Má til með að gleðjast með ykkur yfir leiknum í gær. Hvaða leikur var það ? Jú, úrslitaleikurinn á Evrópumóti U21 landsliða í knattspyrnu. England og Þýskaland léku til úrslita. Úrslitin? Jú, 4-0. Auðvitað fyrir Þjóðverja.
Hvernig er nú það, eru Englendingar ekki orðnir yfirburðaþjóð í knattspyrnu ? Það hefur allavega verið matreitt ofan í mann dag eftir dag undanfarið. Það gleymdist því miður að láta Þýskaland vita af þessu.
Nei, England átti aldrei séns. Þjóðverjarnir með markvarðarundrabarnið Manuel Neuer í fararbroddi völtuðu yfir þetta mót. Soldið kunnugleg murkun á móti verð ég að segja. Voru að vinna leiki 1-0 og gera nokkur jafntefli en svo eru sigrarnir á réttum stöðum.
Hljómar kunnuglega.
Annars vil ég enn og aftur hvetja skynsamt fólk að fara nú að halda með Þýskalandi í fótbolta. Það er bara miklu þægilegra. Svo leika þeir miklu karlmannlegri knattspyrnu heldur en þessar gúmmíþjóðir eins og Portúgal og Spánn. England nenni ég ekki einu sinni að eyða orðum á. Eftir þetta ICESAVE og fleira þá skil ég nú bara ekki í fólki sem fylgist ennþá með enska boltanum og Keizarinn er staðráðinn í að fylgjast enn betur með þýska boltanum næsta vetur. Svo fylgja þessu nokkrir aðrir kostir.
Maður þarf sjaldan að vera mjög stressaður þótt menn liggi undir og lítið eftir af leiknum, Þjóðverjarnir jafna alltaf. Og vítaspyrnukeppni, það er aldrei stress. Þjóðverjar tapa aldrei.
July 2, 2009 at 12:20 pm |
Vildi gjarnan að sýnt væri frá Þýsku hér heima, hef hitt þó nokkra undanfarið sem eru sama sinnis og ég, er reyndar einn og einn leikur á sky og setanta en allt of lítið.
Sá í gær að Varlur lét Willum vin þinn fara, eru þessir drengir hjá Val einhverjar grenju kerlingar sem þola ekki smá aga..
July 4, 2009 at 4:10 pm |
Já það eru sko stórveldistímar í vændum hjá Þýskalandi. Eftirtektarverður árangur undanfarið hjá unglingalandsliðunum. U17-liðið vann EM á þessu ári, U19-liðið vann á EM í fyrra og svo vann U21 núna EM.
Ennþá meiri ástæða fyrir því að fara nú að halda með Þýskalandi……
July 12, 2009 at 8:08 pm |
Ég tek hjartanlega undir þetta, þó seint sé, auðvitað halda allir skynsamir menn með Þýskalandi í fótbolta. Annað er bara kjánaskapur.
Það er lítið gaman að halda með einhverju kellingaliði og bíða milli vonar og ótta síðustu fimm mínúturnar eitt núll undir, vonandi að Rooney eða Ronaldo eða einhver af þessum smábörnum sem ekki má snerta með iljunum á takkaskóm poti inn jöfnunarmarki.
Ef maður heldur með þýska stálinu þá fer maður bara pollrólegur fram í eldhús og nær sér í bjór og kemur svo sterkur inn í framlenginguna.