Besserwisserinn er til allrar hamingju farinn að blogga aftur af krafti. Ég hafði áhyggjur af honum á tímabili, bæði vegna bloggleysis og því að eina sem hann bloggaði um var Eurovision.
Hann er hinsvegar sá bloggari sem Keizarinn telur næstabesta bloggara alheimsins og ég les hann á hverjum degi.
Hann kom með alveg frábæra færslu hér um daginn. Keizarinn og Besserwisserinn eiga nú ýmislegt mjög mikið sameiginlegt. Meðal þess sem þeir eiga sameiginlegt er sjúkleg aðdáun á Vladimir Putin og svo blúsaður söknuður vegna kalda stríðsins. Þessi mynd af Putin fékk mig til að hugsa um njósnir almennt.
Pælið t.d. í því að Putin er þarna pósaður sem túristi á rauða torginu. Hann var þekktur KGB maður. CIA mennirnir þarna vissu að öllum líkindum að Putin var KGB maður, en ekki túristi, og Putin vissi að öllum líkindum að CIA vissu hver hann var. Menn spila bara sinn leik og enginn þykist vita neitt.
Minnti mig á gamla klassíska sögu úr kalda stríðinu í ævisögu einhvers gaurs sem ég man ekki hvað hét. Hann var einn af aðstoðarstjórum MI6. Þar lýsir hann því þegar menn voru sífellt að fylgjast með og elta hverjir aðra frá sendiráðunum. Eitt sinn voru Bretarnir að elta Rússneska sendiráðsbifreið sem innihélt einhvern rússneskan njósnara. Svo keyra þeir þarna um London þar til svo óheppilega vill til að Rússarnir nauðhemla á rauðu ljósi og Bretarnir keyra aftanáþá.
Rússarnir vissu hverjir Bretarnir voru og öfugt. Svo fara bílstjórarnir út úr bílunum, skiptust á nokkrum afsökunarorðum og ræddu þetta aðeins. Fengu svo símanúmerið hjá Tryggingarfélögunum og kvöddust svo. Ískaldir. Úff, hvað ég sakna kalda stríðsins……
Talandi um kaldastríðið og njósnir. Maðurinn á myndinni að ofan var náttúrulega sá flottasti í bransanum. Ég vil fá svar hver þetta er og af hverju hann var kallaður “andlitslausi maðurinn”……. Þessi maður er talinn vera fyrirmynd Karla í bókum John le Carré.
Vieira er lúmskur djöfull. Í fyrstu virkar þetta gróft brot en svo sér maður þetta frá öðru sjónarhorni. Samt fyndið hvað Hamann gerir, hann svona hálfpartinn hótar broti…
Svíarnir náðu góðum úrslitum í gær. Náðu 0-0 jafntefli við stelpurnar frá Portúgal. Ekki slæm úrslit því að Danirnir eiga nú eftir að leika við Portúgal á útivelli. Við vinnum alltaf Danina.
Svíarnir beittu óhefðbundinni aðferð við að gæta Ronaldos í gær. Í staðinn fyrir að leika með 4varnarmenn eins og venjulega, léku þeir með 3varnarmenn og svo settu þeir dyravörð í knattspyrnubúning.
Honum var sýnd mynd af Ronaldo og sögðu að “þessi gaur var að segja að þú værir hommi”. Þetta gekk mjög vel…..
Hér sést fyrir ofan mynd af Ronaldo og hinum nýja vini hans. Þarna er dyravörðurinn að æfa hið svokallaða “höfuðgrip” á Ronaldo. Sjáiði hvað hann er búinn að ala Ronaldo upp. Hann sagði Ronaldo bara að setjast og ekki hreyfa sig í 5mínútur og Ronaldo hlýddi. Svo eyddi hann dágóðum tíma í að plokka gelið úr hárinu á Ronaldo á meðan hann beið þægur í grasinu. Annars er það bílaplanið eftir leik…………..
Umhverfisfasistadagurinn er í dag. Nú á að slökkva öll ljós í kvöld til að pressa á þetta kjaftæði að jörðin sé að farast. Það er þessi svokallaði “Earth Hour”. Þetta hefur væntanlega verið ákveðið á einhverjum sellufundi þar sem mussukellingar og Al Gore wannabies hafa drukkið te og fundist þetta alveg æðislegt.
Þetta er orðið óþolandi ástand. Leikskólinn og skólar ala krakkana upp í þessu. Á leikskólanum þar sem dóttir mín er, er rætt við börnin um hvernig eigi að sortera rusl og hvað það nú er sem þetta heitir. Einu sinni var ég að sækja dóttur mína og þá fór ein fóstran að reyna eitthvað að útskýra þetta og hversu mikilvægt væri fyrir börnin að fá svona umhverfisvitund. Keizarinn svaraði bara pent “Veistu það að ég hef bara nákvæmlega engann áhuga á þessu”.
Þessvegna er mikilvægt að sporna við þessu kjaftæði. Látið ekki einhverja grænmetisumhverfishomma ákveða svona fyrir okkur yfir einum sojalatte. Keizarinn mun kveikja öll ljós í kvöld. Er meiraaðsegja að hugsa um að kveikja ljósin úti í carporti. Spurning hvort maður eigi að starta bílnum og láta hann ganga. Svo setja örbylgjuofninn og steikarofninn í gang og ryksuga á meðan.
Við ykkur karlmenn sem ætlið að slökkva ljósin segir Keizarinn bara eitt.
Takið bara þá skrefið til fulls, klæðið ykkur í einhvern mjúkan bleikan náttkjól eftir freyðibaðið og hengið einhverja fallega mynd á vegginn, kannski af einhverjum sætum kóp með biðjandi augu. Svo gætuð þið fengið ykkur heita mjólk fyrir svefninn eða jafnvel lífrænt ræktað kamillute.
Það er mikilvægt að sína fulla hörku í þessu máli. Ekki gefa eftir.
Keizarinn hefur talað.
Keizarinn hatar körfubolta. Af augljósum ástæðum var ég aldrei góður í þessum asnalega leik og hin svokallaða “íþrótt án snertingar” höfðaði heldur aldrei neitt sérstaklega til mín.
Hinsvegar eru KR góðir í körfubolta og alltaf gaman að því þegar þeir vinna. KR-ingar hafa alveg einstaklega gott lið um þessar mundir. Hálfbróðir Ólafs, hann Jón Arnór Stefánsson vildi koma aðeins til Íslands til að spila léttan körfubolta og til að djamma, held ég. Alger andstæða bróður síns. Hvaða máli skiptir það ? Hann er í réttu liði.
Það er alveg sérstaklega gaman að vinna Keflavík. Keflvíkingar hata nefnilega KR. Ég held að þeir hati KR-inga meira en þeir hötuðu Marinesgaurana þegar þeir voru á djamminu niðri í bæ og þeir eru reiðari út í KR-inga heldur en einstæð móðir í Breiðholtinu er út í barnsföður sinn sem er í dópinu og skuldar meðlag x200.
Keflvíkingar eru reyndar frekar almennt reiðir. Sem er nú eðlilegt þegar maður pælir í því hvað er mikið rok hjá þeim. Þarf ekki annað en að sjálfvirka hurðin opnist í Leifsstöð svo maður finni smá “reality check”, hvert maður er kominn.
Man alltaf eftir kommenti frá Sigurði Ingimundarsyni þjálfara Keflavíkur þegar hann sagði einhverntímann að honum væri nú alveg sama hverjir ynnu titilinn, bara ef það væri ekki KR. Svona gleymist ekki. Þetta færðu borgað og nú var stundin runnin upp.
Fór til Keflavíkur einu sinni með KR-ingunum í fótbolta, það var eftirminnileg upplifun í alla staði. Buðu ekki einu sinni uppá mat eftir leik sem er svona almenn hefð eftir fótboltaleiki. Fór svo ári síðar með Þrótturunum. Það var ekki eins eftirminnileg upplifun. Fengum þá reyndar ljúffengar pizzur eftir leik sem brögðuðust vel. Aðalatriðið var reyndar að þá var maður inni í hlýju húsi svo manni hitnaði aðeins eftir ofkælinguna á þessu annars indælis ágústkvöldi, annarsstaðar á landinu.
Já, þeir voru slegnir út 3-0. Leiðinlegt. Reiðarslag fyrir byggðina. Nú geta menn farið að mæta í vinnuna sína, úthvíldir í Leifsstöð þar sem ég held að nánast allir Keflvíkingar vinni, fyrir utan þá sem vinna í fiskinum. Munu væntanlega allir halda með Njarðvík núna, miklu eðlilegra að halda með aðalkeppinautinum heldur en KR.
Ég ætla því að gera orð elliæra gyðingsins að mínum : “Réttlæti, ekki hefnd”.
ps
Vona bara að þessi Keflavíkurskríll hafi nú ekki eyðilagt mikið í KR-heimilinu. Það væri synd.
Keizaranum er illa við grænmeti. Borðar það helst ekki.
Mér finnst í raun grænmeti ekkert hræðilega vont en einhverra hluta vegna þá passar það illa með öðrum mat. Annaðhvort eða.
Grænmeti er ágætt en þá ét ég það bara eitt og sér. Aldrei með mat. Ef grænmeti er á disknum þá lít ég á það sem tilraun kokksins við að skreyta diskinn svo hann líti fallegri út.
Þetta vekur yfirleitt mikla kátínu vinnufélaga minna sem finnst þetta mjög fyndið. Þetta vekur yfirleitt mikla athygli þeirra þegar ég kem með samlokuna mína í hádeginu og byrja að tína af henni grænmetið. Allir fylgjast með og ég myndi valda þeim miklum vonbrigðum ef ég myndi ekki gera þetta. Maður verður að halda showið eins og venjulega. Gruna reyndar marga um að vilja vera eins og ég en þora ekki að taka skrefið. Þessvegna er mikilvægt að Keizarinn sýni grænmetinu fulla hörku.
Einu sinni var ég á ráðstefnu og svo borðuðu allir hádegismat. Svo komu þjónarnir með matinn, girnilegt svínakjöt en engann fékk Keizarinn matinn. Allir aðrir búnir að fá. Svo kom þjónn með matinn minn, grænmetisrétt. Í sömu andrá sprungu nokkrir vinnufélagar mínir úr hlátri. Höfðu þá verið að plotta þetta lengi og þegar þeir höfðu skilað inn umsókn fyrir mig á ráðstefnuna þá höfðu þeir sagt að ég væri grænmetisæta og yrði þarafleiðandi að fá sérstakan mat og afar mikilvægt væri að rétturinn innihéldi ekkert kjöt.
Allavega. Við vorum eitthvað að ræða þetta um daginn. Þá kom einn vinnufélagi minn með hugmynd. Hvað með að stofna svona samtök öfgasinnaðra grænmetishatara? Hann sagðist hafa fengið þessa hugmynd um daginn og hefði bara séð einn mann fyrir sér sem foringja þessa samtaka.
Ég fór svo að hugsa þetta. Þetta yrðu að sjálfsögðu samtök sem myndu ekki hika við að beita ofbeldi til að ná fram markmiðum sínum. Gæti verið að gera íkveikjuárásir á grænmetisveitingastaði, vinna skemmdarverk á ræktunarstöðvum og vinna skemmdarverk á grænmetisborðum í stórmörkuðum. Sprengja þessi tómatagróðurhús í tætlur.
Stórkostleg hugmynd. Einhverjir með ?
Jæja, Keizarinn heldur áfram kynningu sinni á leikaraskap í boltanum.
HM 2002. Tyrkir eru að spila við Brassana. Rivaldo kallar á boltann. Hvað gerirðu ef þú ert pirraður Tyrki ? Jú, sparkar boltanum til hans en soldið fast. Hinsvegar ruglaðist Rivaldo á líkamshluta og heldur um andlitið. Þetta hefði reyndar verið gott feik svona árið 1950 þegar menn höfðu ekki hundruðir myndavéla á völlunum.
Ekki oft moment hjá Keizaranum þegar hann hefur actually samúð með Tyrkjum en þetta var ein af örfáum.
Það er nú ekki orðið einleikið hvað mikil Noregs-dýrkun virðist vera í gangi hjá núverandi stjórnvöldum. Fyrst fóru þeir til Noregs, beint út á göngubraut og tóku fyrsta gönguskíðamanninn sem þeir fundu. Hann var víst gerður að seðlabankastjóra. Mér finnst hann nú ekki mikið fyrir mann að sjá ef dæma má myndir í fjölmiðlum. Reyndar kom Stoltenberg auðvitað á fyrsta blaðamannafundinn þeirra í Seðlabankanum svona til að sýna að pabbi væri með, soldið eins og pabbinn sem kemur með litlu stelpunni sinni í skólann á fyrsta skóladeginum. Keizarinn hefur áður fjallað um þann gerning.
Svo munum við öll hvernig Össur bloggaði um daginn hvað hann og Stoltenberg náðu svo vel saman á leiðtogafundi Norðurlandanna um daginn. Myndir af þeim að faðmast, og hver veit hvað meira gerðist síðar á fundinum þegar ljósmyndararnir voru farnir heim.
Össur var hreinlega með stjörnur í augunum og maður nánast táraðist þegar hann lýsti yfir hve Stoltenberg hefði haft miklar áhyggjur af ástandi mála. Össur litli virðist hafa náð svo vel saman við Stoltenberg að litlu mátti muna að þeir leigðu sér herbergi saman þarna um kvöldið.
Svo þekkir náttúrulega Steingrímur einhverja kommúnistamussukerlingu í Noregi sem hefur verið fjármálaráðherra þarna og hefur leitað ráða hjá henni. Af því að Norðmenn eru svo solid. Svo les maður þetta.
Einmitt. Í heilbrigðismálum eru Norðmenn náttúrulega mestu sérfræðingar enda auðvitað sérfræðingar um allt annað hvað viðkemur Íslandi. En í heilbrigðismálum ? Nei, þeir vita sko ekki rassgat meira um þetta en við, sjálfir með allt niðrum sig á þeim vígstöðvum og hafa verið að kaupa Svía til að betrumbæta heilbrigðisþjónustu sína undanfarin ár.
Ég myndi kannski leita til Norðmanns ef ég þyrfti hjálp við að verða góður á gönguskíðum, búa til pikknikkkörfu (sem kostar ekki of mikið) eða bara svona almennt fá ráð hvernig sé best að vera asnalegur gaur.
Hvar endar þetta eiginlega ? Gera menn sér enga grein fyrir hvað Norðmönnum hlýtur að finnast þetta yfirþyrmandi gaman að geta hlakkað yfir þessu og svo vera beðnir um hjálp. Geta sagt litla bróður aðeins til ? Bletturinn í buxum Stoltenbergs hlýtur að fara sístækkandi.
Nei, nú er nóg komið. Það hljóta að vera til önnur lönd sem líka er hægt að leita til.
Norðmenn eru steikur upp til hópa og það sem verra er, hrokafullar steikur. Svo eru þeir nískari en andskotinn. Alltaf með sínar asnalegu prjónahúfur og matarbox fyrir hádegismatinn þar sem þeir tíma ekki að kaupa sér neitt. Svo tala þeir asnalega líka. Við eigum ekkert þangað að sækja. Þeir hafa sýnt okkur fjandsemi í gegnum árin t.d. í sambandi við fiskveiðideilurnar, og ekki sýnt okkur neitt almennilegt vinarþel.
Hvenær ætla menn að fara að skilja það að Norðmenn hafa það ekki svona gott af því að allt er svo vel rekið hjá þeim eða að þeir séu allir svona klárir. Ástæðuna vita allir. OLÍA.
En eru það bara suður-evrópskir gaurar sem diva. Nei. Það er einn enn. Hann er þekktur Phil Collinsaðdáandi. Hefur einnig harðlega gagnrýnt þessa “erlendu, jafnvel suðrænu” leikmenn sem henda sér niður í tíma og ótíma. Hér sjáum við nokkrar dýfur.
Verð að sýna ykkur eitt fyndið með Klinsmann. Þetta clip verður eiginlega að fylgja með fyrra clipinu sem merki um að menn geta snúið við blaðinu.
Hann virðist hafa haft húmor fyrir sjálfum sér. Þegar hann var keyptur til Tottenham 1994 þá var mikið talað um hve óþolandi hann yrði og að svona leikmaður yrði sko ómögulegur í enska boltanum.
Hvað gerði Klinsmann ? Jú, hann sneri þessu upp í djók. Hann kom nefnilega með Klinsmann-fagnið sem varð legendarískt á sínum tíma. Fagnið var fólgið í því að eftir hvert mark sem hann skoraði þá dævaði hann. Liðsfélagarnir fylgdu gjarnan í kjölfarið með honum. Það var einmitt einn liðsfélagi hans á sínum tíma sem sagði frá þessu í viðtali að þeir liðsfélagarnir hefðu talað sig saman um að gera þetta.
Þetta varð svona tradition eftir mörk Klinsmanns. Hér sjáum við einmitt Klinsmann skora sitt fyrsta mark fyrir Tottenham, í sínum fyrsta leik… ohhhh góðir tímar……………
ps Takið eftir í þessu atviki hvað Klinsmann var í raun fáránlega góður striker á þessum tíma. Sjáið í endursýningunni hvernig hann platar dekkarann með einfaldlega 2-3skrefa gabbhreyfingu og platar dekkarann í hvaða hlaupaleið hann ætlar…..