Komiði sæl kæru lesendur. Í dag byrjar nýr flokkur sem kallast samsæri vikunnar. Gerið svo vel.
Samsæri vikunnar er mjög alvarlegt. EItt af þessum klassísku samsærum sem liggur þarna beint fyrir framan nefið á manni og er of nálægt til að maður fatti þetta. Allavega almenningurinn.
En Keizarinn er búinn að sjá í gegnum þetta. Og við skulum fara í gegnum þetta ?
Hvað haldiði í alvöru að influenzubólusetning gagni ? Þetta er veira sem að hefur sérstaklega tvo hluta af himnunni sinni sem tengjast líkamanum. En þessir tveir hlutar eru alltaf að stökkbreytast. Samanber þetta nafn H-einhver tala og síðan N-einhver tala. Ég hreinlega nenni ekki að útskýra fyrir hvað þetta H og N stendur.
En allavega. Svo þróar maður eitthvað bóluefni. Og það gengur útá það að maður giskar (reyndar svona educated guess) á hvaða H og N maður velur. Og þá slátrar bóluefnið akkúrat þeirri influensuveiru. Og ef þú færð einhverja aðra inflúensuveiru ?
Jú, þá verðurðu alveg hundveikur. Eins og venjulega. Eins og flensan virkar. Rúmliggjandi í viku, snýtir þér eins og stelpa og er illt í öllum kroppnum. Kallast beinverkir. Svo er maður alltaf með hroll, svona eins og alkinn sem hefur verið án spírans í 1dag. Maður á erfitt með að fara á klósettið af því að maður er svo slappur.
Sem sagt, maður verður eins og stelpa sem er að upplifa sína fyrstu þynnku.
En þetta er nefnilega allt eitt stórt samsæri. Og þeir sem koma að þessu samsæri eru tveir óvæntir hópar. Fyrri hópurinn eru samtök atvinnurekenda.
Hversvegna ? Jú, vegna þess að fólk sem hefur verið bólusett heldur að það sé í raun ekki með flensuna. Og harkar þessvegna af sér. “Jú, þetta er alveg helvíti slæmt kvef” . “Ég hef nú bara ekki verið svona kvefaður í mörg ár”. Kannist þið við þetta ? Jú, aumingjarnir sem voru bólusettir. Þeir halda að þeir séu ekki með flensu en eru samt með hana.
Og svo hinn hópurinn. Þetta kemur á óvart en staðreyndin er sú að þetta eru samtök verslunareigenda. Það er búið að setja efni í bóluefnið sem hefur áhrif á heilann. Veldur því að þröskuldurinn minnkar fyrir að kaupa hluti. Og viti menn, hvenær telja þessir svokölluðu vísindamenn að flensufaraldurinn byrji almennt í Evrópu ?
Jú, einmitt fyrir jólin. Á Íslandi er reyndar oftast talað um þetta eftir jól. En það eru tvær ástæður fyrir því.
Í fyrsta lagi þá virkar þetta meira trúverðugt svona glóbalt. Sem sannar fyrir okkur að þetta er glóbalt samsæri.
Í öðru lagi. Fólk er látið kaupa meira. En einhver myndi segja að þetta gagnist ekki svo mikið þar sem útsölurnar séu í gangi. En þá kemur aðalmálið. Það er engin útsala. Búðir auglýsa bara að það sé útsala en það er bara það sem stendur á skyltinu. Verðin hafa í raun ekki lækkað. Haldið þið virkilega að þeir sem fengu “bóluefnið” tékki eitthvað á því ?
ja þú segir nokkuð, HÆTTUR að láta bólusetja mig………