Eins og fram hefur komið áður þá hefur Keizarinn í smíðum svona handbók sem mun valda straumhvörfum í lífi almúgans. Hinsvegar tekur náttúrulega svona stórvirki sinn tíma þannig að hún er ekki tilbúin enn. Biblían tók mörg hundruð ár að skrifa, Kóraninn eitthvað svipað og ævisaga Jennu tók alveg fullt af kvöldum líka. Þannig að fólk verður að hafa þolinmæði.
Bókin heitir ” Listin að vera harður - handbók Keizarans “
Þetta er svona leiðbeiningabók fyrir fólk hvernig maður á að vera harður í daglega lífinu og hvernig er hægt að bregðast við af hörku og karlmennsku við aðstæðum í daglega lífinu. Einnig nýtist þetta fólki sem er ekki hart, en vill vera hart. Þannig er hægt að “fake it till you make it” gera þetta.
Bókin er að sjálfsögðu kaflaskipt. Þarna verða kaflar eins og
“Meðferð áfengis ef maður er harður”
“Íþróttir- hvað fílar maður ef maður er harður”
“Hvernig á að bregðast við ef ókunnugt fólk fer að tala við þig”
“Hvernig á að umgangast börn og vera harður um leið”
Þar sem Keizarinn er í góðu skapi hef ég ákveðið að gefa smávegis preview á þetta og bjóða upp á að fólk komi með spurningar í kommentakerfinu um svona ráð við einhverjum situationum. Ef þið eruð í einhverju veseni og vitið ekki hvernig á að bregðast við því, spyrjið Keizarann. Hann veit svarið……..
Já, þið hélduð að ég væri búinn að gleyma þessu. Nei. Aldeilis ekki. Ég veit að sumir lesendur mínir lesa ekki svona “fótboltablogg” en ég vil benda kvenkyns aðdáendum Keizarans (og trúið mér, þeir eru MJÖG margir ) á að þetta krefst engrar sérfræðikunnáttu til að lesa.
Þetta var eiginlega of fyndið til að sleppa þessu. Set þetta inn sérstaklega inn fyrir vin minn hann E-man, sem er harður Arsenal maður og eflaust stressaður fyrir leikinn á morgunn. Svo passaði ég dóttur hans í kvöld þannig að hann getur lítið sagt………
Fabregas er heiðarlegur leikmaður. Við erum auðvitað öll búinn að gleyma DNA sýninu sem hann skildi eftir á Ballack hér um daginn.
Hann vill ekki diva þannig að hann sparkar bara í sjálfan sig, hann eiginlega braut á sér sjálfum. Geri aðrir betur. Gaman að sjá viðbrögð hins baskneska Arteta, hann er greinilega hundfúll en svo vel upp alinn að hann nennir ekki að kvarta yfir þessu heldur hleypur bara til baka í rólegheitunum, pælandi í því hvort Fabregas hafi æft þetta eða hvort þetta hafi verið spontant improvisering…….
Vá hvað Norðmenn eru alltaf mikil fífl. Um það hefur Keizarinn samviskusamlega fjallað um áður á þessar síðu. Þetta er reyndar ákveðið áhugamál hjá Keizaranum.
Þið hafið væntanlega lesið um norsku steikina sem var tekinn við knull undir stýri á 133km/klst hraða á NORSKUM þjóðvegi. Í fyrstu hélt ég að þetta hefðu nú bara verið einhver saklaus atlot, kallinn aðeins að mixa í kellingunni undir stýri en svo kynnti ég mér þetta aðeins betur og kom þá í ljós að þau voru í sjálfri athöfninni undir stýri.
Þetta vekur upp ýmsar spurningar. Í fyrsta lagi, hver ekur á 133km hraða á NORSKUM þjóðvegi, er það yfirhöfuð hægt? Bæði eyðileggurðu bílinn þinn þar sem þessir nískupúkar tíma ekki að halda við vegunum, og svo eru hraðamyndavélar á svona 50cm fresti á vegunum.
Svo eru það holurnar á vegunum, maður. Á 133km hraða þá gerist tvennt. Annaðhvort rifnar eitthvað mjög stórt sem þarf nokkur saumasett til að laga eða að konan fær fullnægingu dauðans……
T.d. ef hann hefði nú gert í Þýskalandi þá hefði þetta horft allt öðru vísi við enda alkunna að það er sko unun að keyra eftir þýskri hraðbraut. Hann hefði í fyrsta lagi verið stoppaður fyrir að athuga afhverju hann æki svona hægt, og þýska löggan hefði ekki sektað hann nema ef hann hefði ekki verið með smokk eða konan fáránlega ljót. Svo góðir eru þýskir vegir að maður getur alveg leyft smá æringjaskap undir stýri.
Enn eitt dæmi um Norðmenn. Gaurinn sem býr við hliðina á E-man er norsari. Hann er nú að byggja pall, svona eins og við gerðum í fyrra. Þetta er hinsvegar allt öðruvísi og ljótari pallur. Svo eru þau tvö að byggja pallinn hann og …..mamma hans. Já, pælið í því. Mamma hans er actually að byggja pallinn fyrir hann……….
Jæja. Á morgunn er hinn keizaralegi “Óskið mér til hamingju eða deyið” dagur. Eða kannski réttara sagt ” Óskið mér til hamingju eða það mun svartur bíll með dökkar rúður staðnæmast fyrir utan húsið ykkar. Svo munu tveir menn í leðurfrökkum banka á hurðina ykkar. Þeir þurfa að tala við ykkur. The rest ist history eins og maðurinn sagði. Sjitturinn hvað ég verð að fara að stofna svona öryggissveitir……
Henke nágranni var reyndar að djóka í mér um daginn að ég ætti nú barasta að bjóða mig fram í að verða formaður húsfélagsins á næsta fundi. Svo bætti hann við að ég gæti þá stofnað svona “säkerhetskommitee” og restin af stjórninni yrði að sjálfsögðu lögð niður. Ég þarf að hugsa um þetta….. Henke vinnur reyndar í Stokkhólmi og er vopnaður starfs síns vegna, svo ég veit að hann myndi styðja mig og á alveg örugglega vini sem myndu veita mér “siðferðislegan stuðning” í þessu.
Keizarinn verður 25ára og ber aldurinn vel finnst mér. Er jafnvel að hugsa að grilla í tilefni dagsins.
Tekið verður á móti hamingjuóskum í kommentakerfinu.
Keizarinn er auðvitað ekki svona fínn maður eins og blaðamannaskrattarnir sem þekkja alla. Maður er auðvitað ekki eins plöggaður eins og margir bloggararnir í 101. Vera plöggaður eins og maður segir.
Þetta hugleiddi ég þegar ég las þetta. Auðvitað vita allir hve erfitt mál þetta er. Nærtækast væri að pólitískir andstæðingar flokksins hefðu lekið þessu út, svona rétt fyrir kosningar. Hinsvegar virðast Keizaranum handbragðið kunnuglegt.
Hver lak þessu út ? Geir og Guðlaugur eru komnir í stóran kjötsúpupott og bráðum verður Ingu Jónu kryddað yfir. Tími til kominn að þessi Haarde-klíka, Guðlaugur, Andri Óttarsson og félagar fái laun erfiðis síns.
Nótt hinna löngu hnífa er kannski upprunnin….. Ég held nefnilega að skjalasafnið sé stórt og Davíð man og veit allt og ýmislegt er enn óútkláð…
Það væri kannski ekkert svo vitlaust að klúfa þessar flokkstætlur hvort eð er, hann mun hvort eð er ekki lifa af óveðrið. Og ef atburðarrás er óumflýjanleg, afhverju þá ekki að hanna hana aðeins betur. Svona “we predict the future” eins og X-files nördar kannast við.
Kannski kemur þetta frá einhverjum öðrum í því yfirskini að koma höggi á flokkinn en hvað ef þetta væri rétt ? Pælið í því, allavega. Það meikar sens……. Rétt eða ekki, allavega skemmtileg pæling.
Jæja. Ekki ætla ég að eyða orðum á þennan ómerkilega leik í gær. Þegar ég var farinn að leggja mig hringdi síminn. Ég var í vondu skapi en svaraði þó. Keizarinn - Halló Rummenigge - Blessaður. Þetta er ég. Keizarinn - Já, blessaður. Voðalega hringir þú seint. Ertu að hringja úr einhverju öðru númeri? Rummenigge – Já, sorrí. Ég fór náttúrulega strax í símann eftir þennan leik, þurfti að tala við fólk. Batteríið kláraðist. Sástu leikinn ? Þetta var náttúrulega skandall… Keizarinn – Já, hvað gerðist eiginlega ? Það mætti halda að Klinsi væri eini maðurinn í fótboltaheiminum sem vissi ekki hvernig Barca myndi spila í þessum leik………. Rummenigge - Já, ég veit. Setjum óreyndan bakvörð á Messi og hann var ekki einu sinni tvídekkaður. Lell réði ekkert við hann. Svo var hann ekki einu sinni sparkaður niður. Ég var búinn að koma með ábendinguna þína fyrir leikinn um að sparka í hásinarnar á honum en Klinsmann vildi ekki spila þannig, honum fannst það eitthvað svo óíþróttamannslegt. Það var ekki einu sinni reynt að loka almennilega á hann. Vörnin var ekki með neitt plan. Við sáum nú hvernig Barcelona náði alltaf að tvímenna á Ribery og loka á hann….. Keizarinn – Og menn voru bara eins og amatörar Rummenigge – Já, við vorum eins og hræddar kanínur í bílljósum Keizarinn – Kanínur ? Rummenigge - Já, æi þú veist, hræðslusvipurinn sem maður sér á kanínunum þegar þær eru í bílljósum á veginum á stjörnubjartri nótt… Keizarinn – Já, auðvitað. Ertu eitthvað að bremsa fyrir þeim ? Rummenigge – Nei, ég keyri strax yfir þær. Rummenigge bremsar ekki fyrir neinum, ekki einu sinni gömlum kellingum með göngugrindur. Keizarinn – Heyrðu annars, ætliði ekki að reka Klinsmann ? Rummenigge – Ja, Uli sagði strax eftir leikinn að við myndum ekki ákveða neitt strax. Held að hann hafi verið eitthvað hræddur við hvað ég myndi gera. Við þurfum að ræða þetta, Beckenbauer þurfti allavega nokkra sterka eftir leikinn, kellingin hans var orðin pínu fúl….. Keizarinn – Já, ef einhver sómatilfinning væri í Klinsmann þá myndi hann bara “falla á sverðið” eins og Rómverjarnir gerðu eftir misheppnaðan bardaga. Rummenigge - Já, en Klinsmann er svo mikil stelpa, ég held að hann eigi engin sverð, hann leikur sér bara með dúkkur. Ég meina, þegar við strákarnir hittumst yfir góðri nautasteik og rauðvíni þá heimtar hann alltaf að kjötið sé gegnumsteikt, það líður yfir hann þegar hann sér blóð (Rummenigge hlær tröllahlátri, svo heyrast miklir skruðningar). Keizarinn- Halló, ertu þarna ? Rummenigge - Já, sorrí, ég missti símann, ég hló svo mikið…. Keizarinn - Ég veit, það er skömm að því hvað Bayern lék stelpulega í gær, knattspyrnuheimurinn hlær að okkur. Það er kannski alltaf að koma betur og betur í ljós að það var Joachim Löw sem var maðurinn á bakvið þýska landsliðið á HM 2006. Klinsmann var bara stelpan sem kom í viðtölin og frontaði þetta. Rummenigge – Ég veit. Eins og staðan er í dag þá er hann bara eins og fífl í Bayernúlpu. Hann hefur engar lausnir. Svo getur hann ekki drullast til að vera í jakkafötum og flottur á hliðarlínunni. Hann er eins og einhver vinstri-grænn umhverfishommi þarna ( hlær tröllahlátri) Svona eins og steikin sem er þarna fjármálaráðherra hjá ykkur Íslendingunum…..(hlær enn meira og hálffrussar á símann) Keizarinn - Og svoleiðis passar náttúrulega ekki hjá Bayerunum. Rummenigge - Nei, erum þýskt stál…….. Keizarinn - Nei en svona í alvöru talað þá krefst ég þess að einhver borgi fyrir þetta. Ég var sestur hjá nágranna mínum og tengdó að horfa á leikinn og svo var maður bara niðurlægður. Ég vissi varla hvor ég ætti að vera reiður eða sorgmæddur. Ég ætlaði að reyna að kenna enska dómaranum um þetta, þú veist nú eins og ég hvernig Englendingarnir eru, en málið er að Bayern gat bara ekki neitt !! Rummenigge – Þú verður að drífa þig að klára bókina þína “Listin að vera harður – Handbók Keizarans”. Ég ætti nú barasta að berja Klinsa í hausinn með henni ( hlær kvikindislega) Keizarinn - Hvað var annars með þetta rauða spjald á Guardiola ? Rummenigge - Ég held að þetta hafi nú bara verið athyglissýki. Hvað annað getur það verið ? Hann var álíka upptjúnaður þarna yfir þessum leik, í stöðunni 4-0,eins og vefjagigtarsjúklingur sem er kominn með lyfseðilinn sinn niður í apótek og er umþaðbil að fara að fá verkjalyfin sín í hendurnar…….. Keizarinn – Hvernig ertu annars stemmdur Rummenigge – Jú, ég fór náttúrulega í símann og þurfti að hringja nokkur símtöl. Svo talaði ég svo lengi að ég kláraði batteríið í símanum. Mér líður aðeins betur núna. Beckenbauer er hinsvegar brjálaður. Hann segir að þetta gangi ekki svona lengur. Vissulega var Barcelona að spila vel en þetta átti ekkert að koma á óvart. Enginn að tækla, 10metra frá leikmönnunum og enginn body kontakt. Menn bara gáfust upp, fyrir þessum spanjólum. Keizarinn – Ég vona innilega að þið gerið eitthvað í þessu. Annaðhvort rekið þið manninn og hann fer að grenja, eða að þið verðið að láta hann sjá til þess að menn hisji upp um sig buxurnar. Ég vil sko ekki horfa upp á svona niðurlægingu aftur. Rummenigge – Vel mælt. Ég ætla að fara að kippa í spotta. Verð í sambandi. Franz biður að heilsa og við verðum nú bara bráðum að fara að hittast strákarnir og fá okkur snitsel og rauðvín Keizarinn – Jepp, heyrumst. Farðu nú varlega í símanum í nótt. Heyrumst.
Bajskorv. Þetta var sko ekki góður dagur fyrir Keizarann fótboltalega séð. Fyrst var það Tottenham sem tapaði eins og venjulega. Ég tékkaði á hvernig leikurinn stæði í hálfleik og þá var Tottenham yfir 1-0. Jæja, ég hélt nú að þetta væri unnið og fór jafnvel að athuga stöðuna í hvaða sæti Tottenham færi eftir umferðina. En, svo kíkí ég á aðeins seinna. Þá er komið 1-1 og Tottenham orðnir 10. Alveg er þetta týpískt. Tottenham er svona lið hinna brostnu vona , þeir gefa manni smávegis von bara til að henda henni í burtu síðar.
Svo var það Bayern. Þeir voru að leika við hið klikkaða lið Wolfsburg. Úlfarnir höfðu unnið 7leiki í röð fyrir þennan leik og eru komnir upp í 3ja sæti. Litli skrattakollurinn og laumunasistinn Felix Magath er að þjálfa þá og er þvílíkt búinn að umbreyta þessu liði. Einu sinni var þetta svona lið sem maður tók varla eftir að væri til, svona svipað og Fram á Íslandi, Wigan á Englandi osfv. En nú, á þvílíku skeiði. Mínir menn eru náttúrulega enn með Klose í ökklameiðslum, Toni spilaði en rétt orðinn góður, og svo var DeMichelis í banni. Nkkuð sterkt lið á pappírnum…En að tapa 5-1, það er náttúrulega skandall. Komnir niður í 3ja sætið. Jæja, vonandi situr þetta ekki í mönnum í vikunni og vonandi að menn hafi verið að spara sig fyrir gullrassana í Barcelona í vikunni.
Úff, býst nú við að Klinsmann svari ekki símanum í kvöld…….
OK; kannski er keizarinn vondur maður. En alltaf þegar ég þarf eitthvað að hressa mig við eða vill bara almennt komast í betra skap þá horfi ég á þetta. Veit að nokkrir hér hafa verið að búast við Ronaldomyndbandi og hér kemur það .
Boðskapurinn er einfaldur. Það er mikilvægt að greina á milli hvort maður er stelpa eða strákur. Sérstaklega þegar maður er strákur. Farðu frekar inn í klefa, læstu þig inni á klósetti og grenjaðu. Það er það sem stelpurnar gera.
Jæja, smá öppdeit eins og venjulega. Keizarinn er alveg óvenju ánægður með vikuna sem er að líða. Nú er ég nefnilega að skipta um deild og er að fara á deild sem liggur aðeins nær mínu áhugasviði. Því ber að fagna.
Svo tók Keizarinn aukavakt í dag og var í banastuði. Gaman að fá loksins að hleypa testósteróninu út. Var með nema með mér sem mér líkaði við þannig að hann fékk frasakennslu og almenna kennslu í hegðun, atferli og framkoma. Svona crash-course. Held að hann verði aldrei samur eftir.
Svo er tengdó að koma á morgunn. Borðum eitthvað gott, drekkum eitthvað gott vonandi og hver veit nema maður opni kælinn góða í tilefni dagsins. Setjum svo barnið í pössun. Konan er að hugsa um að bregða sér til Stokkhólms og draga sig með sér á Sunnudaginn.
Er annars að horfa á Trjóju í sænska sjónvarpinu. Alltaf hægt að treysta á þá dagskrá. Umfjöllun um Tróju kemur síðar.
Jæja, búinn að vera heima síðustu 2daga með dótturina sem er veik. Búinn að horfa á “Finding Nemo” 3x undanfarna daga og það er ekkert sem ég mæli yfirhöfuð með. Hef reyndar komist að því að það er alveg ótrúlega gaman að lita í litabók. Róandi og ég hef litað hverja myndina á fætur annarri og haft gaman af.
SKemmtum okkur líka við að horfa á út um gluggann. Horfðum t.d. á einn nágrannakrakkann í gær í fylgd taugaveiklaðrar móður sem var greinilega að reyna að læra að hjóla án hjálpardekkja. Svo datt hann hvað eftir annað sem uppskar mikinn fögnuð okkar feðgina.
Að öðru. Það eru landsleikir í dag. Ísland er að fara að leika við Skotland í dag. Eins og venjulega eru gömlu tuggurnar farnar á stað, við eigum möguleika og gætum jafnvel farið á HM osfrv. Svo koma eftirfarandi tuggur sem maður kannast við síðan frá síðasta leik……….
“Allir eru tilbúnir fyrir leikinn”
“Eigum möguleika”
“Verðum að vera einbeittir”
“Hinir munu vanmeta okkur”
Svo eru nokkrar komnar í viðbót. “Ætlum að deyja fyrir Ísland”. Hvað meina menn eiginlega? Allir vita nú að íslenskir atvinnumenn eru ekki beinlínis að drepast úr áhuga í þessum leikjum.
Svo frábið ég mér þessar endalausu pælingar um möguleikana á úrslitakeppninni. Það verður aldrei. Hvernig dettur mönnum annað í hug ? Jú, við erum með alveg hörku lið.
Við eigum nefnilega fullt af gaurum sem sitja á varamannabekkjunum á hinum og þessum liðum í Evrópu og við erum með þjálfara sem er rosalega skemmtilegur á blaðamannafundum.
Við munum skíttapa á móti Skotunum sem reyndar lentu í árekstri við vörubíl á móti Hollendingunum. Skíttöpuðu. En Holland er ekki Ísland. Kannski þarf ég að éta þetta ofanímig en ég stórlega efast um að Skotarnir vinni þetta ekki.
Svo í lokin. Hvað er alltaf með þessar asnalegu fréttir fyrir landsleikina frá því hve góður mórall sé í landsliðinu, hve Hemmi Hreiðars sé hress og fyndinn og því hver hafi verið bestur í lasertag. Svona eins og voðalega skemmtileg ferð hjá einhverjum kvennaklúbb eina helgi í Glasgow. Hvernig væri að fá smávegis hörku í þetta ?
Haldið þið að Siegfried Held hefði farið með strákana í Lasertag eða eitthvað álíka hópefli…..
Svo er mjög mikilægt ða vita það hversu góður mórall er í hópnum og hvernig spurningakeppnin hafi farið. Svo hver þekki hvern osfrv
Minnir á þegar íslensku Ólympiufararnir voru að ……….