Ég held að Rússaskrattinn ætti nú að fara að reyna að halda trantinum á sér saman. Tek undir með öðrum á blogginu um það að menn hafa nú lent í þrælkunarbúðum fyrir önnur eins ummæli.
Persónulega er ég hrifinn af Pavluychenko og finnst hann eiga mikið inni. Hann ætti hinsvegar að láta svona ummæli eiga sig. Ég man nú í sumar áður en hann var keyptur, þá lét hann hafa eftir sér að hann gæti nú alveg hugsað sér að spila með Chelsea. Jæja svo var hann keyptur þannig að maður fyrirgaf þetta bull. Svo kom hann með einhver óskiljanleg ummæli um að það væri leiðinlegt að búa í Englandi þar sem konurnar væru svo ljótar og maturinn óætur. Ekki var nú hægt að áfellast piltinn fyrir þetta komment. Kvenfólk í Bretlandi með eindæmum ljótt (fyrir kannski utan Elisabeth Hurley, All Saints og þessar þarna í Atomic Kitten ). Svo hefur Keizarinn sjálfur borðað á svona alenskum veitingastað sem sérhæfði sig í enskum mat, og voru það 2klst af lífi mínu sem ég aldrei fæ aftur til baka.
Og svo er það nú bara þannig að EF hann yrði einhverntímann seldur til Man Utd, þá yrði hann nú bara fljótlega keyptur til baka. Tottenham virðist nú á tímum ekki geta selt leikmenn án þess að þeir séu svo keyptur til baka innan nokkurra mánaða. Reyndar verður eyðnisjúki homminn sem býr með kærastanum sínum á suðurströnd Englands aldrei keyptur til baka en einhvernveginn kæmi manni það ekki á óvart.
Bíðið við, hef ég misst af einhverju ? Erum við hætt að verða sjálfstæð þjóð, þó við séum í kreppu ? Hver ákvað að við skildum sjálfviljug verða eins og eitthvað hérað í Noregi ?
Norskur seðlabankastjóri sem á víst að vera alveg rosalega klár. Vinstrisinnuðu lattebloggararnir eru auðvitað komnir á fullt og þetta er auðvitað svo rosalega sniðugt af því að “Norðmenn hafa vit á peningum”. Þó að þú hafir nóg af peningum þá þarftu ekkert endilega að hafa mikið vit á þeim. Það eru nefnilega ekki allir svo heppnir að hafa einhverja olíudrullu í landinu sínu sem mokar inn peningum án þess að þú þurfir að gera neitt.
Svo er Stoltenberg mættur til hans og þeir halda saman blaðamannafund Á NORSKU. Þar var mér nóg boðið. Þið eruð ekki í Noregi, allavega ekki ennþá formlega. Er hægt að móðga okkur meira ?
Getið þið ímyndað ykkur hvað þeim hlýtur að finnast þetta gaman ? Geta aðstoðað litla bæklaða frændann að ýta hjólastólnum sem hann situr í og sagt smábændunum fáfróðu hvernig eigi nú að gera hlutina. Stoltenberg hlýtur að finnast hann vera í himnaríki núna.
Nei, Norðmenn eru hrokafull þjóð. Þeir hafa aldrei komið vel fram við okkur og það sem meira er, þeir koma aldrei fram við okkur sem jafningja. Og svo áttu aldrei að biðja Norðmann að gera eitthvað sem Svíi getur gert……………munið að Norðmenn eru steikur sem líta út eins og t.d. John Arne Riise
Jæja, fyrri leikjum 16liða úrslitanna í Meistaradeildinni er lokið. Keizarinn náði reyndar bara að horfa á einn leik í mýflugumynd, þ.e. leik Lyon og Barcelona sem var nú bara nokkuð góður. Hinsvegar er það greinilegt að Bayern er að sjálfsögðu með langsterkasta liðið í keppninni, þrátt fyrir að vera með þjálfara sem er alls ekki harður.
Lítum aðeins á leiki umferðarinnar. Sporting Lissabon – Bayern Munchen 0-5Já, talið endilega eins og þið viljið um þessi litlu lið eins og Liverpool, Man Utd og fleiri minni spámenn en Bayern er lið sem ekki hefur verið mikið í umræðunni að þessu sinni. Svo hreinlega jarðar Bayern andstæðinginn á sínum heimavelli. Þetta er svona eins og að í staðinn fyrir að skriðtækla andstæðinginn þá er í staðinn grafin hola í völlinn, leikmaðurinn settur ofaní og svo mokað yfir og sett einhver falleg blóm ofaná. Massimo Oddo og Philipp Lahm ógnandi í bakverðinum, Demichelis (uppáhalds Bayernleikmaður Dr Leifssonar)og Lucio í miðverðinum. Ze Roberto og van Bommell á miðjunni að stjórna umferðinni og svo kemur sóknarmaskínan sem ekkert grín er að leika á móti, Franck Ribery vinstramegin og Schweinsteiger hægramegin og með þá Luca Toni og Miroslav Klose frammi.
Úff, ég ætlaði að tala um hina leikina en fattaði svo skyndilega að þess þarf ekki. Þeir skipta ekki máli úr þessu. Held að þetta verði ár Bayern. Nema þá Platini svindli eitthvað. Hann hefur gert það áður.
Ísland er nánast gjaldþrota. ESB ákvað að láta okkur róa svo restin yrði sæmileg. Neituðu að hjálpa okkur og svo vorum við neyddir á svínslegan hátt til að borga Bretunum skaðabætur. Og svo til að kóróna allt þá vilja fullt af fólki ganga til liðs við kvalara okkar í ESB. Gaurana sem afgreiddu okkur sem svona collateral damage í efnahagskreppunni. Hálfvitar.
En á erfiðistímum koma oft hetjurnar fram. Þá reynir á karakterinn, sumir koðna niður en aðrir stíga upp. Ég get varla lýst því hvað ég var feginn þegar ég las það að Sirrý ætli í framboð. Auðvitað. Telja sig allir virkilega eiga erindi á þing? Við hverju á maður að búast næst, kannski Þorgeir Ástvaldsson bjóði sig fram líka ?
Enn ein mussukellingin frá Samfylkingunni. Og getur náttúrulega talað út í eitt. Hún getur ekki skilið vandamálin, enda bara einhverjar leiðinlegar tölur í skýrslum sem eru ekki einu sinni með myndum. En hún getur talað út í eitt. Vildi gjarnan sjá hana og Björgvin Sigurðsson fyrrv viðskiptamálaráðherra byrja samtal. Það samtal yrði langt. Bæði myndu geta spurt og svarað í sömu setningunni.
Og auðvitað er hún rödd fólksins. Hún hefur sko tekið alveg fullt af viðtölum við fólk sem hefur lent í erfiðum skilnuðum, átt barn sem er spilafíkill og jafnvel lent í alkohólisma. Held að jafnvel fitubollan Heimir Karlsson hafi meira innsæi þegar hann tekur viðtöl heldur en þessi treggáfaða 101kelling sem heldur að hún skilji heiminn eftir nokkra árganga af Cosmopolitan og Sex and the City.
Þurfum við einhverja kvenkyns útgáfu af Agli Helgasyni á þing? Það er ekki nóg að hafa hangið í 101, drukkið latté með einhverjum fjölmiðlamönnum og velt fyrir sér einhverju duldu heimspekilegu stefi í nýjasta leikritinu sem Þjóðleikhúsið er að setja upp. Það er ekki þessi lífsreynsla sem við erum að leita að.
Annars sé ég hana fyrir mér sem formann einhverrar nefndarinnar á alþingi.
“Jæja, við erum öll reið svona inní okkur útaf þessu máli”.
“Nú skulum við reyna að slappa af og djúpanda í 2mínútur”.
“Þú, þarna varaformaður, hvernig líður þér yfir þessu vandamáli”?
“Hvað finnst þér um tilfinningar þínar?
“Ég er ekki reið yfir því sem þú sagðir, heldur hvernig þú sagðir það”………..
Nei, þegar sjónvarpsþulur eru hættar að vera sætar þá eiga þær bara að eignast kall og flytjast í eitthað úthverfið en hætta að pína okkur hina með nærveru sinni. Það er best þannig.
Jæja. Keizarinn biðst velvirðingar á bloggleysinu. Hef verið álíka vel stemmdur undanfarið eins og flottu verðbréfasalarnir og fasteignasalar á Íslandi eru núna ( öskrandi “veistu ekki hver ég var ???” ) á djamminu, ekki alveg eins flottir og þeir voru fyrir 1ári síðan.
Hinsvegar hef ég haft ýmislegt að gera. Vinna og svoleiðis, en það er náttúrulega engin afsökun. Það sem hefur reyndar tekið mestan tímann er bók sem ég er að vinna að. Já, Keizarinn er að vinna að bók!!!
E-man fékk nefnilega alveg fáránlega góða hugmynd sem ég greip á lofti og er að vinna að fyrstu bók Keizarans sem mun heita “Listin að vera harður – leiðbeiningabók Keizarans”
Ég held að það sé alveg massaður markaður fyrir svona bók. Margir sem vilja vera harðir en kunna það ekki. Þetta er spurning um rétta tímasetningu á frösum og almenna kennslu í því að vera harður. Þarna verður fjallað um hvernig maður á að bregðast við ákveðnum situationum og svona almennt hvernig maður geti verið harður í hvaða aðstæðum sem er. Bæði svona alvöru harður og svo fyrir aumingjana, hvernig eigi að ÞYKJAST vera harður. Ekki spurning um að þetta verður metsölubók.
Hö gaf út bók í fyrra sem ég hef spurt hann laumulega útí hvernig hann gerði svo ef hann hjálpar mér ekki, nú, þá einfaldlega handleggsbrýt ég hann . Hann er nú einu sinni grafískur hönnuður og svo barnaði hann náttúrulega systur mína. Ég býst reyndar ekki við að vera boðið á Bessastaði við útgáfu bókarinnar eins og Mr Hö. Held að hann þori því ekki. Ég á ýmislegt vantalað við þann mann og kellinguna hans þannig að best er að þau haldi sig fjarri þessu. Þrátt fyrir að hann muni sko örugglega kaupa bókina mína til að reyna að læra nokkra punkta, því að hann er sko alls ekki nógu harður.
Ég hef haft það barasta nokkuð gott undanfarið. Fór í góða ferð til Íslands þar sem ég fékk loksins að hitta nýjasta meðlim fjölskyldunnar, hana Stefaníu. Þetta er náttúrulega gull af barni og undi sér vel í faðmi Keizarans. Átti frábæra kvöldstund með hinum dularfulla Hö, Önnu, Stefaníu og svo auðvitað föður mínum. Verst hvað maður var stutt á skerinu í þetta skiptið.
Nú svo fór ég í fimmtugsafmæli tengdó sem var auðvitað veisla dauðans, þrátt fyrir að vera haldin í Haukaheimilinu. Þar var reyndar Jón Karl Haukamaður mættur sem ég bloggaði um , en hann var eitthvað hræddur við mig svo ég náði ekki að þjarma að honum almennilega.
Hef hugsað mér að skrifa smávegis ferðasögu bráðlega um ævintýri mín á Íslandi. Pistillinn kemur fljótlega.
Svo komst ég að því hverju þetta bloggleysi er að kenna. Nú, auðvitað fjandans Facebook. Ég skil ekki hvernig mér datt í hug að byrja á þessari vitleysu aftur. Svo ég auðvitað dæmdi Facebook umsvifalaust til dauða og var dómurinn kveðinn upp samstundis með því að deleta þessu ógeði. Og þá fékk ég svona tákn um hve rétt þessi ákvörðun hefði verið. Þetta var svona “zen-moment”. Ég hafði nefnilega verið að fylgjast með leiklýsingu í kvöld á leik Hull og aumingjanna í Tottenham. Tottenham komst yfir 1-0 en auðvitað tókst þeim að klúðra því og Hull hafði jafnað 1-1. Svo deletar Keizarinn Facebook, og viti menn, samstundis skorar Tottenham 2-1 og vann leikinn. Say no more.
Jæja, konan og einkadóttirin eru að fara til Kúbu norðursins á morgunn. Keizarinn verður þá einn heima, reikna með að samlokugrillið verði tekið fram og notað óspart. Ostasamloka Keizarans er ákaflega ljúffeng og mikilvægt að setja ost líka ofan á samlokuna svo maður fær svona “crispy” húð. Hinsvegar vill Keizarinn ekki nota hana of mikið þar sem það er ekkert kúl að vera feitur.
Varð hugsað til tengdó þar sem í kvöld var leikur Hauka og FH í handbolta. Sá að Haukar flengdu fimleikastrákana með 12mörkum. Aldrei leiðinlegt að sjá FH engjast. Þar sameinumst við tengdó íþróttalega séð.
Læt þetta ótrúlega svala víti fylgja með. Það var fitubollan Jón Karl Björnsson sem gerði þetta ótrúlega mark. Annað ótrúlegt er að hann gat hlaupið eftir kantinum leik eftir leik og meira að segja næstum því stokkið í loft upp, með bumbuna og allan pakkann.
Ég hitti hann einu sinni “live”. Og hvar var það? Jú, auðvitað á Kentucky í Hafnarfirði, hvar annarsstaðar…….
Jæja, Keizarinn mun ekkert blogga um nýju ríkisstjórnina að sinni. Það er ekki kúl. Gæti skrifað fleiri blaðsíður um þetta mál en komst svo að því að það er algerlega tilgangslaust. Keizarinn er landlaus maður í pólitik hvort sem er. Nema náttúrulega þegar ég stofna flokkinn.
Allavega. Ég fór í Stórmarkaðinn minn í dag. Ákvað að elda nú eitthvað gott, var nefnilega búinn að lofa konunni að gera eitthvað að viti í eldhúsinu. Það fyrsta sem ég sá í búðinni var Downsari. Alltaf hressandi að sjá Downsara og allt í einu rann upp fyrir mér hve langt síðan ég hef séð Downsara. Þessi var með 2tómar 2L kókflöskur í sitt hvorri hendinni. Veit ekki hvað hann ætlaði að gera með þær en ég held að hann hafi verið með eitthvað plan. Leit þannig út.
Allavega. Ég fílaði mig alltíeinu mjög þýskan og langaði þarafleiðandi í þýskan mat. Og hvað getur lítið reyndur áhugamannakokkur gert í því? Jú, maður kaupir sér auðvitað schnitzel. Og sjitturinn hvað þetta var gott. Þyrfti að gera meira af þessu. Við erum að tala um brauðrasp, hveiti og allan pakkann. Dóttir mín taldi þetta vera afar góðan mat og borðaði eins og sönn mädchen. Ohh, hvað er gaman að fíla sig þýskan stundum. Þar sem E-man er í Falun að vinna bauð ég konunni hans í mat.
Allir hrósuðu að sjálfsögðu matnum í hástert. Eins gott þar sem ég yfirheyrði fólkið undir borðhaldinu eins og sannur Gestapomaður, hvernig maturinn nú væri og HVORT ÞETTA VÆRI EKKI ROSALEGA GOTT.
Með þessu hafði ég kartöflur og Berneasesósu. Næst þarf ég að læra að búa til Rösti, með lauk og öllum pakkanum. Konunni minni er strax farið að kvíða fyrir.
ps
Kláraði náttúrulega þýska daginn minn með því að horfa á Arnarhreiðrið, þá legendarísku mynd. Ein spurning fyrir lesendur mína. Í myndinni lendir þyrla í Arnarhreiðrinu. Voru þyrlur notaðar í WW2???
Keizarinn stóð í þeirri meiningu að þyrlur hefðu fyrst verið notaðar í Kóreustríðinu 1950-1952. Væri skemmtilegt ef einhver sem telur sig betur lesinn í WW2 en Keizarinn gefi sig fram. Kannski veit Besserwisserinn þetta eða aðrir. Gefið ykkur fram….