Keizarinn dreymir oftast góða drauma. Af einhverjum orsökum dreymir mig iðulega hetjudrauma, þar sem Keizarinn bjargar iðulega fólki úr einhverjum háska. Martraðir er eitthvað sem annað fólk fær.
Hápunkturinn var nú á menntaskólaárunum þegar Keizarinn leiddi eitthvað SWAT-lið og bjargaði þeim Emmu og Geri úr Spice Girls úr höndum hryðjuverkamanna. Hversvegna það voru akkurat þær hef ég hinsvegar aldrei almennilega áttað mig á.
Allavega. Langt síðan mig hefur dreymt almennilegan hetjudraum en einn slíkur kom einmitt í nótt. Meiraaðsegja frekar langur.
Fyrst hringir síminn. Sagt að ég hafi verið valinn í landsliðið í fótbolta og hvort ég gæti ekki hugsað mér að vera með. Fyrstu viðbrögð mín voru að ég spilaði ekki fyrir neitt lið og þetta myndi líta hálf asnalega út í blaðinu. Ætti maður þá að skrifa Uppsala eða KR.. Já, ekkert mál. Ég skal vera með.
Svo kemur næsta sena. Þá var ég staddur á hótelherbergi. Fatta alltíeinu að leikurinn sé að fara að byrja. Varð eitthvað stressaður yfir því að ég hefði önnur plön þetta kvöld en lét til leiðast…..
Svo kemur síðasta senan. Leikurinn í gangi. Fullur Laugardalsvöllur. Við fáum víti. Spilum á markið nær sundlauginni. Allir biðja mig að taka það. Af hverju ég, hugsa ég, ég spila ekki einu sinni fótbolta reglulega?
Völlurinn pakkaður. Auðvitað tek ég vítið. Aldrei efi. Sjálfsagt mál. Negli boltanum efst upp í sammarann, hægra meginn við markmanninn. Aldrei spurning. Þvílík negla og ég átta mig á því þegar ég er búinn að skora að ég hafði aldrei einu sinni horft á markmanninn. Hugsaði svo hvernig ég ætti eiginlega að fagna þessu marki. Tek svo “flugvélafagnið”.
Draumurinn búinn. Hvað þýðir svona bull annars, fyrir utan að túlka óbilandi sjálfstraust og megalomaniu á háu stigi ?
July 5, 2009 at 2:00 pm |
Hefðir mátt látq fylgja hvernig þessi Spice / Emma og Geri draumur endaði……
En..ég veit ekkert um drauma en dreymi reglulega allaveg vitleysur..
July 6, 2009 at 9:20 am |
Þetta þýðir sennilega að þú drekkur of mikið í sumarfríinu – svona lagað kallast líka delirium tremens!
July 6, 2009 at 8:50 pm |
Neibb. Eitthvað táknar þetta. Það er vitað mál að fylleríssvefn skapar enga drauma.