Keizarinn er búinn að vera í fríi. Nánar tiltekið í Dölunum. Ákvað að þetta svæði skildi fá að njóta þess að taka á móti Keizaranum þetta sumarið eftir að hafa verið í smálöndunum í fyrra. Leigði sumarbústað sem var mjög Keizaralegur, stór og rúmgóður.
Ferðin byrjaði mjög vel. Keyrslan gekk vel. Dóttirin vildi ekki vera í bílnum með mér á leiðinni uppeftir sem gerði það að verkum að Keizarinn fékk að spila “Stuðdisk Keizarans” í útvarpinu. Þetta er svona diskur sem Keizarinn hefur búið til og er valinn eftir kriteriunni “Eftir að hafa hlustað á þetta lag langar mig að berja einhvern”. Mæli með þessum disk fyrir ökuferðir. Ég er búinn að ákveða að diskurinn muni heita ” Stuðlög Keizarans – fílaðu þetta eða þú verður drepinn”.
Sumarbústaðurinn var mjög rúmgóður og flottur. Þar var hin ágætasta bastu þar sem Keizarinn hélt kennslu í hvernig á að basta. E-man sýndi frábæra takta þar og var alveg að fatta þetta. Þegar hann kom með bjór inn í klefann þá vissi ég að hann væri búinn að ná þessu. Hann vildi reyndar ekki fara í ískalda sturtu á eftir eins og Keizarinn gerir, það kemur seinna. Ég sýndi þessu skilning. Af tillitsemi við gesti þá fór ég reyndar í sundskýlu þannig að þetta var ekki alvöru. EN það kemur kannski seinna.
Fór til Mora, sem er ansi fallegur bær. Hafði reyndar komið þangað áður en aldrei að sumarlagi. Þar keypti mér Mora hníf, sem er svona klassíker sem Mora er frægur fyrir. Reyndar hefur hann á seinni árum verið kallaður Anna Lindh-hnífur fyrir þá sem fatta það. Allavega. Ég keypti mér svona hníf. Svo var ég þarna að spóka mig í miðbæ Mora þegar ég fattaði að í raun var ég alveg eins og hinn klassíski geðsjúklingur, vopnaður í miðbæ Mora. E-man bauðst þá til að geyma hnífinn fyrir mig í barnavagninum sem hann var með. Ok, þetta var svo sem góð hugmynd og sérhver Palestínumaður veit jú, að barnavagnar eru klassískur staður til að geyma vopn.
Svo fórum við í Bjarnargarð. Við komumst reyndar að því að garðurinn nær upp í fjallshlíð og efst í fjallinu kallast svæðið “Tiger Mountain”. Ekki í frásögur færandi nema fyrir það að sumarbústaðurinn okkar var einmitt hinum megin í fjallinu, handan við tindinn. Sem betur fer komu nú engin tígrisdýr til okkar. Sem betur fer, segi ég, þar sem ég var náttúrulega búinn að kaupa mér hnífinn og það eru víst bara til 300-400 svona dýr í heiminum. Grænfriðungarnir hefðu orðið brjálaðir en Keizarinn hefði loksins fengið feldinn á stofugólfið.
Svo skoðuðum við birnina og ég komst að ýmsum algerlega ónauðsynlegum upplýsingum um birni sem hægt er að besserwissera um. T.d. að það eru bara til 8teg af björnum í heiminum, stærstu birnirnir eru í Alaska og eru yfir 3m á hæð. Svo borða birnir aðallega bláber og svo Maurabú. Já, þeir hnoða sér bollur og borða búin. Frekar stelpulegt.
Svo var farið og baðað. Fórum í sundlaugargarð sem var með stórhættulega vatnsrennibraut. Ennþá hættulegri en þá sem ég festist í í fyrra. Enda fór konan með dótturina í þetta sinn. Engin áhætta tekin, fyrir utan það að konan veitti því athygli að margir litu hana með furðusvip og jafnvel hneyklsun þar sem hún er jú komin yfir 30vikur á leið.
Annars höfðum við það bara gott. Elduðum góðan mat, drukkum ýmislegt gott og ég verð nú að segja það að E-man býr til ansi góðan Irish Coffee. Keizarinn drekkur venjulega aldrei Jameson, það er svona viskí sem bara fullir sjóarar, miðaldra fitubollur í Man Utd bolum og menntaskólastrákar sem langar að finna til sín á barnum, drekka. Keizarinn drekkur ekki svoleiðis sull en ég gerði undantekningu í Irish Coffee þar sem þá passar þetta ágætlega. Hann skammtaði reyndar soldið naumt en drykkurinn bragðaðist samt vel.
Leiðin heim gekk svo bara nokkuð vel. Fórum á McDonalds í Gävle þar sem ég hitti gamlan vin sem ég hafði ekki hitt lengi, þeas Mr Big Tasty. Kom ekki í ljós að litli, feiti asíski strákpjakkurinn á McDonaldsstaðnum mínum heima hafði haft rétt fyrir sér eftir allt saman. Big Tasty kemur alltaf aftur……………
Hér koma nokkrar myndir úr ferðinni

Hérna er mynd af bústaðnum, ekki amalegt

Kirkjuturninn í Mora. Það sem imponeraði Keizarann var nokkuð sem maður hefur ekki séð áður. Ef þú er svona sykurpabbakóngur sem byggir kirkjuturn, láttu þá einhvern skrifa nafnið þitt á turninn !!

Vatnsrennibrautin. Sjáiði bara hvað hún er hættuleg og enginn vörður að fylgjast með ástandinu. Enda fór Keizarinn ekki upp í þetta morðtæki.

Keizarinn rakst á íslenskan feminista í dölunum og hún var svo almennileg að leyf mér að taka mynd af henni. Hún er reyndar formaður mannréttindahóps VG og var á einhverjum umræðufundi hér. Gaman aðþví.

Þennan norska gaur sá ég líka í Bjarnargarðinum. Varð að ná mynd að þessum stærsta pípara sögunnar. Ætli hann hafi týnt beltinu eða finnst honum þetta svona flott. Þetta er greinilega Norðmaður, því að enginn Svíi myndi láta sjá sig svona.