Opni leikskólinn

Í dag verður ekki fjallað um meistaradeildina.  Í þarf aðeins að melta þetta.  Kemur kannski á morgun.  En  í gær sótti ég Keizarann jr á leikskólann í gær.  Þar var Keizarinn jr í góðu yfirlæti. Mig grunar reyndar að hannsé svona “the top dog” í sínum litla hópi.  Allavega er hann orðinn soldið brútal þegar hann fær ekki það sem hann vill.  En áður en Vladimir frændi hringdi nokkur símtöl og reddaði fyrir hann leikskólaplássi þá fórum við nokkrum sinnum á hinn svokallaða opna leikskóla.  Það var nú meiri hópurinn þar.

Þetta er svona geymslustaður þar sem pabbarnir eða mömmurnar geta komist aðeins út og fengið smávegis tilbreytingu frá orlofinu.  Þetta var nú meiri tíminn.  Henke var þarna stundum og var náttúrulega kúl en annars var þetta meiri hópurinn.  Einu karlarnir sem voru þarna fyrir utan mig og Henke voru hann Miro, tilfinningaríki serbinn sem byrjaði að tala um tilfinningar sínar og faðernismál nánast um leið og hann kom  inn úr dyrunum og svo 2pabbar sem voru alveg pottþétt hommar.  Jú og svo var einn pabbi þarna í viðbót sem var alveg ferlega stífur.  Ég man að einu sinni kvartaði hann yfir því hversu Keizarinn jr öskraði hátt.   Ég sagði bara “já en leiðinlegt”.  Og svo litum við hvor á annann, ég og juniorinn og svo kom eitt gott.  Öskur.
Regla númer eitt:  Ef þú höndlar ekki öskur, væl og njálg á opna leikskólanum´þá skaltu vera heima hjá þér.   Annars ertu ekki harður.

Og svo voru það mömmurnar.  Henke var reyndar búinn að vara mig við.  Hafði tekið út hópinn og sagði að þær væru allar ljótar nema ein sem hafði komið einu sinni en svo aldrei aftur.  Sennilega hefur Henke verið of nærgöngull.

En þetta var rétt hjá honum.  Allar mömmurnar voru  ljótar. Og feitar.  Höfðu sennilega farið aðeins of geyst í Laffémenninguna eftir að hafa átt barnið.  Nema kannski ein en hún var frá Kolumbíu sem var alltaf klædd eins og svona urban skæruliði.  Örugglega einstæð og pabbinn var einhversstaðar að “vinna” í frumskógunum hjá FARC.  Þannig að ég talaði sko ekkert við hana.   Aðeins of hættulegt.

Síðasta daginn sem ég fór á opna leikskólann þá gerðist reyndar eitt.  Sonurinn varð að manni.  Eða bullu.  Eða djúpum miðjumanni.  Vonandi að einhverju.

Hann var í rennibrautinni.  Það var röð.  Á undan honum var stelpa með gleraugu sem var komin efst í rennibrautina og beið eftir að renna sér niður.  En hún renndi sér ekki niður.  Það brast kjarkurinn.  Það er eitthvað sem Keizarinn jr skilur ekki.  Ég sá þetta live.

Keizarinn jr leit á mig, svona eins og til að fá samþykki.  Keizarinn nikkaði föðurlega til baka  og þá var búið að ýta á græna takkann.  Svo hrindir Keizarinn jr harkalega stelpunni  (mjög professional bakhrinding sem John Terry hefði verið stoltur af) þannig að hún rennur niður.  Það tók enginn eftir þessu nema ég.  En það sem var eiginlega mest merkilegt við þessa hrindingu var að hún var ekki með hendinni heldur með fætinum.  ‘Ojá.

Og svo þakkaði ég Guði fyrir að enginn annar kunni íslensku þarna.

“Bjarki hrinda”.

Jepp.  Hann verður Jeremies.  ” It is the destiny”.

Advertisement

One Response to Opni leikskólinn

  1. Dr. Leifsson says:

    Var ekki einmitt Jermies fyrst spottaður af útsendurum Bundesligunnar 2. ára í sandkassanum að afgreiða hásinarnar á einhverri frekjudollu? Þori að veðja að ákkúrat núna er einhver þýskur (eða mögulega argentínskur) stórklúbbur að undirbúa stórtilboð í Jr.
    En hvað er að gerast í Bayern? Schweini svona mikilvægur?

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.