Ég er kominn með gesti í garðinn. Undanfarið hefur Keizarinn orðið var við aukinn fjölda geitunga í garðinum. Einhvernveginn velti ég þessu ekkert fyrir mér fyrr en um daginn.
Geitungar eru fylgifiskar sumarsins. Maður verður allavega að bera smávegis virðingu fyrir þeim. Þeir ráðast á mann á harðan og kúl hátt. Bara beinskeitt árás. Up front. Ef þeir taka ákvörðun um að ráðast á þig þá ertu kominn í bardaga og þá ert það einfaldlega þú eða þeir. Mýflugurnar eru nefnilega verri. Þær vega úr launsátri. Munurinn á mýflugum og geitungum er soldið eins og Karpov og Kasparov voru á sínum tíma í skákinni. Á meðan geitungurinn gerir villta árás á þig, þá eru mýflugurnar eins og Karpov. Lulla um í loftinu, þreyta þig, bíða eftir að þú verðir kærulaus og þá gera þær atlögu og þú sérð þær aldrei koma.
Allavega. Ég hef á hugvitssaman hátt náð að koma allavega tveimur geitunum fyrir kattarnef í sumar. Geitunga reyni ég nefnilega oftast að drepa. Bæði vegna þessa “þú eða þeir” hugsunarháttar, og einnig vegna þess að Keizarinn situr endalaust undir ámæli frá konunni um að hann sé í raun hræddur við geitunga sem er að sjálfsögðu alger della.
Annan geitunginn fann ég í húsinu. Ég beið eftir því að hann var í dauðafæri,notaði eiginlega Karpov-aðferðina, svo spreyjaði ég á hann hárspreyi (einhverntímann las ég að hársprey á geitunga gerði það að verkum að það þyngdi vængina svo að þeir gætu ekki flogið) og þegar ég var búinn að immobilisera hann, þá veitti ég honum banahöggið með dagblaðinu mínu, helgarútgáfunni. Sá seinni fékk enn flottari afgreiðslu. Þá var Keizarinn úti á palli að grilla hamborgara, með spaðann í hendinni sem ég nota til að snúa hamborgurunum. Þá ræðst geitungur til atlögu við mig. Ég sló til hans með spaðanum, náði þessu ótrúlega “home-run” höggi þannig að hann þeyttist beint inn í gasgrillið og steiktist á nanósekúndu. Þetta fannst mér flott.
En þá er komið að aðalatriðinu. Ég hef nefnilega komist að því að flestir þessara geitunga fara niður milli tveggja spýtna á pallinum mínum. Er nánast öruggur á því að þeir eru með bú undir pallinum. Hvað er þá til ráða ?
Það er eitt að vera töff og harður mano a mano en annað að ráðast á sjálft móðurskipið. Ég spurði því þúsundþjalasmiðinn hann E-man hvað ég ætti að gera. Jú, hann lagði til að ég myndi nota frostlög. Þá setur maður frostlög í skál fyrir utan. Geitungarnir sækja í sætu lyktina og bera það með sér í búið og allir drepast. Mér sýnist þetta ekki að virka og einu sem sækja í frostlöginn hafa endað þar sína ævidaga. En ekki geitungarnir. Aðrar saklausari lífverur eins og köngulær, þannig að nú er ég sennilega kominn á dauðalistann þeirra líka. Ég held að geitungarnir viti hvað ég er að bralla.
Þá spurði ég í vinnunni. Ortopedana. Hefði eiginlega ekki átt að gera það. Þeir sögðu að ég yrði að taka þennan slag, þetta væri sko ekkert mál. Meindýraeyðar væru bara fyrir gamlar konur. Ráðlögðu engan frostlög en sögðu að eina sem ég þyrfti væri skrúfjárn, svartur ruslapoki, hlífðarfatnaður og alkohól, til að drepa og uppræta búið. Ég þarf að lyfta upp spýtunum, koma búinu að óvöru og reyna að ná því í svarta ruslapokann. Alkohólið hugsuðu þeir ekki fyrir geitungana heldur mig. Þeir töldu best að ég gerði þetta þegar ég væri búinn með svona 2starköl þannig að ég yrði nú tilbúinn í slaginn.
Er að hugsa um að ráðast til atlögu um helgina. Held ykkur öppdeituðum.
June 11, 2009 at 11:41 am |
Mér fannst þú reyndar messt cool þegar þú stakkst geituningin miðjan með hnífnum
Það er rétt sem vinir þínar á spítalanum segja verður að ráðast á þetta, en þú verður að gera þetta frekar seint um kvöld, annað sem þú skalt líka fá þér er eitthvað gott flugnabana til að úða yfir herlegheitin.
June 12, 2009 at 12:55 am |
Ný hugmynd: Losa upp spýturnar, láta geitungana jafna sig aðeins. Svo þegar kvöldar þá mætir þú með gangstéttarhelluna…
June 13, 2009 at 9:30 am |
Eða jarðbundna sænska leiðin: hringja í tryggingafélagið og segja frá óhýrunni. Þeir senda mann með gasgrímu og umhverfis- og fjölskylduvænt eitur sem slær út geitungahjörðina á svipstundu. Á meðan getur maður slappað af í sólinni (rigningunni) og drukkið léttöl.
June 13, 2009 at 10:28 pm |
Ésús! Þetta verður epísk barátta góðs og ills! Ég bíð spenntur eftir öppdeiti af stríðinu við hryðjuverkaflugurnar. Spái fullnaðarsigri keizarans, en þó ekki án fórna. Hvers konar hlífðarfatnað erum við að tala um?
June 14, 2009 at 7:37 am |
Ég var að spá í að taka með græjur úr vinnunni. Svona plasthlíf sem er fyrir öllu andlitinu, húfu þar yfir, KR-úlpuna (þykk) og víðar buxur. Er að spa í að leggja til atlögu í kvöld eða á morgunn.
June 14, 2009 at 11:26 am |
Og bæþevei, þetta er svo epísk barátta að ef það verður gerð mynd um þetta þá yrði örugglega Keizarinn leikinn af Kevin Costner……..
June 14, 2009 at 12:00 pm |
Yrði myndin kannski kölluð “dances with wasps” ???
June 16, 2009 at 12:07 pm |
Vaaaaaaaá það er mynd sem ég myndi fara á. Epík