Ahhhh, ljúfa líf, ljúfa líf. Keizarinn var settur á bakvakt um helgina. Það er nokkur nýlunda fyrir Keizarann þar sem maður er vanur að pönka af sér rassinn á gólfinu á vöktunum. Þetta er náttúrulega næsta trappa fyrir ofan.
Get ekki annað sagt að þetta venjist vel. Koma inn af og til en annars að dúlla mér heima með símann tilbúinn á kantinum. Og svo er þetta góður fílingur….
Hvað varðar geitungana þá er það seinna í kvöld eða á morgunn. Ákveð það seinna í kvöld. Held ykkur öppdeituðum. Ekki alveg búinn að forma planið nákvæmlega en hef ákveðið að láta þetta heita – ”Áætlun – Geitungabú burt” að hætti mörgæsanna úr Madagascar. Er soldið heitur fyrir hellunni eins og E-man kom svo snilldarlega með en veit samt ekki. Samt ljóst að enginn mun sleppa lifandi úr búinu. Þarf að hugsa þetta betur.
Návígisbardagar hefðu venjulega verið sérgrein Keizarans ( eins og Besserwisserinn getur vitnað um) en þetta er soldið annað. Læt ykkur vita um framhaldið.
June 14, 2009 at 6:51 pm |
Bíð spenntur eftir að heyra hvernig gengur
June 15, 2009 at 10:16 am |
Helluna! Helluna! Helluna!!!