Endurlífgun að hætti harða mannsins

Jæja, ætlunin var nú ekki að fara að gera þetta að einhverju You-tube bloggi.  En þetta er aðeins of fyndið til að sleppa þessu.  Bresku Hjartasamtökin hafa fengið frábærustu hugmynd síðari ára. 

Endurlífgun er auðvitað eitthvað sem flestir þurfa að kunna, allavega þegar maður vill að viðkomandi lifi.  Stundum gæti maður hinsvegar bara labbað framhjá en þá er mikilvægt að enginn sjái að maður geri það. 
Svo er þetta munn-við-munn dæmi sem mörgum er illa við.  Viltu fara í sleik við ókunnugt fólk ?  Jafnvel alkohólistann með lifrarbólguna sem svo ælir uppí þig meðan þú ert að þessu.  Ég man reyndar eftir svona maska sem maður var látinn fá á einhverju skyndihjálparnámskeiði en hver gengur um með svoleiðis annað en hjálparsveitarfífl.  Það myndi nýtast Keizaranum álíka vel og dömubindi eða handáburður. 

Og eins og Vinnie bendir réttilega á þá kyssir maður einfaldlega ekki karlmann á munninn.  Ekki heldur faðmast.  Nema mögulega að maður myndi faðma Podolski eftir að hafa gert mark.  En þá bara stutt og með eins litlum kontakt og hægt er. 

En núna er þetta semsagt eins og Vinnie segir:   Bara hnoða.

Advertisement

One Response to Endurlífgun að hætti harða mannsins

  1. Tengdó says:

    Takk fyrir þetta, mjög gott að vita þetta. Og myndbandið er fjandi flott…….

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.