Jæja, fyrstu umferð meistaradeildarinnar er lokið. Bayern fór í góða ferð til Ísraels og vann 0-3. Þetta var þó pínu erfið fæðing og fyrsta markið kom ekki fyrr en eftir 60mín. Svo setti Müllerinn 2mörk í lokin. Fólk virðist vera farið að fatta hver þessi gaur er og ef maður les íþróttasíðurnar þá virðist þetta nú hafa verið algerlega óþekktur maður þar til í síðustu viku. Enn eitt dæmið um vankunnáttu íþróttafréttamanna þar sem það hefur verið beðið eftir þessum dreng lengi og vakið mikla athygli með unglingaliðum Bayern.
Hinsvegar varð mér hugsað til annars atviks í vikunni þegar Bayern var að fara til Ísraels. Hvað kemur upp í hugann ? Jú, auðvitað þegar kanslarinn Gerhard Schröder fór í opinbera heimsókn til Ísraels, fyrstur þýskra kanslara og hélt ræðu í Knesset. Hvað gerðist ? Jú, hann rak sig svo óvart í “eilífðarlogann”, loga sem er látinn loga til að minnast fórnarlamba helfararinnar og tókst að slökkva á honum. Eilífðarhvað segi ég nú bara……..
Bayern er að spila í dag. Þetta er heimaleikur við hitt bæjaraliðið, Nürnberg. Stuttu áður en leikurinn hefst, verður svo sett Októberfest. Bayern hefur reyndar aldrei tapað heimaleik meðan Októberfest stendur yfir, nema náttúrulega í fyrra. Margt sem Klinsmann hefur á samviskunni. Allavega.
Nürnberg-leikurinn er leikur sem á að vinnast. Reiknað er með tiltölulega óbreyttu Bayern-liði, ætli Ribery byrji ekki inná núna. Vitað er að vanGaal er ekki mikill aðdáandi roteringar þannig að líklegast er að byrjunarliðið sé óbreytt.
Posted by keizarinn
Posted by keizarinn
Posted by keizarinn 
