Mladic hress á kantinum

Eins og margir vita þá er Keizarinn mikill áhugamaður um þá kumpána Karadzic og Radko Mladic.  Hvað sem mönnum finnst um þá, þá finnst mér alltaf mjög merkilegt þegar menn geta algerlega horfið sporlaust og enginn finnur þig, nú á þessum tímum hátækninjósna.  Það er eitt að pönkast með segulbandsspólu í einhverjum helli í Afganistan en við erum að tala um Evrópu.  Hvet ykkur annars til að fara á Google earth og skoða Afganistan og þá sjáiði hvað ég er að tala um. 

Karadzik fannst auðvitað um daginn og var fjallað um það á síðunni.  Hann fór í dulargervi og fór svo bara að lifa daglegu lífi aftur.  Alveg óendanlega kúl.  En málið var að Mladic var alltaf svali gaurinn í þessu tvíeyki. 

Enginn finnur Mladic.  Málið er að hann var víst gífurlega virtur herforingi og og virðist það hafa hjalpað honum mikið.  Hefur sambönd útum allt.  Þrátt fyrir þessa atburði í stríðinu þá var víst Mladic kallinn aldrei talinn neinn geðsjúklingur.  Hann var hinsvegar frábær hernaðartaktíker, virtur á því sviði  og það skilaði serbunum árangrinum á sínum tíma, svo fór að halla undan fæti.

Svo birtast þessar myndir.  Kallinn bara á lífi, kampakátur klappandi smábörnum og vantar bara að hann sé að klípa í rassa.  Nógu hress er hann.  Serbar hafa fullyrt að þetta séu gamlar myndir.  Einmitt, síðan hvenær urðu upplýsingar þaðan áreiðanlegar??

 Hinsvegar held ég að Mladic verði ekki handtekinn í strætó, mótþróalaust.  Þú þarft að fara í gegnum nokkur buff þangað til þú nærð kallinum.

One Response to “Mladic hress á kantinum”

  1. Tengdó Says:

    já sæll…….

Leave a Reply