Geitungabúið mitt undir pallinum hefur valdið mér vaxandi kvíða undanfarna daga. Þeir höfðu búið um sig í horninu, einmitt þar sem er hvað notalegast að sitja úti á góðu kvöldi. Umferðin hafði snaraukist undanfarið þannig að þetta var í raun orðið að stóru vandamáli þar sem þetta var farið að hafa áhrif á hina Keizaralegu brúnku.
Allavega. Ég sá hvar þeir fóru lymskulegir milli tveggja spýtna í pallinum þannig að ég taldi mig vita hvar þeir voru. Fyrsta tilraun var að eitra fyrir þeim, svona eins og ensk sveitafrú myndi gera við kallinn sinn….

Hérna sést hinn laumulegi diskur með frostlegi. Hugmyndin var að þeir myndu sækja í lyktina, koma við og fá sér smakk og fara svo heim. Þetta mistókst hrapallega.
Þá fór Keizarinn á stjá eitt kvöldið. Klæddi mig almennilega upp og það vantaði hreinlega bara eldflaugavörpuna á mig til að vera klæddur eins og hryðjuverkamaður. Ég losaði allar spýturnar frá og opnaði mjög róóólega. Ekkert gerðist, enginn réðst á mig en ég sá glytta í búið, alveg úti í horni. Þá varð mér ljóst að ég þyrfti hjálp. Og þvílík hjálp. Það er þá sem þýski tortímandinn kemur til sögunnar…….
Málið er að ég var að ræða þessar ógöngur mínar við morgunverðarborðið niðri í vinnu. Þá víkur sér að mér einn vinnufélaginn, sem er svona týpa sem flestir yngri kollegarnir eru skíthræddir við, en vill svo heppilega til að hann hefur eitthvað dálæti á Keizaranum þannig að Keizarinn fær yfir höfuð að ávarpa hann. Hann sagðist oft hafa tekið geitungabú. Hann gæti jafnvel hjálpa mér við þetta. Alltíeinu varð mér ljóst að þetta væri lausnin. Harðskeyttur Þjóðverji sem var svo mikill specialisti að hann var meiraaðsegja með eigin græjur. Þar sem ég hef séð í myndum að svona menn vilji yfirleitt fá borgað fyrir kill, þá bauð ég honum í staðinn greiða á móti. Þá lagði hann til að ég myndi hjálpa honum að setja upp mastrið í bátnum hans í staðinn. Góður díll.
Svo kom símtal í dag. Þjóðverjinn. “Verð kominn eftir 5mínútur”. Hann var í ham og fór beint út í skott til að ná í græjurnar. Búinn að æsa sig upp. Eftir stutta, hárnákvæma, þýska athugun þá taldi hann að geitungabúið væri inni í veggnum. Þá var ekkert eftir nema að rífa í burtu nokkrar spýtur. Eftir að Keizarinn hafði gefið grænt ljós, þá hreinlega réðst Þjóðverjinn á vegginn og eftir nokkrar sekúndur lágu 2spýtur á pallinum. Þá kom búið í ljós.
Sjálft drápið var snilld. Hann dró upp bensín í sprautu með langri nál. Svo rak hann sprautuna inn í búið og sprautaði bensíni beint inn. Þetta var víst til að “svæfa” geitungana. Þegar þarna var komið sögu þá voru 2-3geitungar sveimandi í kringum hann en hann lét það ekki raska einbeitingunni eina sekúndu. Svo fékk hann lánaðan borðfót og þrusaði honum beint á búið og stappaði það í mauk. Eftir það þá sprautaði hann eitrinu yfir. Þar með er sögu geitungana lokið að sinni. Semsagt gereyðilegging á nokkrum mínútum.
Þegar við skoðuðum innvolsið kom í ljós ákaflega ógeðsleg sjón. Þarna voru eins og hólkar, svona 50lirfur, ready to go. Þjóðverjinn sýndi mér þetta og eftir að konan hafði fengið að skoða þetta líka þá tók hann þær líka af lífi.
Svo fórum við í bátinn. Á leiðinni hringdi síminn hans. Konan hans. Heyrði hann heilsa og svo spyr greinilega konan hvernig hefði gengið. Það var eiginlega það besta……
“Alles ist tot” – var svarið. Þannig er það. Keizarinn er reyndar í afar góðum málum núna þar sem við vorum mjög lengi að masta bátinn hans þannig að þegar hann skutlaði mér heim þá tilkynnti hann mér að nú skuldaði hann mér greiða þar sem þetta hefði tekið svo langan tíma. Ekki ónýtt að eiga svona mann í bakhorninu. Hér koma nokkrar myndir af verkinu.

Árásin hafin. Nú mega geitungarnir byrja að vara sig. Tortímandinn er mættur á svæðið og tekur stöðutékk.

Hérna sést að spyturnar eru farnar. Geitungabúið var þarna neðst í horninu. Lymskulegir þessir geitungar. En þeir vissu ekki hvað þessi sunnudagur hefði í för með sér.

Tekið úr hinni stóru fötu Þjóðverjans. Þarna eru leyfar búsins. Takið eftir “skotfærabeltinu” lengst uppi til hægri. Þetta er hluti lirfanna sem við sáum. Frekar ógeðslegt.
June 21, 2009 at 9:47 pm |
Dr. Leifsson óskar Keizaranum til hamingju. Þjóðverjarnir hafa lengi verið taldir góðir í að útrýma….
June 22, 2009 at 12:09 am |
Frábært að búið er farið áður en ég kem, en hvernig er það eigum við ekki að siglingu með þessum mega manni sem dró þig að landi……..
June 22, 2009 at 12:10 am |
En svona í alvöru talað, þetta hefur verið nokkuð svakalegt við að eiga.
June 22, 2009 at 11:12 am |
Snilld. Þúsund geitungar eiga ekki séns í einbeittan Þjóðverja með áætlun. Fíla líka þetta direkt approach. Ekkert kjaftæði, bara bensín og borðfótur. Þýska stálið tiplar ekki á tánum í kring um vandamálið.
June 22, 2009 at 2:13 pm |
“Alles ist tot!” – segir allt! Snilld!