Bayern-Schalke 2-0

February 29, 2012

Jæja.  Það var Stórleikur í síðustu umferð á Allianz.  Ég get ekki neitað því að ég var nokkuð stressaður fyrir þennan leik og það var í sjálfu sér ekkert skrýtið við það.  Bayern hefur verið að spila illa. 

Hver skýringin er, er hinsvegar erfitt að segja.  Það sem virkaði vel hefur skyndilega ekki verið að virka.  Annars stór faktor er náttúrulega meiðsli Schweinsteigers, sem er mótorinn í liðinu.   Robben hefur þaraðauki verið að spila illa og hreinlega hægja á liðinu, þeir hafa verið að spila betur án hans. 

En Rummenigge sá um þetta fyrir mig.  Sagnir herma að hann hafi farið inn í klefann eftir síðasta tapleik og sagt eitthvað.  Ef ég þekki kallin rétt hefur hann svo líka kallað inn Robben á skrifstofuna sína fyrir svona man-on-man talk.  

Allavega spilaði liðið  feiknarlega vel á móti sterku Schalke liði sem hefur verið að spila vel undanfarið.  Þeir hafa verið þéttir eftir að Huub Stevens tók við þeim.  Sterkur varnarleikur og þéttleiki er þema mánaðarins hjá þeim. 

Hversvegna segi ég  þema ?  Jú.  Schalke hefur undanfarið verið eins og ósjálfstæð kona sem veit ekki hvað hún vill.  Fyrst var Huub Stevens þjálfari, þá voru þeir líkamlega sterkir og spiluðu þéttan varnarleik.  Svo tók Felix Magath við þeim og þá áttu þeir skyndilega að vera gífurlega hreyfanlegir, í feiknarlegu hlaupaformi og brjóta andstæðinginn niður á þann hátt.  Svo tekur Ralf Rangnick við sem sagði þeim bara að spila sóknarleik og vona það besta í vörninni.  Og svo lokar Huub Stevens hringnum aftur og byrjar að spila sterkan varnarleik.   

Bayern stillti upp með hefðbundinni vörn.  Neuer í markinu, Lahm vinstri bakvörður og Rafinha hægra meginn.  Hafsentar voru þeir Boateng og Badstuber.  Þetta er að mínu mati langbesta parið og vonandi hefur Heynckes hætt öllum tilraunastarfsemum hvað þetta varðar.  Van Buyten er ágætur á bekknum og þannig á það að vera.   

Á miðjunni vantaði  náttúrulega maestro Schweinsteiger en í staðinn léku hinir brasilísku Alaba og Luis Gustavo.  Ekkert brasilískt við það.  Svo voru Robben og Ribery á köntunum, Muller lék í holunni og Mario Gomez frammi.  Kroos var bekkaður. 

Schalke lék með Timo Hildebrand í markinu, og voru annars með hefðbundið lið. 

Fyrsti 30mín var alger sýning á kraftmiklum hörkufótbolta þar sem liðin voru nokkuð jöfn.  En svo byrjaði Bayern að taka yfir leikinn og héldu nokkuð þægilegum yfirburðum allan leikinn.  Ég get meiraaðsegja vitnað persónulega um það að ég hafi séð Robben hlaupa á eftir manni og reyna að skriðtækla hann sem segir nú ýmislegt um vinnusemina í manninum í dag. 

En þetta var frábær sigur og vonandi er þetta það sem koma skal.


Suarez-málið

February 15, 2012

Aumingja Suarez.  Allir eru vondir við hann. Hinsvegar er hægt að analysera þetta mál til dauða.  En málið er mjög einfalt. 

Ég held ekki að hann sé rasisti.  Hann er hinsvegar bara hreinræktaður skíthæll.  Og það er Evra líka.  Og þar með líkur umræðum um þetta mál. 
En þetta sýnir hinsvegar hvernig enski boltinn er.  Umræðan þar byggist á leikmönnum.  Ekki gæðum fótboltans eða taktík. 

Og þar með líkur þessu máli. 

En hafiði séð þetta ?  Gamli Ferguson er alveg með þetta….


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.