kvaðst vera að selja eitthvað drasl sem ég sýndi nú lítinn áhuga.  Svo fór hann að segja að bekkurinn hans í skólanum væri nefnilega að safna fyrir ferð.  Nú, já, hvaða ferð?  spurði Keizarinn.  Nú, þetta er ferð til Þýskalands svona til minningar um helförina……….    Vá, talandi um að banka uppá í röngu húsi.  Hann fékk að sjálfsögðu hurðina á nefið og verður væntanlega aðeins flatnefjaðri fyrir vikið en það lagast örugglega þegar hann fær að fara í vinnubúðirnar.  

Þetta minnir mig reyndar á einhvern mest politically incorrect brandara sem ég hef heyrt og ég heyrði upphaflega hjá Besserwissernum. 

“I lost my grandfather at Auswitch”

“He was laughing so hard that he fell out of his watch-tower”

Jæja, fyrirgefið fyrirfram en þetta bara varð að koma.


Kúrsinn góði

September 29, 2008

Jæja þetta var alveg ágætur kúrs. Hann var haldinn á alveg helvíti flottu hóteli í botni skerjagarðsins. 

Félagi minn var á bíl og bauðst til að keyra.  Keizaranum fannst það afbragðs hugmynd þar sem hann myndi sleppa við að þurfa að pæla í því hvar þetta væri.  Svo var ég sóttur á eldgamalli Saab (svona deathtrap) og var ég látinn vera á kortunum og finna rétta leið.  Römbuðum að lokum á hótelið.

Annars var þetta alveg ágætt.  Gott að borða, sæmilegt vín og alltaf gaman að leika sér við að bora og saga. Keizarinn var að sjálfsögðu bæði besti sagarinn á svæðinu og líka sá myndarlegasti.  Hinsvegar var ég ekki kosinn sá vinsælasti þar sem ég tróðst miskunnarlaust framfyrir aðra þegar maður átti að prófa nýjar græjur.  Það myndi Nietsche kalla “drottnunarsiðferðið” eða jafnvel minn “vilja til valds”.

Á eftirmiðdögunum var svo tekin gufan að sænskum sið (þ.e. engin sundskýla).  Alltaf hressandi í sænskri gufu og ég hreinlega skil ekki hversvegna maður þarf alltaf að vera svona mikið klæddur í íslenskum gufuböðum.  Mæli allavega með þessu fyrir alla sem vilja prófa.


Frí fram á föstudag…

September 23, 2008

Keizarinn er að fara á kúrs í Sódómunni, Stokkhólmi.  Kemur aftur á föstudaginn.  Hafið það gott þangað til……………


Greyið Saviola

September 23, 2008

Ég bara varð að setja þetta inn.  Þetta er í Meistaradeildarleik Real Madrid.  Javier Saviola er að hita upp.  Varamennirnir ákveða á einhvern ótrúlega nasty hátt að plata hann í að það eigi að fara að skipta honum inná og kalla hann að bekknum.  Hann fer að klæða sig úr en þá kannast þjálfarinn sko ekkert við þetta.  Alveg ógleymanlegt að fylgjast með þessu.

Og svona fyrir ykkur sem vorkennið honum og finnst þetta vera bögg, gleymum því ekki að þessir gaurar eru með laun sem við hin munum aldrei hafa, svo það er bara gaman að geta hlegið að þessum gaurum af og til…………………..


Ástandið í Pakistan

September 22, 2008

 Þetta er orðið óþolandi ástandið þarna núorðið og eflaust vitum við almennir borgarar minnst um hvað gengur á.  Sprengjutilræðið í Islamabad við Marriott hótelið er greinilega beint gegn útlendingum þarna og hefur það að markmiði að sýna að Al-Quaida eru fyr og flamme og stöðugt að styrkjast.  Einnig eru einhverjar sögusagnir um að æðstu menn Pakistans hafi ætlað að hittast þarna um kvöldið. 

Ástandið í Pakistan er orðið verulegt áhyggjuefni.  Ofsatrúarmenn vaða þarna uppi og allir vita að Talibanar hafast við þarna í fjallahéruðunum og skreppa yfir svona til að drepa nokkra villutrúarmenn.  Skv fréttum virðast Bandaríkjamenn vera orðnir þreyttir á þessu og hafa aukið hörku sína í árásum sínum undanfarið.  T.d. segja fréttir að 20manna Navy Seals menn hafi farið inn í Pakistan um daginn og drepið einhverja 100 skæruliða í einhverju þorpi.  Pakistanarnir urðu auðvitað brjálaðir en ef þú getur ekki farið út með ruslið sjálfur þá verður einhver annar að gera það fyrir þig.  Keizarinn styður þessa auknu hörku.  Svo er W að fara að hætta eftir 4mánuði og þessvegna telja menn komna aukna hörku í að finna Osama, hversu kúl yrði nú að ná honum loksins.  Held reyndar að hann muni Hitlera þetta ef til þess kemur, þ.e. ekki láta taka sig á lífi.   

Það er reyndar skoðun mín að Bandaríkin eiga að fara út úr Írak, þeir geta haldið áfram að drepa hvor aðra þar og það mun aldrei neinn stöðugleiki komast á þar hvort eð er.  Hinsvegar þarf að trappa upp hörkuna í Afganistan, þar er vandamálið upprunið…..

Sjáið annars myndbandið af sprengjuárásinni.  Þetta er víst tekið með myndavél hótelsins.  Það sem vekur furðu mína eru viðbrögð varðanna.  Hvað gerir maður þegar maður er vörður í Pakistan og maður keyrir trukk inn á lóðina þína.  Ég hefði tekið vélbyssu og tæmt hana í farþegarýmið undireins.  Viðbrögð varðanna eru eins og þeir ætli að fara að tala við bílstjórann og biðja hann að færa bílinn.  Þvílík vinnubrögð………….


Lag dagsins – L7 – Shitlist

September 22, 2008

Þetta er sko tussurokk af bestu gerð.  Alltaf þótt vænt um þetta lag sem var reyndar í Soundtrackinu af hinni ömurlegu mynd smámennisins Olivers Stone,  Natural Born Killers.  Alveg hrikalega ofmetin mynd hjá einhverjum ofmetnasta leikstjóra samtímans.  Hann er svo sannarlega á hinum Keizaralega Shitlist eftir Nixon-myndin sem hann reyndar hafði ekki einu sinni manndóm í að gera fyrr en Nixon kallinn var dauður. 

Þetta var nú smávegis útúrdúr.  L7 stelpurnar eru krónískt reiðar og vei þeim sem notar vitlausa línu á þær á barnum.  Þetta eru svona “ef þér finnst mér ekki sæt, þá lemjum við vinkonurnar þig í klessu” stelpur og ber að umgangast með varúð.  Ég yrði allavega skíthræddur við þær.


Skandall í Munchen

September 21, 2008

Þvílíkur skandall í gær.  Bayern Munchen – Werder Bremen 2-5.   Ekki bara eitt stærsta tap Bayern á heimavelli í áratugi heldur er þetta í FYRSTA SKIPTI sem Bayern tapar heimaleik á meðan Októberfest stendur yfir.  Og til að kóróna niðurlæginguna þá komust Werder Bremen í 5-0. 

Góðu fréttirnar eru að Franck Ribery er nánast orðinn leikfær og verður væntanlega með í næsta leik.  Geri nú ekki ráð fyrir því að Klinsmann sé í góðum málum.  Við efasemdarmennirnir ákváðum að taka honum opnum huga en nú fer manni að verða nóg boðið.  Og höfum í huga að Keizarinn er forgiving í samanburði við Skuggaráðið, Rummenigge, Beckenbauer og Höness.  Allavega var haft eftir Rummenigge um daginn að Klinsmann hefði fengið nokkuð frjálsar hendur og gert miklar breytingar í klúbbnum.  Og ef breytingarnar skila ekki árangri þá eru þetta bara breytingar, breytinganna vegna.  Skilar það einhverju ???

Allavega.  Jürgen, farðu nú að skila árangri, það eru margir enn óþolinmóðari menn en Keizarinn sem eru farnir að anda niður hálsmálið á þér, vinur.


Smávegis glens og kyndingar á kantinum……

September 20, 2008

Stundum er best að tjá sig með myndum.  Keizarinn er meðvitaður um það að hann hefur tendens til að fjalla mikið um fótbolta hér , hættan er að þetta verði einskonar fótboltablogg en það er ekki ætlunin.  Hinsvegar fann ég eitt alveg ótrúlega fyndið á spjallsíðu Tottenham-aðdáenda og lýsir það vel tilfinningum okkar til Manchester United þessa dagana.  Svona þar sem stórleikur er í Englandi á morgunn ákvað ég að fljóta með myndasögunni  :

Dagur í lífi Ferguson

Þetta Ronaldomál er alveg að fara með mig, best að fá sér einn sterkan…………..

Drykkurinn rífur vel í og þá er best að fara að bora í nefið.  Bið að heilsa uppí heila !!!

Úff, ég þoldi þetta betur þegar ég var yngri.  Verð samt að passa mig að drepast ekki hérna svo ég sólbrenni ekki…………. Ætla svo að fara að planera hvernig ég næ að stela fleiri Tottenhamleikmönnum til mín

Síðar sama kvöld…….say no more


Selfoss, örlagadagur í 1.deildinni

September 20, 2008

Félagi minn er stressaður í dag.  Þekki einn gaur frá Selfossi.  Hann slapp á einhvern ótrúlegan hátt við FMbyltinguna sem varð þarna á sínum tíma.  Hann er ekki með tribal-tattú, gengur allavega sjaldan í hvítum hlírabol og hefur aldrei, mér vitanlega aflitað á sér hárið.  Þetta er hann E-man, stundum kallaður Eizenegger á góðum degi. 

Ástæðan fyrir því að ég sendi honum kveðjur í dag er að lokaumferðin í 1.deildinni á Íslandi verður leikin í dag.  Á einhvern hátt sem engum hefur tekist að skilja, mjólkurþambararnir frá Selfossi verið að leika eins og englar í sumar og skorað eins og vændiskonur á móti mótherjum sínum.  Hinsvegar misstigu þeir sig um daginn þannig að horfurnar eru minni á að þeir komist upp í úrvalsdeildina. 

Í dag leikur Selfoss við útlendingana frá Vestmannaeyjum, sem þegar eru komnir upp.  Keizarinn gæti skrifað heila bók um skoðanir sínar á Vestmannaeyjum en látum það liggja á milli hluta.  Staðan er einföld.  Selfoss þarf að vinna sinn leik gegn litlu eyjunni og Stjarnan verður að tapa stigi á móti Haukum.  Auðvitað getur allt gerst í fótboltanum, og undanfarið hafa meiraaðsegja smálið eins og Fjölnir og HK komist upp í úrvalsdeildina svo allt getur gerst.  

Sendi allavega Scooter kveðjur á Selfoss með þessu lagi sem ég veit ALLIR Selfyssingar myndu fíla……..


Meistaradeildin – riðill H

September 18, 2008

Real Madrid  -  Bate Borisov  -  Juventus  -  Zenith

Real Madrid mun gera allt til að fara langt í keppninni þetta árið.  Síðustu ár hafa verið mögur í Meistaradeildinni og lifa þeir aðallega á fornri frægð, allavega í Evrópukeppninni.  Auðvitað er Real Madrid hroðalega vel mannað lið.  Þeir misstu reyndar af Portúgölsku grenjuskjóðunni og ég held að það hafi truflað liðið talsvert.  En lítið bara á uppstillinguna.  Casillas í markinu.  Bakverðirnir Heinze og Ramos, Canavaro og Pepe hafsentar.  Van den Waart og Robben á sitt hvorum vængnum, Guti og Raul, van Nistelroy frammi í sníkinu frammi.  Jú, þetta er gott lið og held að þeir fari uppúr riðlinum, sérstaklega þar sem Spánverjar hafa losnað við evrópsku minnimáttarkenndina útaf asnalega EM sigrinum í sumar.  Samt ekki sannfærður um að þeir fari alla leið.

Bate Borisov er frá Hvíta-Rússlandi.  Þarf að segja meira.  Leiðinda ferðalög fyrir hin liðin en þetta lið hefur ekkert í þennan riðil að gera, ekkert.

Juventus eru mættir aftur á gamlar slóðir eftir fjarveru vegna spillingarmálsins fræga.  Þeir náðu að halda nokkrum kempum allan þennan tíma eins og Buffon, Del Piero og Nedved.  Keizarinn er mjög spenntur fyrir hvernig Juve verður þetta árið.  Þeir hafa bætt við sig nokkrum athyglisverðum mönnum eins og Dananum Poulsen og svo náttúrulega skógarhöggsmanninum Olov Mellberg.  Juventus hefur alltaf verið “naglalið” og fer langt á hörkunni.   Ég spái þeim allavega að þeir fari áfram í riðlinum. 

Zenith frá Rússlandi er náttúrulega spútnikliðið í Evrópu og liðið sem allir eru með bóner yfir, aðallega þar sem enginn veit rassgat um þá.  Þeir unnu UEFA keppnina í fyrra eftir að hafa unnið Bayern Munchen 4-0 á heimavelli.  Ég minni á það að Pétursborg er höfuðborg rússnesku mafíunnar, þeir sem vinna þá á heimavelli hætta á það að “sleep with the fishes”.  Allavega.  Zenith er auðvitað með frábært lið og þeir náðu að halda Arshavin eftir mikið drama í sumar.  Ég held hinsvegar að þeir gætu ekki hafa verið óheppnari með riðil.  Eftir mikla baráttu held ég að þeir muni ekki hafa Juventus eða Real og sitja þannig eftir í þriðja sæti. 

Juventus og Real fara áfram, Bate vita ekki hvort þeir eru að koma eða fara og Zenith fara í UEFAkeppnina og vinna hana kannski…………..