Áramótaannáll Keizarans

December 31, 2008

Jæja, mér datt í hug að koma með hugleiðingar Keizarans um árið sem er að líða. Þetta var að mörgu leyti mjög sérkennilegt ár, þetta var ár hamfaranna. Það gerðust ýmsir sorglegir atburðir eins og náttúruhamfarir, bankakreppan og það að Mariah Carey gifti sig.
Mér datt í hug að rifja upp svona það sem mér dettur í hug varðandi árið. Annars var þetta enn eitt ár Keizarans. Enn einn sigurinn. Lítum á nokkur atriði.

Persónulegir hlutir
Litla systir Keizarans stóð í stórræðum á árinu og reyndi sitt ýtrasta til að skyggja á Keizarann. Mr Hö barnaði hana, svo eignuðust þau barnið og í lok ársins bæði giftu þau sig og skírðu barnið sitt.
E-Man gifti sig í sumar og hélt “heitusta” partý sem borg óttans hafði upplifað í mörg ár. Hún var reyndar haldin á Seltjarnarnesi en það telst nú eiginlega inni í borg óttans…

Keizarinn og konan fóru til Íslands í heimsókn, svo var farið í ýmis ferðalög innanlands, t.d. náði Keizarinn að lifa af tjaldútilegu með henni. Snákarnir létu á sér standa en hinsvegar mátti ekki tæpara standa þegar vatnsrennibrautin var annars vegar. Svo byggði Keizarinn forláta pall og vegg sem nágrannarnir dýrka og dá, sem og Keizarinn sjálfur.

Ýmsir góðir gestir komu.  Þess má reyndar geta að meðal þeirra sem komu í heimsókn var sjálfur Besserwisserinn.  Hann stóðst sænska bjórprófið með miklum ágætum en harðneitaði að prófa snus, meira að segja þegar langt var liðið á nóttina og áfengismagnið farið að stíga. 

Svo má ekki gleyma að Keizarinn fór til Halmstad, tók þar sænska sérfræðingsprófið með glans, kíkti á gluggana hjá Per Gessle og náði svo bílnum upp í 145 á hraðbrautinni á leiðinni heim.

Innlent
Íslendingar komust að því að það voru ekki til neinir peningar, bara fullt af ímynduðum peningum, annars eintóm leiðindi

Erlent
Obama var kosinn forseti í USA við mikinn fögnuð allra mannvina. Við skulum svo sjá til hversu ánægt fólk verður með hann þegar hann byrjar þar sem hann er ekki þessi marxisti sem margir halda.

Rússar tróðu Georgíuher ofan í svarta ruslapoka, minnti soldið á litla hundinn sem geltir og geltir á stóra hundinn þangað til stóri hundurinn nennir þessu ekki lengur og gengur frá þeim litla

Ísrael þjarmaði að Gaza eins og venjulega .

Fótbolti
Spánverjar urðu Evrópumeistarar eftir ruddalegan leik við Þjóðverja, þar sem Spánverjar komust upp með óþarfa ruddaskap sem gerði það að verkum að þeir unnu, með stórri hjálp dómarans.

Meistaradeildin var óvenju léleg í ár, einhver 2ensk lið léku til úrslita og nennti Keizarinn ekki einu sinni að horfa á leikinn.

Annað merkilegt í íþróttunum að mati Keizarans er að Tottenham vann loksins titil, reyndar ómerkilegasta titilinn í ensku en titill samt. Að auki vann KR titil, urðu bikarmeistarar.

Ólympíuleikarnir voru svo haldnir í Kina og þar stendur að sjálfsögðu upp úr silfurverðlaun Dorritar, nei afsakið, íslenska landsliðsins í handbolta og gullverðlaun Ó Ragnars og Dorrits í athyglissýki.

Jæja, þetta var smávegis upprifjun mín á árinu. Eflaust gleymi ég fullt af atriðum og ef menn hafa yfir einhverju sáru að kvarta, legg ég til að þeir taki það frekar upp við sálfræðinginn sinn í næsta tíma í stað þess að kvarta í kommentakerfinu.

Keizarinn þakkar hinum harða hóp lesenda sinna kærlega fyrir árið. Hann mun halda áfram bloggi sínu áfram á næsta ári.


Steven Gerrard afhjúpaður sem stelpa…

December 30, 2008

Iss, alltaf vissi ég að Steven Gerrard væri stelpa.  En maður hélt kannski að hann væri ekki svona mikil stelpa.  Þangað til að ég las þetta

Kommon, ég fílaði ekki einu sinni Phil Collins þegar ég var 10ára.  Ég hélt að eina fólkið sem fílaði Phil Collins væru miðaldra, taugaveiklaðar kellingar sem hringja svo í útvarp Sögu þegar þær eru orðnar drukknar. 

Svo segi ég bara, gangi þér vel í sturtunni þegar þú verður kominn í grjótið, það verða örugglega einhverjir Everton-menn þarna sem þurfa líka að þvo sér………..

En, ef hann hann verður dæmdur í svona samfélagsþjónustu (sem er nú oft með þetta fræga fólk) þá fyndist mér viðeigandi að hann og þessir slagsmálahundavinir hans verði dæmdir í það að leita uppi Phil og brjóta alla trommukjuðana hans og allar upptökugræjurnar hans, svo hann geti ekki gefið frá sér nýtt efni, aldrei.


Keizarinn er orðinn mágur Mr Hö…..

December 28, 2008

 

Í dag er stór dagur.  Má til með að deila með ykkur að í dag gifti litla systir mín sig Mr Hö.  Eiginmaður og Eiginkona.  Gott mál.  Athöfnin fór víst vel fram er mér sagt.  Enda ekki við öðru að búast þar sem til stóð að skíra litlu dóttur þeirra nokkrum mínútum eftir hjónavígsluna.  Það hefði verið soldið erfitt að hætta við á altarinu og byrja svo á skírninni.   

Þá verð ég víst að hætta að kalla hann “vin” hennar Önnu, eða “gaurinn sem barnaði litlu systur mína”.    Og Keizarinn er alltí einu orðinn mágur hans. 

Svo skírðu þau litlu dótturina í leiðinni og fékk hún nafnið Stefanía.  Ég er ánægður með nafnið og það að þau fóru sína eigin leið, ekki verið að velja einhver fjölskyldunöfn.   Þau hringdu í mig strax eftir athöfnina, á leiðinni í djammveislu dauðans, til að láta Keizarann sinn vita.  Hafi þau þakkir fyrir.

Keizarinn óskar brúðhjónunum innilega til hamingju með ráðahaginn og því að hætta að lifa í synd (common, ógift og með barn!! ).  Og litlu frænku óska ég til hamingju með að vera ekki lengur heiðingi.   Njótið dagsins.


Hesturinn í Gävle

December 27, 2008

Gävle heitir bær sem er aðeins norðan við mig.  Þetta er svona harður, skrýtinn íshokkíbær og miðbærinn myndi sóma sér vel í hvaða Austur-þýsku borg sem er. 

Þeir eiga reyndar eina fjandi fyndna hefð.  Frá árinu 1966 hefur verið settur upp svokallaður “halmbocke”.  Þetta er svona hestur sem er gerður úr hálmi og voðaleg tradition í Svíþjóð.  Hinsvegar hafa æringjarnir í Gävle ákveðið að hafa sinn alveg rosalega stórann, 13m á hæð.  

Keizarinn hefur meiraaðsegja heiðrað halmbocken með nærveru sinni eftir að hafa verið vísað frá á veitingastað þar sem hann ætlaði að snæða á.  Jú, ég veit, alveg ótrúlegt, en svona er þetta skrýtinn staður. 

Allavega.  Það sem er fyndið við þetta er að það er einhver hefð þarna að kveikja í þessum hesti.  Frá því 1966 þegar hesturinn var fyrst settur upp, hefur verið kveikt í honum 22sinnum, aðeins 2x hefur verið upplýst hver hefur verið að verki.   Þannig hefur skapast svona bæjaríþrótt, hver verði fyrstur að kveikja í hestinum. 

Hesturinn hefur logað þrátt fyrir öfluga gæslu, eldvarnarefni spreyjað á hann og meira að segja hefur verið kveikt í honum í brjálaðri rigningu.   Fyndnasta við þetta er að fyrir nokkrum árum var það bandarískur túristi sem kveikti í honum og hélt að það væri “einhver svona tradition”.  Hann setti bara kveikjarann upp að einum fætinum á miðjum degi, beint fyrir framan einhverjar barnafjölskyldur og kveikti í.   Engu munaði víst að hann yrði “lynchaður” á staðnum.   Í fyrra gerðist það undraverk að hesturinn lifði af allan tímann framyfir áramót. 

Ástæða pistilsins er að í nótt tók sig einhver til og kveikti í hestinum.  Í gær var víst gerð tilraun en þá sviðnaði bara einn fóturinn.   Húrra fyrir sænskum jólahefðum……


Lítil frænka

December 9, 2008

Úff, blogghlé.  Annars synd þar sem mikið hefur verið í gangi að undanförnu.  En stærstu fréttirnar eru þær að í gær átti systir Keizarans litla stúlku.  Mér skilst að öllum heilsist vel. 

Keizarinn sendir öllum hlutaðeigandi hamingjuóskir.