E-man leggur mig í einelti. Ég held að það sé vegna þess að hann er kominn í fæðingarorlof ( yeah, right, fæðing….) og hann hefur áhyggjur af netrúntinum sínum. Ég hafði ákveðið að dissa þetta ákveðið en nú er ég orðinn hálf þreyttur á þessu. Hann bara hættir ekki.
Þannig að mitt svar er að setja inn tónlistarmyndbönd fyrir harða menn. Svo menn læri aðeins.
Hérna koma danska þungarokksbandið (já ég veit að þetta hljómar eitthvað svo rangt) Disneyland after Dark. Ég hef miklar efasemdir um hversu harðir þessir gaurar eru, sérstaklega gaurinn sem er með eins hár og Sebastian Bach. Kommon, hann er ekki einu sinni í leðurbuxum. En takið eftir bassanum. Hann er kúl.
Já. Þótt Danmörk hafi verið hernumin á einum degi þá hef ég alltaf haldið uppá þetta lag. Sennilega hlustað á það á einhverjum viðkvæmum tíma.
Og bæþevei. Endilega klukkið í kommentakerfið ef þið lesið þetta svo ég geti sannfærst um að einhverjir lesi þetta ennþá. Annars hætti ég.
þessir danir eru grjótharðir, ekki spurning…. fínt að þú er vaknaður þá verður ekki langt að bíða eftir einhverju hressandi fótboltabloggi…
Mér hefur aldrei fundist D.A.S. vera þungarokksband heldur frekar svona glam-rokkarar sem halda að þeir séu harðir, ég meina – er það þversögn sem ekki gengur alveg upp að halda því fram að það séu til harðir danir?
Átti auðvitað að standa D.A.D. þarna en þeir eru semmilega harðari á DAS…
Ég held reyndar að DAD séu glamrokkarar sem halda ekkert sérstaklega að þeir séu harðir. Ég meina, strákar eigum við ekki að taka okkur pásu og fá okkur smá vínarbrauð í bakaríinu, er ekkert sérstaklega hart.