Ráðgjafinn

Stundum verða á vegi manns fyndnir hlutir.  Mér varð í dag gengið fram hjá svona deild sem er offitusjúkdómadeild fyrir börn.  Í sjálfu sér ekkert merkilegt við það, en það sem vakti athygli Keizarans var að í sömu andrá kemur kona um fimmtugt út frá deildinni, alveg sjúklega feit.  Vann greinilega þarna.  

Þá fór ég að hugsa,hvaða tilgangi ætli þessi kona þjóni?     Varla vinnur hún þarna sem ráðgjafi því að það yrði svona álíka áhrifaríkt eins og að AA ráðgjafinn þinn væri í glasi að sjá um “speglanirnar”.  Svo fattaði ég þetta. 

Ráðgjafi -  Þú hefur nú fitnað alveg rosalega, litli feiti krakki.  Fylgir þú ekki prógramminu sem ég bjó til handa þér ?
barn - jú, ég reyni en það er bara svo erfitt……..
Ráðgjafi – Erfitt segirðu.  Heldurðu að það sé gaman að vera feitur ?  Sitja heima alla daga og borða snakk?  Maður verður nú að sýna smávegis aga, ha, hættu nú í snakkinu og farðu að hreyfa þig meira.  Þú þykist kannski vita betur en ég um þessi mál ?   Heldurðu að þú sért klárari en ég, litli krakki ?
barn – Iss, þetta er hvort eð er ekkert stórmál. Þú ert bara leiðindagaur sem ert að bögga mig og gerir allt of mikið úr þessu
Ráðgjafi – Er ég að bögga þig ?   Haltu bara áfram í namminu og það verða fleiri en ég að bögga þig þegar þú ferð í sturtu eftir leikfimina.  Þú verður sko pottþétt alltaf kosinn síðastur í fótboltanum, það vill enginn vera með feita krakkanum í liði 
Barn – Þetta reddast
Ráðgjafi - Reddast ? Reddast ? Ég skal svo bara sýna þér hvernig þetta reddast, litli feiti krakkaormur…..
Ráðgjafi - (ýtir á takka á innanhússímanum) – Ætliði að senda hana Pernillu inn aðeins… (hallar sér aftur í sætinu og brosir drýgindalega)
-Hin akfeita Pernilla kemur inn um dyrnar…….
Ráðgjafi – Jæja, litli feiti krakki.  Segðu halló við Pernillu. Svakalega flott plan sem þú hefur, ætlarðu að verða eins og hún?   Það plan gengur allavega vel hjá þér, verð ég að segja.  Gengur mjög vel…….
Barn – Úff , nei.  Takk herra ráðgjafi. Nú ætla ég að passa mig.
Ráðgjafi - Þetta vildi ég heyra. Segðu nú, þú veist allt og ert leiðtogi lífs míns
Barn – Þú veist allt og ert leiðtogi lífs míns.

Meðan ég var reyndar að skrifa þetta samtal þá sló það mig. Mikið svakalega yrði ég góður í þessu starfi…………

One Response to “Ráðgjafinn”

  1. E-man Says:

    Það myndi sko enginn krakki þora að óhlýðnast Keizaranum!

Leave a Reply