Þar sem ég nýt þess til fullnustu að búa í útlöndum þessa dagana þá hefur maður fylgst með fjarlægð með þessari þróun mála heima. Stundum hefur Keizarinn haft á orði við konuna að “þetta sé orðin ein allsherjar sápuópera heima” . Þá gengur Keizarinn um gólf og heldur monologa um ástandið og analyserar ástandið í drasl. Gruna reyndar stundum að hún sé ekki einu sinni að hlusta á mig og segir mér meira að segja stundum að ég tuði eins og gamall kall.
En það sorglega er að þetta er því miður rétt. Þetta er sko sápuópera, en ekki með svölu fólki eins og JR og gráhærða gaurnum úr Dynasty. Nei, þarna finnast lúðar eins og Björgvin Joð, Þorvaldur Gylfa og krullupinninn Egill Helga. Þorvaldur Gylfa virðist vera sá sem allir elska enda er hann svona klár. Enda hagfræðingur. Þeir eru einmitt svo klárir.
Ein spurning ? Hvar voru sko allir þessir kláru hagfræðingar til að hjálpa okkur fyrir einu ári síðan??? Nei, Þorvaldur Gylfa er svona menntaður gaur sem er svo mikill nörd að hann getur ekki einu sinni náð sér í kellingu. Ég bara spyr, treystir maður gaur sem getur ekki einu sinni náð sér í kellingu??
Allir eru sammála um að þetta er hræðilegt ástand og allir eru sammála um að þessu þurfi að breyta. Það þarf að gera eitthvað. Bara eitthvað. Það þarf nýtt fólk, bara eitthvað nýtt fólk. Vandamálið er að á Íslandi búa 300þús sálir. Allir þekkja alla. Allir eru að einhverju leyti flæktir inn í þetta mál.
Málið er ósköp einfalt. Það er búið að yfiranalysera vandamálin svo mikið undanfarið vegna þess að það er offramboð af fjölmiðlamönnum á Íslandi sem þurfa að sýna framá að þeir eru í vinnu.
Hægri stjórnin á Íslandi gefur markaðinn soldið frjálsan. Íslendingar taka allan pakkann, reyna að gera hluti á 10árum sem aðrir myndu gera á 30árum. Fólk komst að því að það var hægt að græða pening. Ekki pening sem þú safnar þér upp á 30árum, heldur 30mín. Og ef þú varst sæmilega klár þá vildir þú auðvitað vera með. Auðvitað. Valdið spillir kannski, en það að sjá fyrir sér ríkidæmi spillir meira. Ok, þannig að hver vill vera í einhverju leiðinlegu eftirliti ? Það er svona álíka eins og strákar sem eru að spila fótbolta og einhver þarf að vera dómarinn. Svo í eftirlitið fóru gaurar sem voru ekki eins klárir og hinir. Og hver hlustar á einhverja leiðindagaura sem þér finnst bara vera hálfgerðir aumingjar ?
Svo leggurðu ekkert fyrir. Í staðinn fyrir að auka við fjármagn fyrirtækisins þíns og vera sáttur ferðu að kaupa í öðrum fyrirtækjum. Hin fyrirtækin fara að kaupa í þínu fyrirtæki. Svo kemur fjármálakreppan og allt hrinur þar sem eftirlitið var ekkert og öll fyrirtækin eru að einhverju leyti samtengt. Það er ekki bara að eitt fyrirtæki hrynji heldur hrynja þau öll saman.
Jú, auðvitað er málið flóknara en þetta , en svona er þetta samt í hnotskurn.
Svo er Steingrímur Joð orðinn sá stjórnmálamaður sem nýtur mests trausts. Kommon, hann er búinn að vera á Alþingi síðan 1983, þá var hann síðhærður blakspilari. Það er svo langt síðan. Pælið í því, hann var á móti lögleyðingu bjórsins. Hann vill koma stjórninni frá en hefur engar lausnir sjálfur. Nema að afþakka lánið frá IMF. Við eigum semsagt að fara að flytja út jurtaseyði og stofna sprotafyrirtæki, hvað sem það nú er.
Ingibjörg Sólrún bíður nú fram Jóhönnu. Hversu flott er það að vera með Jóhönnu sem forsætisráðherra? Er fólki virkilega alvara? Talar varla ensku, skilur ekki hugtakið vexti og er basically bara svona kona með handtösku sem virkar bitur eftir skilnað þar sem kallinn náði sér í miklu flottari kellingu. Ég get svo svarið það að ef hún myndi koma inn á skrifstofuna mína þá myndi ég rétta henni ruslafötuna og spyrja hvort ég eigi að fara fram svo hún verði fljótari að skúra.
Og Ingibjörg Sólrún? Ég verð að segja það að mér fannst frekar ósmekklegt af henni, nýkomin af sjúkrahúsi, að kenna landsfundarfrestuninni um þetta alltsaman. Hún veit alveg að í vikunni tilkynnti Geir um veikindi sín. Samfylkingin kann nefnilega ekki að vera við völd, held ég. Ingibjörg er svona stjórnmálaskæruliði sem þrífst á því að rífast og vera á móti. Hún er einfaldlega óvön að ráða og þurfa jafnvel að mæta einhverjum á miðri leið. Þessar samningaviðræður Sjálfstæðisflokks og Samfylkingarinnar fannst mér alla tíð lykta af, ”ef þið samþykkið ekki þetta, þá erum við hætt” . Veit allavega að ég myndi sko ekki nenna að tala við þannig fólk. Fyrir utan það að Keizarinn vill auðvitað ráða öllu. Menn eiga að hlýða Keizaranum.
Svo er loksins grísinn að sýna sitt rétta andlit. Hann ræður. Gott ef hann skilur ekki bara stjórnarskrána betur en Jón Sigurðsson og Sigurður Líndal samanlagt. Allt í einu skildi fólk að það er í raun ekkert ráðherravald eða þingvald, bara forsetavald. Er fólk að gera grín ? Maður les um að hann setji “ákveðin mál sem skilyrði í stjórnarmyndunarviðræðum”. Og það er undir honum komið hvort hann samþykki lausn stjórnarinnar eða ekki.
Til að fyrirbyggja allan misskilning þá er Keizarinn síður en svo að verja Sjálfstæðisflokkinn. Auðvitað hefur hann verið í stjórn undanfarið. Auðvitað ber hann ábyrgð. En málið er að ALLIR bera ábyrgð sem hafa að einhverju leyti verið viðloðandi stjórnkerfið á undanförnum árum. Svo hefur Sjálfstæðisflokkurinn breyst svo mikið á undanförnum árum að Keizarinn á ekki lengur samleið með honum. Það er langt síðan.
Nei, fréttirnar í dag sýna að Keizarinn er best geymdur í útlegð. Mér líður eins og alvöru Keizarafjölskyldum (fyrrverandi) sem búa í París og bölva stjórnarfarinu í landi sínu. Það er sko ágætt að búa hér núna. Ég vona bara að Íslendingar fari nú ekki að taka upp á einhverjum svona gloríum eins og að ganga í ESB. Evran kemur ekki strax, og viltu virkilega ganga í samtök sem bannar þér að vinna eins og þú vilt og banna þér að kaupa snus ??’ Ég bara spyr.
Að lokum. Þetta var ferlega leiðinlegur stjórnmálapistill. Látum hann verða þann síðasta frá Keizaranum. Ætla að fara blogga um aðra hluti.