Ronaldo, enn og aftur………..

Jæja, þá er Ronaldo farinn til Madrid.  Reyndar hefur hann ekki getað tjáð sig mikið um málið þar sem hann er upptekinn í USA að drekka kokteila og reyna að sannfæra heiminn um að hann sé ekki hommi. 

Hann hefur t.d. leigt sér Paris Hilton til að vera með sér í þessu.  Paris hefur einmitt lýst því yfir að hún sé svona daðrari en menn fái lítið hjá henni.  Keizaranum finnst engin ástæða til að rengja stúlkuna, enda stúlkan alveg þrælvönduð.

Þessvegna er alveg pottþétt plan að fá hana Paris með  sér í þetta og þetta er náttúrulega þekkt meðal samkynhneigðra manna að láta tengja sig við hinar og þessar stelpur.  Þetta verða svo einhver sambönd sem verður ekkert úr.  Skothelt plan!   Þessi endurteknu stuttu sambönd gera svo það að verkum að enginn tekur eftir samkynhneigð mannsins heldur verður hann þvert á móti álitinn alveg rosalegt kvennagull og töffari af Guðs náð sem fleygir notuðum stelpum frá sér eins og skítugum nærbuxum. 

Persónulega finnst mér að Ronaldo ætti nú bara að hætta þessum feluleik. Það er öllum ljóst að maðurinn er bullandi hommi. Held nú bara að Man Utd menn ættu nú bara að verða glaðir yfir að maðurinn sé farinn og ég held að Real geri sér varla grein fyrir þvílíkan vandamálapakka þeir eru að fá.

En það þýðir auðvitað ekkert að vera með einhverja sleggjudóma. Þessvegna hef ég ákveðið að leggja fram nokkur sönnurnargögn.   Lítum á nokkrar myndir…………


Sönnurgagn A. Það er nokkuð ljóst að enginn alvöru karlmaður myndi setja blóm í hárið á sér.  Hvað þá bleikt !   Keizarinn gerði það ekki einu sinni í samkynhneigðasta Eurovisionpartíi sem haldið hefur verið.    Og hvað er málið með bleiku derhúfuna ?   Og svo auðvitað eyrnarlokkar.  Eyrnarlokkar eru nefnilega bara fyrir stelpur og Billy Idol.   

 

Sönnurgagn B.   Ef maður er yfirhöfuð í þessarri múnderingu, lætur maður þá einhvern kall vera að laga skyrtuna á sér?  Jú, kannski pabbi manns fengi að gera það ef maður væri 12ára en þetta er alveg greinilega einhver gamall saurlífsmaður sem Ronaldo hefur væntanlega pantað á netinu.  Strax kominn á geirvörturnar á honum og ef grannt er skoðað, þá er litli ofurstinn hans Ronaldos kominn í viðbragðsstöðu, svo notaleg þykir honum snertingin.

Sönnunargagn C.   Karlar gráta ekki.  Allavega ekki opinberlega.  Aldrei.  Mögulega ef þú færð spark í eistun eða ef konan manns hellir niður öllum bjórnum þínum en þetta var einfaldlega too much.  Enda sér maður svipinn á Scolari.  Hann lét sig fljótlega hverfa til Chelsea.   Honum finnst ekkert skemmtilegt að ná í tissjú handa leikmönnunum sínum.  

 

 Sönnunargagn D.  Hver pósar svona og er með sokka undir peysunni svo pectoralarnir sjáist betur?   Og önnur spurning.  Hvernig er eiginlega hægt að fara í svona þröngan bol án þess að hann rifni ?    EN lokaspurningin er, hverskonar karlar eiga svona þröngan bol ?

 

Sönnunargagn E.   Antonios Nikopolidis er einn af eilífðartöffurunum í bransanum.  Hinn gríski George Clooney hefur hann verið kallaður.  Stundum líka svar Grikkja við Keizaranum.  Hann veit eitt og annað.  Sjáiði svipinn á honum þarna?   Hvað veit Nikopolidis?  Hann er greinilega búinn að koma við Ronaldo þarna rétt áður.    Er olíuhárið á Ronaldo búið að eyðileggja gripið á hanskanum ?  Finnst honum komin viðbjóðsleg ilmvatnslykt af hanskanum ? Eða, er hann að velta fyrir sér hverjar smitleiðir HIV séu  ?

Sönnunargagn F.  Ronaldo í sólbaði.  Venjulegur karl myndi nú bara slaka á með bjór.  Og ef…. maður skildi fá sér fótanudd þá fær maður allavega ekki karlmann til að nudda sig.  Kannski til að operera fótinn, jú, en aldrei til að nudda.  Það myndi Keizarinn aldrei gera.  Mjög vafasamt. Svona svipað og þegar maður fer í klippingu.  Keizarinn myndi aldrei láta karlmann klippa sig.  Aldrei.    En sumir karlmenn virðast nú fíla þetta.  Við vitum hverjir það eru…………

 

 

 Sönnunargagn G.  Hér er aðeins liðið á nuddið.  Hiti farinn að færast í leikinn.  Þetta er nú, held ég, svona gamalt graðnaglatrikk þegar verið er að nudda að beina nuddaranum inn á suðrænu svæðin og hefur reynst mörgum happadrjúgt.  Kallast stundum tælenskt nudd.   Þarf ég eiginlega að segja meira?  Myndin talar eiginlega fyrir sig sjálf.  Nuddarinn er hér orðinn mjög einbeittur á svipinn og greinilega í miklum hugareikningi yfir hversu mikið greiðslan fyrir nuddið sé nú að hækka……

Sönnunargagn H.  Lokasönnunargagnið.  Sjáið klæðaburðinn.  Armbandið fer honum óneitanlega vel.  Það vantar bara smávegis gloss og naglalakk.  Æjá, það er náttúrulega í þessarri fínu snyrtitösku.  Já, hann á svona snyrtitösku eða réttara sagt veski sem hann gengur með.  Þarf að segja meira ? 

Góðar stundir.  Við skulum nú þakka honum Ronaldo kærlega fyrir alla skemmtunina sem hann hefur fært Keizaranum hin síðari ár og innblásturinn í alla pistlana.    En stóra spurningin er, hvernig verður rekstrarhagnaður hárvörufyrirtækja norður-Englands á næsta ári ?   Og hvað verður eiginlega um fylgdarþjónustuna í Leeds ?

10 Responses to “Ronaldo, enn og aftur………..”

  1. Tengdó Says:

    Ekki klikkar keizarinn frekar en venjulega, held ég fari að trúa því að það sé eitthvað gay við Ronaldo, hef auðvitað neitað því staðfastlega hingað til þar sem hann var hjá ManU…. verð að koma með eina athugasemd, það er ekkert gay að láta karlmann klippa sig….

    ps. hvernig gengur með geitungabúið

  2. Zetan Says:

    Þakka góða greiningu en Keizarinn nefnir aldrei þessu vant ekki það sem gæti verið úrslitaatriði! Hefur þessi ágæti kappi ekki farið í vaxmeðferð eða dúllað sér með raksköfuna í sturtinni? Þrátt fyrir takmarkaða upplausn á myndunum sé ég ekki betur en að það vanti / sé búið að taka öll hár af honum fyrir neðan neðri augnlok!! Þetta gæti verið skiljanlegt ef kappinn væri þekktur fyrir sundfimi eða götuhjólreiðar (no comment requested!) en gefur honum varla forskot í fótboltanum. Hvað finnst Keizaranum um þessa kenninguj?

  3. E-man Says:

    Nærvera Ronaldo hjá Man U skýrir eflaust “meiðsli” Neville-systurinnar sem eftir er. Nú loksins ná analfissururnar að gróa og kannski systirin hætti að þykjast vera meidd!

  4. besserwisser Says:

    Þetta er svakalegasti analýseringarpóstur hingað til hjá keizaranum. Mikið var ég ánægður þegar grátmúrinn sá arna var seldur til Real Madrid. Það er nefnilega öllum sama um Real Madrid. Allir stóru gaurarnir sem fara til að spila þarna hverfa úr fréttum, verða eins og lifandi draugar. Nefni Owen, Beckham og fleiri sem dæmi. Nú getum við loksins losnað við þetta gerpi úr fréttunum og af fótboltaskjánum.

    Varðandi götuhjólreiðamenn þá hefur Zetan misst út úr sér mikilvægar upplýsingar hér að ofan. Fáum við nánari skýringar á því? hmmm? hmmmmmmmmmm?????

  5. Keizarinn Says:

    Sko, fyrir það fyrsta, þá er alveg pottþétt að hann hefur farið í vaxmeðferð. Vaxtarræktarmenn raka með sköfu, aðrir fara í vax…..
    Svo hef ég tvær spurningar fyrir Zetuna. Í fyrsta lagi, hvað eru NEÐRI augnlok, og í öðru lagi, götuhjólreiðar……..

  6. E-man Says:

    Einmitt!!! Við krefjumst skýringa frá Zetunni!

  7. E-man Says:

    Hvað er annars að frétta af geitungunum?

  8. Tengdó Says:

    http://stormsker.blog.is/blog/stormsker/entry/895918

    hæ, kíktu á þessa grein, nokkuð góður Stormsker.

  9. Zetan Says:

    Þessi umræða um hárleysi Ronaldos hefur snúist í óvænta átt. Nú hafa þrír aðilar sem samkvæmt bestu upplýsingum eru allir karlar, óbeint gefið í skyn að það sé hið besta mál fyrir karlmenn að fara í total body vaxmeðferð. Sjálfur Keizarinn skrifar “aðrir fara í vax..”. Hvað er þetta eiginlega, hvað leynist undir nærbolunum ykkar?
    Hjólreiðamenn hafa talið sér trú um að hárleysi á leggjum (eingöngu) minnki loftmótsstöðu (!!) og auðveldi sáraumbúnað við byltur (sennilega rétt) og þykir leggjarakstur því almennt hið besta mál. Zetan á árangursríkan en stuttan keppnisferil að baki og hefur þar með löglega afsökun. Enginn annarra álitsgjafa síðunnar á sér slíka afsökun og því skilja þeir Zetuna eftir með óvænta og óþægilega tilhugsun…. .

  10. E-man Says:

    Enginn sannur karlmaður vaxar sig, óháð því hvort þeir hjóla eða ekki!

Leave a Reply