The Dolph Lundgren show

Jæja, melodifestivalen byrjaði í gær.  Stundum hefur Keizarinn verið pínulítið gagnrýndur fyrir að horfa á það, vegna þess að það er ekki sérstaklega karlmennlegt.  En nú hafa sko hlutir gerst.    Nú er ég komið með vottorð um að harðir gaurar geti horft á melodifestivalen.  Og hver gefur út vottorðið ?   

Enginn annar en Dolph Lundgren. 

Já, ég veit ekki hver fékk þessa snilldarlegustu hugmynd síðari ára en þetta er einhvernveginn svo súrrealískt að það hlýtur að virka.  Dolph Lundgren er nefnilega einn af kynnum melodifestivalen í ár. 

Dolph þarf náttúrulega ekki að kynna.  Gaur sem er orðinn svona kult-legend, aðallega fyrir að vera hann sjálfur.  Og hann byrjaði með látum í gær.  Tanaður í drasl, gel í hárinu og smókinginn var eins og sniðinn á hann.  Svo er hann einu maðurinn sem hljómar töffaralega þegar hann talar sænsku. Sennilega því að allt sem Dolph gerir er kúl.  Svona eins og Chuck Norris.  Enda þekkir Dolpharinn alveg örugglega Chuck Norris, sem eru enn ein rökin fyrir því að allt sem Dolph gerir er kúl. 

Sjitt hvað ég ætla að líta út eins og Dolph þegar ég verð fimmtugur. 

En allavega.  Dolpharinn byrjaði með látum í gær og hreinlega átti kvöldið.  Hann kom keyrandi inn á mótorhjóli inn á sviðið með sólgleraugu ( sem fékk mig til að hugsa af hverju Dolph fékk aldrei að leika í Terminatormyndunum), spilaði á trommur, sagði brandara sem Keizarinn sprakk úr hlátri yfir ( það eru ALLIR brandarar fyndnir sem Dolph segir), braut íshellur með karatehöggi ogsvofrv. 

Hvar endar þetta eiginlega ?   Ég hvet  alla Dolph-fans á Íslandi allavega til að horfa á næsta melodifestivalen.  Það borgar sig.  

Lítum á videoið hér fyrir ofan.  Hinir kynnarnir eru hræddir, rafmagnið er farið?   Er verið að vinna skemmdarverk ?   Hvern kallar þú á ?   Auðvitað Dolph, sem kemur með stóran kyndil.  Kallar svo á nokkrar kellingar og byrjar að syngja og dansa, og bæþevei, mér finnst eftirtektarvert hversu töffaralega Dolph dansar og ekkert hommalegt við þessi dansmoves. 

Svo er náttúrulega legendariskt þegar hann fer á trommurnar og brýtur ísblokkirnar…..    Ég var að horfa á þetta í tölvunni og meiraaðsegja Bjarkinn sem venjulega hatar tölvuna, fór að hlægja og skríkja.  Hvað segir þetta okkur ?   Allir vilja vera eins og Dolph!!

One Response to The Dolph Lundgren show

  1. Slow Cooking says:

    [...] Það er ekki á hverjum degi að ég byrja að elda kvöldmatinn fyrir hádegi, en þannig er það í dag.  Við keyptum eintak af sænska tímaritinu Allt om Mat og þar var uppskrift að gamaldags “rustik” mat – nautasteik sem er brúnuð á pönnu og svo soðin (með grænmeti og kryddi) í 10-12 tíma!  Þetta er sáraeinfalt og hentar vel ef maður er með gesti í mat, því það er bara pínulítil vinna í lokin, græja sósuna og meðlætið.  Með þessu er mælt með að maður drekki Allesverloren Shiraz, en þar sem ég á það ekki til ætla ég að finna mér eitthvað annað góðgæti úr kælinum.  Í kvöld er svo annar hluti Melodifestivalen – ómissandi skemmtun fyrir þá sem búa í Svíþjóð.  Það var sjálfur Dolph Lundgren sem stal senunni í fyrstu forkeppninni, og fyrir þá sem vilja sjá hvað ég að tala um er bent á að kíkja inn á þetta. [...]

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.