Midsommar

Í dag er komið midsommar.  Svíarnir eru með soldið raunhæfara mat á sumrinu en við, sem er í raun merkilegt þar sem sumrin eru betri hér en á Íslandi.  Á Íslandi er sumardagurinn fyrsti í vor en hjá Svíunum byrjar sumarið á midsommar.  Allir eru nú að óska hverjum öðrum gleðilegs sumars. 

Svo er þetta fyndin tradition hjá þeim.  Fjölskyldan hittist, borðað úti og svo er drukkið og snafsað sig.  Svo kemur það virkilega fyndna.  Þeir syngja og dansa í kringum stöngina.   Þessa auglýsingu fann ég á youtube með hjálp Zetunnar og er í raun IKEA auglýsing.  Hvað þeir voru að auglýsa veit ég ekki en þetta sýnir sænska rednecks í essinu sínu á midsommar.

Það rignir að sjálfsögðu í dag og í gær rigndi alveg rosalega.  Enda var Keizarinn á bakvakt.  Það virðist alltaf rigna þegar ég er á bakvakt.  Greinilegt hvern máttarvöldin styðja. 

Gleðilegt sumar.

Leave a Reply