Nei. Ekki hættur. Bara mikið að gera. Vinnan, skiljiði. Eins og hefur komið fram þá er þessi fjölmiðill rekinn af algeri góðsemi við almúgann. Ég er ekki vinstrisinnaður blaðamaður sem er að skrifa þetta af barnum, í vinnunni.
Og það er sko ekkert grín. ÉG hef persónulega verið grátbeðinn um að blogga um þjóðfélagsmál vegna þess að sumir lesendur mínir hafa verið ráðvilltir og ekki vitað hvaða skoðun þeir eiga að hafa á ákveðnum málum. Og hugsið ykkur örvæntinguna, þessa örvæntingu að hafa eitthvað eldheitt mál, það er verið að ræða þetta í matarboðum, og maður veit ekki hvaða skoðun maður á að hafa.
En þetta er allt í lagi. Keizarinn er hér. Stundum munu kannski líða nokkrir dagar. En pistillinn mun koma. Þetta vita mínir eldheitu lesendur. Reyndar held ég að Besserwisserinn sé farinn að lesa þetta minna. Það er leitt, meira að segja formenn stjórnmálaflokka gætu horfið. Í svartan Benz.
En ég ætlaði bara að láta ykkur vita af því að ég er ekki hættur. Og fyrir ykkur efasemdarfólkið þá vann Bayern Munchen Werder Bremen 4-1 um helgina. Robben skoraði tvö mörk. Og menn eru jafnvel að tala um það að Scweinsteiger verði tilbúinn fyrr en áætlað var. Menn skildu aldrei vanmeta skrúfur og plötur í viðbeinið. Og auðvitað, þýskan aga sem innprentar að þetta sé ekki vont. Alls ekki. Þetta sé einmitt gott. Og það minnir mig einmitt á eftirlætis senuna mína í myndinni GI Jane þar sem Viggo Mortensen á stórleik ……
Ég hef stundum sagt hryggjarskurðlæknunum, vinum mínum að láta fólk horfa á þessa senu en þeir hlusta aldrei á mig.
En á morgunn. Nýr liður. Samsæriskenning vikunnar. Fylgist með.
Loksins hefur samsæri Platini gegn enskum fótboltaliðum skilað árangri í Manchester – múhahaha!
Hvað varð um samsærið?
Halló-ó-ó-ó…