Það er spennandi að fylgjast með Arabaheiminum þessa dagana. Hvernig breyttist allt á einni nóttu. Ja, reyndar ekki allsstaðar. Í Líbýu er mesta stuðið núna og hvað getur maður eiginlega sagt um hann Ghaddafi? Hvað segir maður um mann sem er með 15manna gullfallega sveit sérþjálfaðra lífvarðabeiba sem einkalífverði ? Og núna er hann víst að berjast fyrir Líbýska fólkið gegn “nýju nasistunum” eins og hann víst orðar það ? Hverjir eru það ? Obama? Osama? – Eða eru þeir kannski báðir saman í þessu samsæri gegn aumingja Ghaddafi og þetta 911 var bara stórt feik, bara til að undirbúa jarðveginn til að steypa Ghaddafi. En það verður spennandi að sjá hvernig þetta fer…..
En í hinum löndunum hafa menn verið að tækla þetta á mismunandi hátt. Í sumum löndum þá gáfust stjórnvöld upp eins og í Túnis. Í Egyptalandi tóku menn klassíkerinn á þetta, þ.e. herinn bara tók yfir.
En besta lausnin er ekki þarna heldur í Saudi-Arabiu og Bahrain sem ég las um í dag. Byrjun á Saudi-Arabíu. Þar hafa menn sko heldur betur tögl og hagldir á múgnum. Upphaflega var planeraður dagur reiðinnar en mótmæli voru einfaldlega bönnuð af stjórnvöldum. Af hverju ? Það stendur auðvitað í kóraninum. Hver fer þá eiginlega út að mótmæla? Og dagur reiðinnar ? Hvað gerir fólk þá ? Lesa einni síðu minna í kóraninum þann daginn eða ?
En nú eru Saudarnir að reyna að gera betur. Þeir hafa séð að sér og hafa lofað að gera betrumbætur. Þeir ætla skapa fullt af nýjum störfum fyrir óánægðu alþýðuna. Og hvar ? Jú, í öryggissveitunum sem hefur stjórn á almenningi. Snilld. Ég segi ekki annað.
En Bahrain fer óhefðbundna leið líka. Þar hefur fólk safnast saman á einhverju torgi sem er alþekkt af einhverju risastóru minnismerki. Mig minnir að það heiti Perlutorgið.
Og hvað gera menn ef fólkið hlýðir ekki og safnast saman á fundarstaðnum ? Jú, þú tekur bara í burtu fundarstaðinn. Þeir fóru með gröfur og bora og ég veit ekki hvað og rifu burtu minnismerkið. Og ætla að “breyta” torginu. Seniilega breyta þeir því bílastæði fyrir einhverja skriðdrekaherdeildina eða hvað. En hugmyndin er vissulega óvenjuleg og ég verð að segja að þetta er einhver mesta stjórnunarsnilld sem ég hef séð lengi………….
Posted by keizarinn 

