Keizarinn er ekki dauður ef þið hélduð það. Datt í hug að sýna lífsmerki með því að henda inn smá myndbandi. Úff, það er fátt skemmtilegra en að horfa á góð tónlistarmyndbönd og það besta er að vera svo heppinn að vera í vinnu við það að horfa á tónlistarmyndbönd. Það gerði Keizarinn einu sinni.
Þetta er klassíker fyrir okkur melancholikerna sem fyrirlíta blómálfatónlist eins og þetta þarna Sigurrós. Þetta eru þunglyndu töffararnir í Soundgarden. Chris Cornell er náttúrulega snillingur. Einu sinni var hann spurður af hverju hann brosti aldrei - Ég brosi fyrir konuna mína sagði hann og málið var dautt. Töff
Keizarinn er þreyttur eftir vinnuvikuna. Loksins er maður kominn aftur á sína heimadeild eftir langa útiveru og munurinn er sá að nú þarf maður að vinna aftur í vinnunni. Tekur smávegis tíma að aðlagast þessu.
En nú er laugardagur. Þá er frí og svo er smávegis bolti. Þýski boltinn og svo er úrslitaleikurinn í sænska bikarnum í dag, þegar stórlið AIK mætir IFK. Ég er búinn að ákveða það formlega, svona eins og hinn fullkomni tækifærissinni að ef AIK vinnur þennan leik í dag þá fari ég að halda með þeim. Ég meina, kommon, Djurgården er næstum því að falla úr Allsvenskan !!
Ég hef áhyggjur af Bayern. Síðan hvenær urðu Leverkusen svona góðir ? Hvað er að Ribery ? Hvar er leiðtoginn ? Af hverju eru þeir ekki með betri markmann?
Eins og í sönnum krísum þá er Karl-Heinz Rummenigge farinn í byrgið sitt, þar sem hann lokar sig inni á erfiðum tímum og stjórnar þaðan umhverfi sínu. Sem betur fer er ég einn af þeim sem er í innsta hring. Það þýðir að ég er með svona Führerblitz-símtól sem gefur mér beint samband við rauða símann hans. Bayern tekur á móti Schalke 04 í dag sem er gífurlega mikilvægur leikur.
Eftir leikinn ætla ég að hringja í Rummenigge og læt ykkur svo vita hvernig gengur.