Helvítið hann Hö. Ekki nóg með að hann hafi barnað litlu systur mína heldur klukkaði hann mig. Mér skilst að það að “klukka” sé eitthvað svona “rosalega sniðugt” sem bloggarar gera sín á milli til að hafa eitthvað um að tala.
Allavega. Ég sat heima í gærkvöldi. Þreyttur eftir daginn. Reyndar alveg óvenju þreyttur og pirraður. Svo þreyttur að ég fór út í búð og keypti mér nammi. Keizarinn fyrirlítur nefnilega svona mannlegar kenndir eins og að vera svangur eða að þurfa sofa mikið. Ég var sko flottur í nammirekkanum og keypti alveg risastóran blandípoka sem ég svo hellti í skál. Svo sat ég og horfði á sjónvarpið og úðaði í mig namminu, svona eins og feitu stelpurnar gera á kvöldin eftir taugaveiklaðan dag í vinnunni. Svo fer ég á netið og viti menn, sé að ég hafi verið klukkaður. Jæja, lítið við þessu að gera. Hérna koma svörin…….
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina ?
Blaðburðardrengur. Já, ég bar út sorpritið DV í nokkra mánuði og náði svo loksins mogganum. Ágætt í sjálfu sér en mér fannst rukkið leiðinlegt. Þetta var nefnilega fyrir daga Vísa. Óþolandi pakkið sem var ekki heima og maður varð að sitja um. Þá var ég líka ungur og kunni ekki að handrukka. Ég gæti það núna.
næturvörður. Þetta er eitthvað besta starf sem ég hef verið í. Var í þessu með náminu og átti þannig alltaf pening. Mætti ekkert í skólann heldur en las þeim mun meira. Fór í reglubundnar skoðunarferðir og var alltaf að vonast til að landa í einhverju actioni en það varð aldrei neitt. Því miður, því að eins og ég æfði á þeim tíma hefði gaurinn verið algerlega stappaður í mauk. Jafnvel bara látinn hverfa í svartann ruslapoka á snyrtilegan hátt. Á milli þess að ég fór í þessar mikilvægu skoðunarferðir horfði ég á tónlistarmyndbönd á MTV. Varð sjálflærður sérfræðingur í þeim á þessum tíma.
sendill. Já, ég vann í Iðnaðarbankanum í gamla daga. Fór með mikilvæg bréf til m.a. Stjórnarráðsins, Seðlabankans ofl. Mikilvægur maður.
hjúkka- Já, ég var einu sinni hjúkka. Get ekki neitað því. Skeindi hinsvegar aldrei. Og ég var sko ekki heldur hjúkka sem þú gast grátið á öxlinni á. Ó nei.
Fjórar íslenskar bíómyndir sem ég held uppá
Veggfóður – Já ég verð að viðurkenna það að ég fíla þessa mynd. Ætlaði að segja Sódóma en hana fíla jú allir. Þá var ég líka með sítt hár og fannst Balti vera flottur.
Hrafninn flýgur – Einfaldlega snilld. Kaldur íslenskur raunveruleiki, svona endurspeglun á þjóðarsál Íslendinga eins og hún á að vera. Harðir, kaldir naglar. Svo kom auðvitað bandaríska herstöðin og allir byrjuðu að éta Coco Puffs og fóru að verða linir kanawannabes. Þessi mynd er cult í Svíþjóð, allir elska hana. Helgi Skúlason heitinn á náttúrulega stórleik í þessarri mynd. Hann er frændi minn. Sú yfirlýsing hefur oft komið sér vel á mannamótum í Svíþjóð.
Blossi- Þetta er alveg dásamlega hræðileg mynd sem Júlíus Kemp gerði einhverntímann. Átti að vera svona “Íslensk Road Movie”. Hún er svo illa leikinn að hún verður einhvernvegin vel leikin. Inga Dungal á einhvern versta leik Íslandssögunnar og línumaðurinn og fyrrverandi kókaínfíkillinn Finnur Jóhannsson leikur handrukkara. Einhvernveginn fékk maður á tilfinninguna að hann væri nú bara að leika sjálfan sig. Skora á besserwisserinn að kíkja á þessa mynd, ef hann fílaði Foxtrott, þá kemur hann til með að elska þessa
Leyndarmál Skýrslumálastofnunar – Fyrsta íslenska klámmyndin. Keizarinn myndi reyndar frekar flokka hana sem svona soft-core, þetta sem var sýnt á Sýn í gamla daga.
Fjórir staðir sem ég hef búið á
Vesturbærinn
Kringlan
Hafnarfjörður
Västerås
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum
London – sökkar feitt, allavega núna
Munchen – fór þangað með Dr Leifssyni og fór á Bayernleik. Uppgötvaði líka Paulanerbjór. Góð ferð.
Poznan í Póllandi - mjög grá borg og skrýtin lykt þar.
Kýpur
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar
Keizarinn er maður með einfaldan smekk. Horfi reyndar á nokkra þætti sem ég ætla ekki að viðurkenna hér, en þetta hérna eru þættir sem ég hef horft á í gegnum árin.
X-Files
Baywatch
Charmed
Law and Order. Þá er ég ekki að meina þessa sissí konuþætti, þ.e. special victim unit, heldur alvöru stöffið. Ótrúlega oft endursýndir á nóttunni, þá eru þeir einhvernveginn bestir
Fjórar síður sem ég skoða daglega
mbl.is – hvað er raunverulega í fréttum
visir.is – sorasögur og kjaftasögur sem koma ekki í mbl.is
aftonbladet.se
fotbolti.net
Fernt matarkyns sem ég held uppá
gráðostur – Stundum þegar ég er svangur þá sker ég mér sneið af gráðosti og borða. Svona eins og kökusneið.
hamborgarar – alltaf viðeigandi. Alltaf.
Lasagna með gráðosti – enn betra daginn eftir, upphitað
Hangikjöt – trikkið er að borða það hratt svo maður sé búinn að skófla í sig nógu miklu áður en manni verður illt í maganum…..
Fjórar bækur/blöð sem ég held uppá/les oft
Keizarinn er maður sem les því miður ekki oft bækur sem fjalla um annað en fagið. Þannig er það ef maður vill ekki eyða tímanum í vitleysu. Hinsvegar get ég nefnt 4bækur sem ég hef lesið nýlega
Konspiracy – sænsk bók um samsæriskenningar almennt.
Islamistar/Naívistar.
How to make love like a pornstar – Jenna J
Biblían
Fjórir staðir sem ég vildi vera á núna
í japönsku dojo á kyrrlátum stað á Okinawaeyjaklasanum að upplifa zenmóment
Spilandi með Böl Mannkyns, öskrandi yfir 100þús trítilóðan skrýl í Berlín á útitónleikum
Í Downingsstreet, kominn með Darling undir handarkrikann og berjandi hann endurtekið með snusdós í hausinn og læt hann öskra ” I´m terrible sorry, herr Kaizer”
Nakinn í góðu gufubaði að “basta” hinn keizaralega kropp. Verður að vera vel heitt svo maður svitni vel.
Fjórir bloggarar sem ég á að klukka
Tek ekki þátt í svoleiðis vitleysu.
Góðar stundir.