Lok þýsku deildarinnar

May 30, 2009

Mig grunar að fólk finni sig í svolitlu tómarúmi núna.  Allavega þeir sem hafa gaman að fótbolta.  Í dag er nefnilega akkurat ein vika síðan þýska deildin kláraðist og þá í raun fór evrópuboltinn í frí, fyrir utan einhverja æfingaleiki. Ég ætla í þessum pistli að skilja við þýsku deildina, sem var alveg óvenju skemmtileg og spennandi. 

Já, Wolfsburg tók þetta.  Lítið hægt að segja við því og Keizarinn getur í sjálfu sér alveg unnt þeim að vinna.  Allavega skárra en að helvítis Schalke eða Stuttgart ynnu þetta.  Wolfsburg  áttu alveg ótrúlegasta seinni helming tímabils sem hefur sést í þýsku deildinni.   Voru í níunda sæti þegar deildin byrjaði eftir vetrarfríið en svo var þetta flugeldasýning alla leið framtil síðustu umferðar.   Annað sem kom á óvart var hversu sveiflukenndir Bayern voru en árangurinn annað sæti er ekkert að grenja yfir.  Svo kemur á óvart hve slakir Werder Bremen voru.  Að enda í 10sæti með mannskap eins og Frank Baumann, Diego og Torsten Frings er ekkert æðislegt.  

Lokaumferðin var nú nokkuð spennandi.  Á Allianz unnu mínir menn 2-1. Meira að segja yfirsteikin Lehman fór fram undir lokin og reyndi að skalla í netið en það tókst ekki. Það var gott enda ekki  vinsælasti maðurinn á Allianz.   Werder Bremen lagðist hreinlega á hnén á móti Wolfsburg og töpuðu 5-1.  Margir áttu kannski von á því að þeir myndu veita meiri mótspyrnu en þetta svona summar upp seasonið hjá Bremen.

Mínir menn geta svo sem ágætlega við unað miðað við allt. Þetta tímabil átti að verða algert gull.  Menn réðu Klinsmann, og eins og Uli Hoeness lét hafa eftir sér þá vissi hann varla um þjálfara sem var eins mikið látið eftir hvað varðar breytingar.  Öllu þurfti að breyta.  Hann breytti æfingum, skipti út læknaliðinu, þjálfaraliðinu og liðið keyrði algerlega eftir hugmyndafræði Klinsmanns.  Þessi hugmyndafræði beið algert skipbrot þegar leið á tímabilið og Klinsmann hafði ekki karakter í að rífa liðið upp.  Þannig var ekki um annað að ræða en að láta hann fara.   Miðað við þetta þá er 2sætið vel ásættanlegt, þ.e. meistaradeildarsæti og að hafa komist í 8liða úrslit í Meistaradeildinni.   

Fæstir þekkja þetta Wolfsburglið.  Þetta er svosem ekkert óþekkt lið í þýska boltanum en hefur enga hefð með sér og eru ekki búnir að vera í mörg ár í hópi þeirra bestu.  Segja má að uppgangur þeirra hafi byrjað þegar Felix Magath tók við þeim.  Hann var látinn taka pokann sinn hjá Bayern ( í tilviki Felix Magath þá var hann látinn taka lyftingadótið sitt) og byrjaði hjá Wolfsburg.  Hann er með þessum árangri að stimpla sig inn sem einhver albesti þjálfarinn í boltanum í dag.   Þú getur farið yfir liðsmannahóp Wolfsburg og þú staðnæmist ekki við mörg nöfn sem þú kannast við. 

Þannig er þetta nánast svona ”þjálfaratitill”.  Eins og Franz Beckenbauer sagði ” Magath hefur tekið meðallið í þýsku deildinni og gert það að meisturum”.  Hann hefur gjörbreytt hugsunarhætti liðsins, verið klókur að fá til sín ódýra leikmenn og svo er hann náttúrulega þekktur fyrir líkamsþjálfunaraðferðir sínar og dálætið á lyftingum.  Liðin hans eru nútíma fótboltalið sem keyra allan leikinn, með bæði kvika og sterka leikmenn. 

Í liðinu eru engar sérstakar stjörnur núna en menn sem eru að verða þekktir eftir að Wolfsburg er alltíeinu orðið þekkt.  Þeir hafa byggt upp á sterkri vörn, leikið mjög þétt aftast og síðan höfðu þeir framherjana Edin Dzeko og brasilíumanninn Grafite sem urðu held ég markahæsti og næstmarkahæsti leikmaðurinn í Bundesligunni.  Fyrir aftan þá hefur svo verið spielmacherinn Zvjezdan Misimovic sem stjórnar sókninni.    

Heimavallarárangurinn hefur að hluta til fært þeim titilinn.  Þeir spiluðu þar 17leiki, unnu 16 af þeim.   
Wolfsburg er eins og áður segir, ungt félag, stofnað á því dauðans ári 1945 í Þýskalandi og maður spyr sig eiginlega hvernig menn höfðu tíma til að stofna fótboltafélag á því ári, hélt að flestir í Þýskalandi hefðu þá verið uppteknir við annað !!

   Sagan á bakvið borgina Wolfsburg er skemmtileg.  Þarna hafði staðið einhver rosalegur miðaldakastali þar sem bæjarstæðið er núna. Kastalann reisti einhver barón á sínum tíma (alveg örugglega geðveikur, það er yfirleitt skemmtilegra).     

1931 hafði bílahönnuður, Ferdinand Porsche, komið með hugmynd að venjulegum bíl sem hinn venjulegi Þjóðverji gæti keypt. Hann yrði nógu ódýr til að hinn venjulegi borgari gæti keypt hann og hann myndi bila sjaldan.   2árum seinna hitti hann gaur með yfirvararskegg  sem fannst þetta vera frábær hugmynd. 

 Hugmyndin var að nútímavæða Þýskaland og allir gætu fengið sér sæmilegan bíl. Menn voru ekkert að vesinast með bensínskatta og það að bíll væri hættulegur umhverfinu heldur var fólki gert kleyft að eignast mannsæmandi bíl.  Enda var Steingrímur Joð ekki fæddur þá.

 Bíllinn var framleiddur undir formerkjunum “Kraft durch Freude” og þetta er að sjálfsögðu þessi Volkswagen-bíll, þ.e. bíll fólksins.  Verksmiðjunum var fundinn staður í nágrenni kastalans og árið 1938 lagði Dolli hornstein að verkjsmiðjunni.    Síðan hafa Volkswagenverksmiðjurnar verið þarna, borgin Wolfsburg hefur vaxið og dafnað og þess má geta að Volkswagen er einn helsti styrktaraðili Wolfsburgliðsins. 

Næsta season verður mjög spennandi.  Strax hafa spennandi hlutir gerst.  Luis van Gaal (einn af uppáhalds þjálfurum Keizarans) hefur tekið við Bayern.  Þar hefur einnig bæst við framherjinn Mario Gomez frá Stuttgart.  Svo hefur Feliz Magath tekið við hinum sofandi risa, Schalke.  Diego frá Bremen er farinn till Juventus osfrv.

Svona í lokin vil ég hvetja fólk til að fara nú frekar að fylgjast með þýska boltanum. Þetta er miklu karlmannlegri og skemmtilegri deild heldur en einhverjar rigningardeildir í Englandi. 

Bara sem dæmi er að í Þýskalandi þá leikur þú ekki um bikar, þú leikur um SKJÖLD.    Það er kúl.


Sumarið er komið

May 29, 2009

Jæja, vikan er búin.  Ansi erfið vika verð ég að segja ykkur.  Dóttir mín er nefnilega búin að vera með hlaupabóluna.  Í fyrstu fannst mér þetta soldið sætt og fallegt en svo hætti þetta nú alveg að vera skemmtilegt.

Hinsvegar var dagurinn í dag alveg ágætur.  Ég ætla sko ekkert að vera neitt leiðinlegur en það var 25stiga hiti hér á pallinum.  Að því tilefni fór ég í systemið og keypti mér bjór.  Svo grillaði ég hamborgara og við borðuðum úti á pallinum.  Að sjálfsögðu fékk ég mér gráðost á burgerinn og drakk bjór með.  Arboga 5.6%.  Mæli með honum.  Það á víst að vera 30 stiga hiti yfir helgina.  Ohhh,  þetta er svo erfitt líf……


Fjandinn, hvar er myndin?

May 26, 2009

Fór í kvöld einu sinni sem oftar út í hina tröllvöxnu búð á horninu hjá okkur, þar sem allt fæst.  Allt frá asnalegum stuttermabolum, sodastreamvéla og meiraaðsegja sá ég þarna í kvöld vélsög.  Svo er hægt í kjötdeildinni að velja á milli strútafilé, krókódílakjöts og fleira.  Þetta er sko enginn Bónusniðurgangur.    Þarna eru seldar DVD myndir í kassavís.  Oft er svona tilboð og þá eru heilu haugarnir af DVD myndum, öllum mögulegum.  Þá gildir það oft að “kafa”, bestu myndirnar eru oft á botninum. 

Þarna hef ég fundið hina ýmsu gullmola í gegnum árin, oft hef ég komið heim með nokkrar myndir við litlar vinsældir konunnar, þar sem ég þyki víst velja fremur lélegar myndir.  Hver myndi t.d. telja Under Siege 1 og 2, The Mummy og Der Untergang lélegar myndir ?

Svo getur þetta snúist við.  Stundum eru þarna myndir á fáránlega lágu verði og maður verður hálf móðgaður fyrir hönd myndarinnar eins og þegar ég sá pakkann  ”Missing in action 1 og 2 með Chuck Norris” á 50kr sænskar.  Bajskorv, hvað ég sé eftir því að hafa ekki keypt hana.

Allavega.  Ég kíki í þessa kassa reglulega þar sem ég er að leita að tveimur myndum, miklum stórvirkjum í kvikmyndasögunni og ég bara VERÐ að fá þær í safnið. Alltaf leita ég en aldrei eru þær þarna.

  Þetta eru stórmyndirnar “GI Jane”, aðallega fyrir liðþjálfann sem Viggo Mortenssen leikur.  Það er sko maður að mínu skapi og þegar verkjavandamál ber á góma í vinnunni hef ég stundum farið með monologinn hans “The pain is your ally.  It makes you feel you´re still alive og svo frv”  fyrir samstarfsmenn mína, oftast við mikla kátínu.    

Hin myndin er hin stórkostlega vanmetna mynd “The Quest”.  Hvaða mynd er það ?  Jú, þetta er ein stórbrotnasta, epískasta ævintýramynd sem gerð hefur verið.  Van Damme á hátindi ferils síns og þeir leiða þarna saman hesta sína, hann og Roger Moore, sem er svo svalur í þessarri mynd að hann nennir varla að leika.  Man að ég og Besserwisserinn horfðum oft á þessa mynd í gamla daga og tókum andköf yfir snilldinni.  Svo hvarf þessi mynd.  Varð þögguninni að bráð.  

Ef einhvern langar einhvern tímann að gleðja Keizarann þá er hægt að hugsa til þessarar myndar.


Hinn alvitri faðir

May 25, 2009

O, hvað ég elska þetta tabula rasa hugtak. Að móta ómótaðan huga. Fylla huga af upplýsingum, og meiraaðsegja RÉTTUM upplýsingum.

Eftirfarandi samtal átti sér stað í dag. Dóttir mín er að horfa á “með allt á hreinu” þegar þau fara til Vestmannaeyja.  Hún sér þetta hraunadrasl og fer að velta ýmsu fyrir sér…………

Dóttir – Hvaða staður er þetta, pabbi ?
Keizarinn – Þetta eru Vestmannaeyjar
Dóttir – Er það á Íslandi ?
Keizarinn – Nei, það er sko ekki á Íslandi en það er svona eyja sem er rétt hjá Íslandi. Það er mjög leiðinlegt að fara þangað….
Dóttir – Býr Grýla þar ?
Keizarinn – Já, alveg örugglega. Og fullt af svona skrýtnu fólki.
Mér finnst eiginlega að þeir megi ekki vera með í Íslandsmótinu í fótbolta
Dóttir - Ekki mér heldur pabbi, en hvað er Íslandsmót ?
Keizarinn – Við tölum um það seinna………….


Af sorppressu og tölfræðilegri óheppni

May 23, 2009

Það eru nákvæmlega svona fréttir sem sýna manni enn einu sinni framá hversu miklir sorpsneplar dv og visir eru orðnir.  Þetta er orðið svona eins og dagblaða-séð og heyrt.   Í dag gat maður t.d. lesið um að Paris Hilton hafi farið í sleik við kærastann sinn á skemmtistað og því að Mariah Carey sé að fitna.  Svo að Jordan hafi bannað manninum sínum sem hún stendur í skilnaði við, að hitta börnin í dag. 

En einhvernveginn kemur maður alltaf aftur á þessar síður.  Svona álíka og maður reynir alltaf að lesa Séð og Heyrt ef maður getur flett því einhversstaðar.  Myndi samt aldrei kaupa það. 

Reyndar ein pæling í lokin.  Hvernig ætli manninum með númer 76 hafi liðið þegar hann stóð þarna í biðröðinni og beið eftir gullinu. Jafnvel búinn að taka smávegis Viagra.  Hversu óheppinn getur einn maður verið?  Get vel ímyndað mér að hann hafi látið nokkur vel valin orð falla. 

Þetta minnir mig á eina sögu sem ég heyrði einu sinni af heima fyrir mörgum árum.  Einn gaur var að deita strippara heima.  Svo á hann afmæli.  Stripparinn hringir í hann áður en hún fer  að vinna um kvöldið, óskar honum að sjálfsögðu með afmælið og tilkynnir honum að hún sé með soldið “óvænt” þegar hún komi heim eftir vinnu.  Nú, hvaða ályktun myndi sérhver karlmaður í þessum sporum draga ?   Jú, gaurinn dró náttúrulega sömu ályktun, gerði sig kláran í treewayið með kærustunni og vinkonu hennar og tók alveg heilmikið Viagra til að gíra sig upp, áður en hún kæmi heim.  Svona eins og maður tók oft 1-2bjóra áður en maður fór í partí.  

Svo er það besti parturinn.  Vinkonan kemur heim og tilkynnir gaurnum að þetta óvænta væri nú því miður að hún væri byrjuð á túr.  Það gleymdist hinsvegar að segja litla ofurstanum þetta.  Svo fór honum að líða verr og verr og endaði að sjálfsögðu á sjúkrahúsi.   Þannig endar þessi fallega saga.


Dagurinn í dag

May 16, 2009

Jæja, þá er laugardagurinn runninn upp.  Þetta er búið að vera hálf shittý vika, sjálfur Keizarinn búinn að vera með einhverja pest og þarafleiðandi veikur hluta vikunnar.   Hinsvegar er ég næstum því búinn að hrista þetta af mér. 

Konan og dóttirin eru hinsvegar búin að vera í fríi alla vikuna.               Dagurinn í dag er alveg ferlega spennandi.  Lítum á nokkra hápunkta
Það eru 2umferðir eftir af þýsku deildinni. Wolfsburg og Bayern með jafnmörg stig, unnið jafn marga, tapað jafn mörgum og gert jafnmörg jafntefli. Hinsvegar er Wolfsburg með 2fleiri skoruð mörk. Í dag fer Bayern til Hoffenheim sem voru nánast úrskurðaðir látnir fyrir nokkrum vikum en hafa því miður aðeins verið að koma til. Á sama tíma leika Wolfsburg við Hanover 96, sem er aðeins léttari leikur.
Í enska boltanum er spennandi leikur hjá Tottenham í baráttunni við 7unda sætið þegar Man City kemur í heimsókn. Svo gæti þetta Manchestereitthvað tryggt sér titilinn í dag.

Svo er auðvitað Eurovision. Væntanlega verður horft á það. Stóru fréttirnar eru auðvitað að Dita von Teese verði á sviðinu í kvöld, að sjálfsögðu með Þýskalandi, og held barasta að maður hafi aldrei verið jafn spenntur fyrir þýska laginu eins og í kvöld. OK, kannski ekki laginu en allavega atriðinu…. (grunar að Rummenigge hafi riggað þessu upp eftir samtal okkar þarna um daginn)
Konan er að spá í að halda með norska garðálfinum, dóttirin með Íslandi og Svíþjóð og ég á eftir að ákveða mig.
Nú, svo er ég að spá í að kaupa mér ávaxtatré og gróðursetja í garðinum í dag. Sjáum til.


Stuttmyndin “Bajskorvinn”

May 15, 2009

Einu sinni sagði góður maður  “ef þetta er list þá er ég pissed” . 

 Fleyg orð og eflaust orðið til á góðu fylleríi.  Hinsvegar þegar ég, á einhvern súrrealískan hátt rambaði á þessa stuttmynd á youtube þá áttaði ég  mig á því að einmitt   svona er sönn list.  Sum listaverk eru nefnilega þannig að listamaðurinn þarf alltaf að útskýra alveg brjálæðislega um hvað þetta listaverk er og þá, búmm,,  þá skilur maður þetta alveg.

  En hrein og sönn list, hún er bara svona.  Stendur ein og sér.  Útskýringa er ekki þörf.   Schhhhnilllldddd……….


Eurovisionpælingar….

May 14, 2009

Keizarinn er búinn að vera að kíkja á Eurovision síðustu 2undanúrslitakvöldin.  Kominn rólegur á kantinn, kvöldið að taka enda og vinnudagur framundan en þá hringir síminn…….
Keizarinn – Halló
Rummenigge – blessaður, þetta er ég
Keizarinn – já, blessaður.
Rummenigge – Heyrðu, ertu búinn að vera að horfa á undanúrslitin?
Keizarinn – Auðvitað, ég held að flestir geri það nú en það eru bara harðir gaurar sem þora að viðurkenna að þeir horfi á þetta
Rummenigge- nákvæmlega. Þetta er náttúrulega pínu hommakeppni en það er soldið gaman að þessu. Flottar gellur, af og til góð lög og svo er alltaf gaman að horfa á þjóðir sem geta ekki rassgat (hlær)
Keizarinn - Samt skrýtið að þetta sé í Rússlandi?
Rummenigge – Já, eiginlega hefði maður aldrei átt að leyfa austurblokkinni að vera með, þetta er engin Evrópa, maður…….
Keizarinn – Og svo voru úrslitin á undanúrslitakvöldunum soldið skrýtin, ekki þessi mafíukosning eins og venjulega
Rummenigge – Ég er með kenningu um það, reyndar. Það er fjármálakreppa í heiminum. Allar þjóðir eru að kjósa lélegu lögin. Þetta er svona keppni í hver vinnur ekki, því að ekkert land vill í raun halda keppnina á næsta ári með tóman þjóðarkassa……..
Keizarinn – Heyrðu þú komst ekki í Eurovisionpartíið mitt þarna um daginn?
Rummenigge – Já, sjitturinn. Þú veist að ég gerði allt til að geta komist en það var bara ferlega mikið að gera, svona “taking out the trash”…
Keizarinn – Meinarðu Klinsmann-vandamálið?
Rummenigge – já, þetta var nú bara eins og þegar ég hætti með kærustunni minni þegar ég var 15ára. Hann fór bara að grenja og spurði í sífellu “hvað gerði ég rangt ? ” og “gefðu mér annað tækifæri?” osfrv. Svo hljóp hann bara út í Bayern úlpunni og ég varð að láta öryggisverðina hlaupa á eftir honum og ná í úlpuna. Hann átti ekkert að eiga þessa úlpu, það var ekki í samningnum…..
Keizarinn - meiri suckerinn
Rummenigge – Já, menn verða nú að sýna smávegis karlmennsku og axla sína ábyrgð…..
Keizarinn – Ætli Klinsmann hafi verið að horfa á Eurovision?
Rummenigge- Örugglega. Hann hefur örugglega kosið Grikkland eða eitthvað, konan hans hefur örugglega bara slökkt á sjónvarpinu þegar einhverjar gellur voru að syngja…..
Keizarinn - Ísland og Svíþjóð fóru nú áfram….
Rummenigge – Já, ég var nú auðvitað ánægður með það. Mér er auðvitað hlýtt til Íslands og Svíþjóðar útaf vinskapnum við þig. Held reyndar að Ísland hafi sloppið inn á dómnefndaratkvæðinu en mér fannst annars bara Íslenska lagið alveg ágætt…
Keizarinn – Varst þú eitthvað að hringja í dómnefndina ?
Rummenigge – Ja, þú veist að ég er með ansi háan símreikning eins og venjulega. Maður sér nú um sína………
Keizarinn – Já, ég skil ég ekki hvað svona sjálfskipaðir Eurovisionsérfræðingar eins og Besserwisserinn voru að kvarta yfir íslenska laginu, mér fannst það bara alltílagi
Rummenigge – Besserwisserinn ? Já, ég man að ég fór oft inná síðuna hans en hann er orðinn svo latur að blogga, hann hangir hinsvegar rosalega mikið inni á facebook.
Keizarinn – já það er synd.
Rummenigge - En hvaða lög fannst þér annars best?
Keizarinn – Ég veit það ekki, eiginlega fannst mér lögin við fyrstu hlustun lélegri en í fyrra en svo gæti það svosem breyst
Rummenigge – Mér finnst allavega Tyrkland, Rúmenía og Úkraína vera athyglisverð lög fyrir okkur karlmennina. Góðar melódíur…..
Keizarinn - góður, veit alveg nákvæmlega hvað þú ert að meina. Hvað er þetta með Úkraínu, eiga þeir alveg endalaust af gellum eða hvað ?
Rummenigge – nákvæmlega. Fyrst var það Ruslana, svo Ani Lorak og svo þessi. Ég hef allavega aldrei séð svona konur þegar við höfum farið að spila við Dynamo Kiev….
Keizarinn – Nei, svona kellingar eru aldrei á vellinum
Rummenigge - nei, þetta eru allt einhverjar mafiósakellingar sem er ekki hleypt nálægt tuddum eins og Scheinsteiger, DeMichelis og Toni …..
Keizarinn – Annars er mikið látið með þetta norska lag. Mér finnst reyndar Norðmenn alltaf vera með soldið þjóðleg þema, jafnvel arískt….
Rummenigge – Já, þrátt fyrir að vera lúðalegasta þjóð norðurlanda þá eru hafa þeir alltaf lögin sín soldið norræn
Keizarinn – Hvað fannst þér annars um söngvarann?
Rummenigge - já, meinarðu þessi hommalegi hrokkinkollur með fiðluna?
Ég væri nú alveg til í að eiga hann (skruðningar heyrast, ísmolar detta í glas og Rummenigge hlær tröllahlátri sem ætlar aldrei að enda)
Keizarinn – Eiga hann, hvað meinarðu eiginlega?
Rummenigge - Nei, kellingin var eitthvað að tala um að vilja kaupa svona garðálf á grasflötina. Mér datt svona í hug að það væri hægt að stoppa hann upp, þeas eftir að ég verð búinn að kveikja í fiðlunni hans og planta honum í garðinn minn, þá verð ég kominn með svona garðálf hjá mér……….
Keizarinn - Góður. Rosalega ertu alltaf harður, maður…….
Rummenigge - Heyrðu, vískí og vindlar yfir Eurovision á laugardaginn, ég sendi flugvélina eftir Keizaranum
Keizarinn – Nei, sjitturinn, þú hljómar alveg eins og Hannes Smára 2007 kominn í glas, ég held að ég geti það ekki, konan er á dagvakt og svona
Rummenigge – OK, en þá verðurðu að lofa mér að koma næst..
Þú veist að ég er ennþá fúll yfir því þegar þú og Dr Leifsson fóruð til Munchen á Bayernleik og þú gleymdir að láta mig vita af því………
Keizarinn - Lofa því. Við kannnski heyrumst eftir keppnina á laugardaginn, þá verður líka Bayern búið að spila og svona?
Rummeningee- Jawohl, “see you down the road” eins og maður segir.
Keizarinn – OK, verðum í bandi. Heyrumst….


Plástur á meiddið-bullandi orka……..

May 14, 2009

Orkuplástrar eru aðal hittið í dag.  Las alveg ógleymanlega grein um þetta á netinu í dag sem alveg bjargaði deginum.  Maður veit varla hvar maður á að byrja.   Það er allavega ljóst að þetta “one born every minute” er enn í fullu gildi.  

Lítum aðeins nánar á gullkorn úr þessari grein.  Þessir plástrar eru sko ekkert svona rusl eins og nebbaplástrarnir sem menn notuðu.  Allir voru hættir að nota þá eftir nokkra mánuði en einhvernvegin gleymdist að segja Einari Þór Daníelssyni þetta.  Hann skeiðaði upp kantinn hjá KR með plásturinn á nebbanum þónokkuð lengi.  Hann hefur sennilega ekki verið áskrifandi að neinum fjölmiðlum og þessvegna ekki fengið að vita þetta.  Og auðvitað var það plásturinn sem jók úthaldið hjá honum en ekki einhver leiðinda úthaldsþjálfun.  Hugsið ykkur hvernig yfirferðin hefði verið hjá Andreas Brehme ef hann hefði fengið nefplástur!!!  

Allavega.  Það eru víst til allskonar plástrar.  Orkuplástrarnir svínvirka og gefum Bjarna Guðjónssyni orðið.

Ég hef fundið mun á orkunni hjá mér og verð minna þreyttur með plástrana“.  Ok, hann skilgreinir reyndar ekki hugtakið orka en hann verður allavega minna þreyttur. Og það er ekki nóg með að hann noti orkuplástrana heldur eru sko til fleiri týpur á póstlistanum…. Í greininni kemur nefnilega fram að “ hann spilar með orku- og liðleikaplástra en hægt er að fá alls konar plástra, meðal annars til þess að sofa betur og jafnvel grennast“.  

  Já, ég hugsa að margir skildu vilja vita hvernig þessir “liðleikaplástrar” virka.  Og auðvitað.  Auðvitað.  Auðvitað hafa plástragaurarnir hugsað fyrir plástrum sem láta fólk grennast.  Hvað annað. Enda stefna þeir ótrauðir á Ameríkumarkaðinn með þetta.   Honum finnst kannski plásturinn hjálpa meira heldur en segularmbandið sem hann keypti sér í fyrra.  Þó ber að geta þess að hann hefur greinilega ekki notað plásturinn lengi ef rýnt er í Bjarna beran á ofan á myndinni.  Þetta þarf kannski að byggjast upp í kroppnum áður en þetta byrjar að virka.?

EN áfram um plástrana góðu.  Fram kemur hjá Bjarna að “hann setur plástrana annað hvort á bringuna eða fæturna á sér“.

  Já, þetta eru svo öflugir plástrar að maður getur meiraaðsegja ráðið hvar maður setur þá.  Spurningin er hvort hann setji þá á skotfótinn svo hann fái meiri “orku” í skotin.  Maður gæti jafnvel prófað að setja hann á liminn, hvað ætli gerist þá?  Endalaus orka.   Spurningin er bara hvað gerist ef maður setur hann á hausinn á sér. Það kæmi mér nefnilega verulega á óvart ef framleiðendurnir væru ekki búnir að þróa svona “einbeitingarplástra” eða “kvíðaplástra”. 

En afhverju stoppa þar ?  Af hverju ekki bara fara alla leið og þróa “gáfnaplástur”.  Sem maður setur að sjálfsögðu á “heilastöðina”.   

En snúum okkur því næst að honum Jónasi, hinum Keflvíska fyrirliða Kr-inga. 

Ég finn fyrir smá orku þegar ég er með plástrana. Samt ekkert sem ég hef tekið mikið eftir. Þetta er ekkert eins og að fá vítamínsprautu,” segir Jónas Guðni, sem hefur spilað með þessa plástra í síðustu tveim leikjum.  

Jú, hann finnur fyrir smá orku en í næstu setningu segir hann samt að hann hafi nú varla tekið eftir því.  Ok, ekki beint rökfræði að hætti Aristótelesar en virkar samt.  Og þetta er ekkert eins og að fá Vítamínsprautu.  Allir vita nú að vítamínsprautur gefa mikið “kick” enda er Bvítamín í rasskinnina ákaflega örvandi.  Akkurat þessvegna er stuldur á B og C Vítamíni úr apótekum gífurlega mikið vandamál þar sem fíklar sækja mikið í þessi “örvandi efni”.  

Svo heldur Jónas áfram. Ég fór á fyrirlestur og varð hrifinn. Það er ekkert í þessu sem á að fara inn í líkamann en á samt að hjálpa manni” .

  OK.  Þetta fer semsagt ekki inn í líkamann en fer samt eiginlega inn í líkamann, ekki satt.  Því ef þetta hefur engin áhrif á líkamann þá ætti það að hafa álíka áhrif eins og Hello Kitty plástur hefur á sáragróanda dóttur minnar, ekki satt?

En. Svo kemur gullna setningin sem hefur væntanlega verið endurtekin og endurtekin og endurtekin á þessum frábæra fyrirlestri.   Nefnilega “þetta eru bara vísindi og ekkert annað“.  

 Nema hvað.  Frábær útskýring.  Svona eins og einhver spyrði mig, jæja, hvernig virkar nú þessi meðferð sem ég er að fara í ?  Og þá svara ég bara, “jú, þetta eru bara bullandi vísindi , skilurðu….”

Þetta örvar nefnilega rafsegulsvið líkamans.  Hmm, hljómar kunnuglega.  Og svo kemur alveg frábær skýring frá gaurnum sem eru að selja þetta, jú, að sjálfsögðu vísindaleg skýring :

Þetta er lokað kerfi. Það eru engin efni, krem eða lyf sem fara inn í líkamann sjálfan heldur eingöngu tíðni. Þessi tíðni verður til við sambland sykurs, súrefnis og blöndu af amínósýrum sem eru inni í plástrinum. Það er í raun og veru bara hómópata-remedíur. Þetta eru náttúruleg efni.”  

  Ok, reynum að skilja þetta aðeins.  Þetta eru náttúruleg efni, jafnvel hómópatísk efni en í sömu setningunni kemur fram að það eru engin efni sem fara inn í líkamann.  Þetta snýst bara um tíðni (þið munið, rafsegulbylgjurnar).    Samt er personal favorite þetta með “lokaða kerfið”.   Kannski hoppaði maður yfir margar blaðsíður í bókunum á sínum tíma en hvaðan í fjandanum kom þetta lokaða kerfi?    Alger schhnilld !!

Og það besta er að hann er svo ósvífinn að dissa svo sjálfa nefplástrana og segir að þetta sé sko ekkert svindl eins og nefplástrarnir, þetta er jú vísindi. 

Já, Keizarinn skilur þetta allavega ekki.  Sennilega er ég bara ekki nógu klár. EN þetta var allavega skemmtileg frétt.  Vonum svo bara að plástrarnir fjúki ekki af í rokinu í Grindavík í kvöld.


Húsfélagsfundurinn- total sigur

May 13, 2009

Þarsem ég var í svona blogghléi þá eru nokkrir atburðir sem ég á eftir að fjalla um.  Þar á meðal húsfundurinn.  Þetta eru fundir sem eru haldnir árlega og hafa verið svona álíka skemmtilegir og Indiana Jones 4.   Þetta hafa hingað til verið 2klst af lífi mínu sem ég fæ aldrei til baka. 

Nú, varðandi húsfundinn.  Það var aldrei þessu vant spenna í lofti.  Málið er að það er svona grænt svæði í miðju hverfinu.  Mikið hefur verið rætt um hvað eigi nú eiginlega að gera við þetta græna svæði.  Keizarinn hefur reynt að hafa áhrif á fólk á þá leið að það eigi sko barasta ekki að gera neitt.  Henke, granninn við hliðina er mér algerlega sammála.  Málið hefur reyndar verið með Henke að hann finnur sér alltaf einhverja afsökun til að mæta ekki á fundina. 

Jæja, aftur að “slaget om gröna ytan” eins og ég kalla það.  Það var nefnilega pínu órói í lofti.  Menn höfðu komið með ýmsar hugmyndir.  Ein hugmyndin var að setja upp bekki og stóla og jafnvel útigrill.  Mjög fín hugmynd fyrir fólk sem býr í Æsufelli og hefur engan garð en hérna eru allir með garð þannig að Keizarinn taldi að þarna kæmu nú bara dópistar á kvöldin til að sprauta sig. Eða þá unglingar sem skilja eftir smokka. 

  Hugmyndin kom frá eldriborgurum sem búa þarna og eru með einhverjar óraunhæfar hugmyndir um að allir geti verið þarna sem ein fjölskylda.  Ég og Henke, og reyndar E-man líka, vorum mjög mótfallnir þessarri tillögu. 

Svo var önnur hugmynd um að gera smá hól sem hægt væri að nota sem snjóbrekku og svo setja rólur.  Rólur.  Þar sem þetta er beint fyrir utan minngarð þá er það síðasta sem Keizarinn vill að krakkaskríll fari að safnast í rólurnar fyrir utan garðinn minn.  Fyrir utan að dópistarnir sækja í rólur, það vita allir. 

Síðasta tillagan fjallaði um að gera bílastæði.  Sú tillaga kom ekki frá Keizaranum eins og menn hefðu geta haldið, heldur frá skrýtna gaurnum í götunni sem ég hafði alltaf haldið að væri græningi.  Gengur um í flísfötum og er alltaf eitthvað að vinna í skúrnum sínum sem hann hefur byggt í garðinum.  Hvernig honum datt í hug að malbika yfir gras veit ég ekki en ég sá mest eftir að hafa ekki fengið hugmyndina sjálfur. 

Síðasta tilllagan var svo bara að gera ekki neitt við svæðið sem mér finnst alveg frábær hugmynd.  Hafa þetta “soldið náttúrulegt”……

Nú, ég mætti undirbúinn á fundinn, með snusið í vasanum og fór meiraaðsegja í leðurjakkann minn.  Bankaði svo uppá hjá Henke og ætlaði að fá hann með mér en hann kom bara glaðhlakkalegur með einhverja afsökun um að hann gæti bara því miður ekki mætt. Kenndi konunni sinni um það.  Ég vissi nú betur.  Fyrst að Henke kom ekki þá var ég að pæla í að mæta vopnaður en hætti svo við.

Í stuttu máli þá náði ég á alveg ótrúlegan hátt að hleypa upp fundinum. Það var svo mikil snilld að ég trúi því vart sjálfur.  Hérna kemur sagan..

Nú er komið að atkvæðagreiðslunni og þá fóru menn nú að ræða þetta áður en gengið yrði til atkvæða.  Gamlingjarnir báðu um orðið og sögðu að þau væru aðeins búin að breyta tillögunni sinni og væru nú með hugmyndir um alveg miklu flottari borð (minntust samt ekkert á dópistana).  Þá kom gaurinn með brekkuhugmyndina með þá hugmynd að maður gæti jafnvel bara kosið báðar tillögurnar og sameinað þetta eitthvað.  Það væri svona túlkunaratriði hvernig þetta yrði samnýtt og hvernig þetta yrði útfært.

Þarna var tækifærið komið.  Ég tók til máls.  Virkaði bæði pirraður og reiður og var bara býsna sannfærandi.  Sannfærði næstum því sjálfan mig.  Ég sagði að svona gengi ekki.  Það væri búið að leggja fram tillögur sem menn hefðu getað kynnt sér fyrir fundinn (hafði blaðað í gegnum þetta) og eftir þeim forsendum væru menn að kjósa.  Svona hugmyndir sem væru nú að koma fram nokkrum mínútum fyrir atkvæðagreiðsluna væru fáheyrðar og gerðu það að verkum að það væri ekki hægt að láta kosninguna fara fram þarsem forsendurnar væru brostnar.  Það væru engir skýrir kostir lengur þar sem fólk væri farið að breyta tillögunum. 

  Bang, hitti beint í mark.  Sá að fólki brá.  Formaðurinn panikkeraði og fólk fór að ræða þetta.   Jú, valkostirnir verða auðvitað að verða skýrir.  Það er alveg rétt.  Það er ekki hægt að hafa þetta svona..      Þetta endaði eftir svolitla taugaveiklun með því að kosningum og þarmeð ákvörðuninni um hvað eigi að gera við græna svæðið var frestað.  Ég bara hallaði mér aftur í sætinu og naut augnabliksins.  Þvílík snilld.  Gamlingjarnir fóru í alveg þvílíka fýlu og sendu mér illt augnaráð sem ég bara svaraði kalt til baka.  Ég get alveg fullyrt að Keizarinn var ekki vinsælasti maðurinn í salnum á þessu augnabliki.

 Restin af fundinum var svo alveg alltilagi. Ég þurfti sko ekki að hafa neinar áhyggjur yfir því að vera kosinn í eitthvað embætti núna þar sem ég var orðinn svo óvinsæll.  Erfiður maður.    E-man kosinn í uppstillingarnefnd með öllum atkvæðum nema Keizarans. Mér fannst það eitthvað fyndið. Hann var sá eini sem var kosinn í stjórnina sem var ekki kosinn með samhljóða atkvæðum!!!     Hann rauk út í fússi eftir fundinn sem mér fannst reyndar bara soldið töff hjá honum.

Annað markvert af fundinum var að Alexander, hinn armenski leigubílstjóri götunnar var kosinn nýr í stjórn.  Maður einfaldlega kýs ekki á móti armenskum leigubílstjóra, þið vitið,  mafían og allt það.  Svo fyrir utan það þá er hann einhver mesti drykkjutankur sem ég hef nokkurn tímann hitt.  Hann er svona týpan sem er alíka fullur eftir 6sterkja heimabruggaða serbneska ávaxtasnafsa eins og 14ára krakki er eftir að hafa drukkið pilsner á skólaballi.  Enginn heilvita maður drekkur á móti svona manni.

Í lok fundsins komu svo gömlu hjónin með fyrirspurn um hvort einhver af okkur væri til í að vera með í svona stýrihóp fyrir hverfið og hverfið við hliðina sem er svona arabískt glæpahverfiswannabe.  Ég var nú að spá í að standa upp og lýsa því yfir að ég hefði sko engan áhuga að starfa í þessu félagi og réttast væri nú bara að láta arabana sjá um sig sjálfa, en hætti svo við.  Það hefði verið eins og að sparka í gamlingjana og síðan stíga ofaná þau eftir á.  Svo lauk fundinum. 

Alltíeinu datt mér í hug hvort yrðu læti á leiðinni út.  Keizarinn var allavega ekki vinsælasti maðurinn þarna í herberginu.  Á leiðinni út gekk alltíeinu gamli kallinn hratt í áttina að mér  og mér datt alltíeinu í hug um að hann ætlaði hreinlega að berja mig.  En þá var hann bara að flýta sér heim. 

Þar var hann  heppinn þar sem ég hefði sko getað tekið hann. Samt ekkert kúl við að lemja eldriborgara, hefði kannski í mesta lagi hrint honum í vegg eða eitthvað.

Allavega. Total sigur Keizarans. Góður fundur og langt síðan ég hef skemmt mér eins vel á húsfélagsfundi. Góðar stundir.