Pælingar

May 9, 2011

Það er kominn langur tími frá síðustu færslu. 
Ég er orðinn gamall. 
Á maður að nenna þessu ? 
Les þetta einhver lengur ? 
Les einhver Bundesligu/Bayern pistlana mína hvorteðer ?


Hvaða væl er þetta eiginlega í þessum Haukurum?

March 18, 2011

Ég er ekki alveg að skilja þetta væl yfir körfuboltadeild Hauka þessa dagana.  Jú, það urðu hópslagsmál í leik karlaliðs Hauka um daginn og svo gerist það í leik kvennaliðs Hauka að leikmaður KR gefur Haukakonu olnbogaskot (óvart eða ekki ) og er rekin úr húsinu.

Og svo kemur dómurinn frá aganefndinni.  Karlaleikmennirnir fá aðeins lengra leikbann en stelpan.  Og þá brjálast Haukarnir.  Þetta er alls ekki karlmannlegt og eiginlega soldið stelpulegt af þeim.   Svona saumaklúbbsstemning yfir þessu  sem byrjar á því að ræða einhverja sakleysislega kjaftasögu þangað til að allar kellingarnar eru orðnar svo æstar að “það verður að gera eitthvað “.  “Bara eitthvað”.  Og á endanum er Haukastelpan búin að kæra þetta til lögreglunnar.     Og það er ekki gott mál.  Í alvöru.  Og aðaatriðið er að hún baðst ekki afsökunar á þessu.  Týpískt KR.  Það eru allir leiðinlegir þar og jafnvel óheiðarlegir líka.

Vilja menn virkilega svona íþróttalíf á 300þús manna skerinu.  Við höfum séð þetta á Englandi og líka á Ítalíu.  Það nýjasta er t.d. að nú er AC Milan að ráða sér high-fly lögfræðing til að áfrýja leikbanni Zlatans Ibrahimovich svo hann geti leikið leikinn mikilvæga á móti Inter.  Er þetta virkilega eitthvað sem við viljum í sportið ?

En þessi viðbrögð ?  Menn verða nú aðeins að hugsa um kúlið.  BÖS, ég veit að þú ert að lesa þetta.  BÖS er nefnilega gaur sem ég þekki sem ég held að sé aðili að málinu.  Sennilega bjó hann til myndbandið sem var sent til fjölmiðlanna í dag.  Menn skulu ekki vanmeta leyniþjónustu Keizarans, ég hef nú einu sinni aðgang að bæði Rumenigge og Putin.

Allir vita að körfubolta kvenna á Íslandi hefur verið íþróttin þar sem trukkalessurnar hafa sameinast.  Menn ættu nú bara að vera glaðir yfir því að prinsessa  eins og Margrét Kara sé í körfunni.   Og Haukastelpan sjálf hefur nú sagt að röntgenmynd sýni að hún sé ekki brotin.  Það var nú gott.  Hinsvegar hefur einvher snillingurinn á slysó komist að því að það hafi nú sennilega blætt inná kjálkaliðinn.  Þetta er nú bara eitthvað sem þessir læknar segja  til að útskýra verki eftir högg sem þú veist eiginlega ekki af hverju sjúkingurinn er með svona mikla verki.  Og ég get vitnað um það að hún hefur nú kannski bara gott af fljótandi fæði í 2vikur, það sýndist mér.  Maður getur massast upp við próteindrykki og verður flottari fyrir sumarið.

Og aðalatriðið er semsagt afsökunarbeiðni.  Hvað átti KR-ingurinn að gera ?   Láta skrifa bréf fyrir sig sem fer í fjölmiðla eins og hinir leikmennirnir ?  Mæta með konfekt, blóm og blöðrur til stelpu sem er búin að kæra mann til lögreglunnar ?  Og hún gæti ekki einu sinni borðað konfektið af því að það “blæddi inn á kjálkaliðinn” ?

En að öllu saklausu gríni slepptu þá ættu nú Haukarnir að vita það að  leikbönn kvenna og karla eru aldrei sambærileg.  Allavega ekki hvað varðar fótbolta.  Konur fá sjaldnar rauð spjöld og sjaldnar leikbönn.  Það er bara þannig.   Menn geta orðið fúlir þegar þeir lesa þetta en það er bara eitthvað sem menn verða að taka upp í næsta tíma með sálfræðingnum sínum.  En Ég hef rétt fyrir mér.  Kíkið bara á tölfræðina yfir fótboltann.

Kommon.  Kæra til lögreglunnar.  Og hvað svo ?  Ráða sér lögfræðing á Lexus til að fá lengra bann hjá KKÍ ?  Er þetta ekki soldið eins og einhver hafi lesið of mikið af Vikunni?    Prinsessan er búin að segja að þetta sé óvart og þannig er það.   Hvað er eiginlega það sem þeir vilja fá fram með þessu ?  Réttlæti ?  Það er ekki til í íþróttum.

En ég veit alveg af hverju þetta fór lengra………  Tvö orð.    Ká Err.

 


Ekki svo stutt yfirlýsing varðandi leikinn í gær

March 16, 2011

Hneyksli.  Algert hneyksli.  Aumingjaskapur af hæstu gráðu.  ”Rítingsstunga í gegnum hjartað” var það sem Rummenigge lét hafa eftir sér eftir leikinn.  Alltaf nóg til af dramatískum yfirlýsingum á þeim bænum.

Ég var með slæma tilfinningu fyrir þessum leik sem staðfestist þegar byrjunarliðin voru tilkynnt.  Enn ein roteringin í miðvarðarparinu, núna voru það Breno og van Buyten. Það sér það hver maður að þetta miðvarðarpar er ekki boðlegt hjá liði sem vinnur Meistaradeildina.  Breno er óöruggur og er ekki nógu líkamlega sterkur.  Hann var sendur til Nürnberg á láni allt tímabilið í fyrra og nú á hann alltíeinu að vera í Bayern-klassa ?  Van Buyten er ágætis skallamaður af gamla skólanum en hann er seinn og brýtur klaufalega af sér.  Og svo Pranjic í vinstri bakverðinum ?   Er þetta virkilega vörn sem maður getur treyst?

En að leiknum í gær.  Ég verð að játa það að fyrirfram hvarflaði ekki að mér að Bayern myndu tapa þessum leik. Allianz hefur alltaf reynst happadrjúgur völlur og Bayern var náttúrulega með 1-0 forystu eftir fyrri leikinn.   Svo kemur Etoo Inter yfir sem var ákveðið áhyggjuefni en Bayern náði  að jafna strax sem var akkurat sem þurfti.  Og eftir að Müller kom Bayern yfir 2-1 þá hélt maður að þetta væri komið.  Reyndar sér maður á Müller þegar hann var að fagna markinu að hann hélt líka að þetta væri komið.  Sennilega var það vandamálið.  Og svo óðu Bayern í færum eftir þetta.  Tala nú ekki um Ribery sem komst svo aleinn inn fyrir vörnina, einn á móti markverðinum.  En allt klikkaði.

Og svo gerist sem maður óttaðist.  Smám saman fóru skotbirgðirnar að minnka og Inter kemur á lævísan hátt meira og meira inn í leikinn.  En að fá á sig tvö mörk eftir þetta er bara skandall.  Og að þurfa að horfa uppá einhvern feitan Júgga fara úr bolnum á Allianz og fagna eins og geðsjúklingur var ekkert sem gladdi mitt hjarta, verð ég að segja.  Og bæþevei, þetta þriðja mark kristallaði allt sem ég var að segja varðandi vörnina….

Etoo fær boltann, dekkaður af Breno og maður sér að Breno á ekkert í hann.  Einfaldlega ekki nógu mikill skrokkur.  Etoo losar sig laglega undan honum, gefur á feita Júggann sem skorar.  Hefði hann tekið Thomas Linke svona ?  Eða Per Mertesacker?  Eða Klaus Augenthaler ? Guido Buchwald ?  Jürgen Kohler ?  Ég bara spyr ?  Hefði Etoo Lýsir algeru skorti á hryggsúlu í liðinu.  Ekkert stál.

Það þarf stál í þetta lið.  Það er enginn “Germanskur öxull ” í þessu liði.    Þú tekur ekkert lið eins og Bayern og reynir að gera það að ennþá lélegra liði.  Bayern er ekkert Ajax. Það er bara þannig.  Nú er kominn tími til að byrja að leika Bayern-bolta aftur.  Ég vil sterkan dóminerandi markmann, þétta og stabíla vörn og jafnvel að fara að leika með libero-stöðuna aftur.  Menn hafa verið að treysta alltof mikið á hina frábæru kantmenn okkar svo að miðjuspilið hefur gleymst.  Schweinsteiger getur ekki gert þetta allt einn og hann þarf sterkan polis með sér á miðjunni til að hann geti funkerað.  Fyrir utan það að kantmennirnir okkar eru ekkert að sýna neitt sérstakt þetta tímabil.  Robben er náttúrulega búinn að vera lengi meiddur (takk Hollenska landsliðið..) og Ribery hefur ekki náð sér á strik eftir að hann hætti að hitta frönsku vændiskonuna sem var undir lögaldri.

Ýmsir þurfa að fara.  Ég vil fá þýska leikmenn inn í þetta aftur.  Og van Gaal þarf að hætta NÚNA.

En trúið mér.  Ef ég virka æstur, ímyndið ykkur þá hvernig skapi Uli Höness er í akkurat núna…


80prósent skattur……

March 11, 2011

Það er alltaf gaman að smá-celebum á Íslandi.  Sneggsta leiðin til að öðlast frægð og jafnvel örlitla aðdáun á Íslandi er að koma sér í sjónvarp.  Margt fólk öðlast virðingu ef það kemst í sjónvarpið, hvort sem það er að lesa upp dagskrána eða þá bara að lesa fréttir.  Sumir þeirra komast meiraaðsegja á þing.

Eins og Ólína Þorvarðardóttir.  Ég rakst á alveg frábæra frétt í gær þar sem hún skrifar á bloggið sitt um þá frábæru hugmynd að þeir sem eru með 1200þús krónur í mánaðarlaun eigi að fá 70-80prósent skatt á sig.  Þetta er næstum því eins hálfvitaleg hugmynd og greinin sem menntaskólakrakkinn úr vinstri-grænum skrifaði í vikunni um að maður ætti að hafa ríkismatvöruverslanir aftur.  Hver hefur þetta fólk verið ?

En menntaskólakrakkann getur maður afsakað.  Stundum fyllast krakkar ofmati þegar þeir byrja í menntó og byrja að lesa bækur á útlensku.  Svo hefur hann séð kúl krakka í svona Che Guevara-bol og farið hrikalega oft á viðbjóðslegu, ljóðrænu bíomyndina um Che, þið munið þessi tilgangslausa mótorhjólaferð um Suður-Ameríku.   Hann er örugglega í MH og á alveg rosalega flottan palestínuklút.  Já, látið mig þekkja týpuna…..

En svona í alvöru.  70-80prósent skattur á 1200þúsund.  Þá er maður væntanlega með 240þúsund kall eftir skatta.  En maðurinn sem er með 11þúsund (sem ég geri fastlega ráð fyrir að Ólína sé með, hvernig fær hún annars út þessa tölu)?  Er hann með sína svölu milljón á mánuði. 

Og svo er reyndar eitt annað sem ég hef aldrei getað skilið frekar en vinstri-grænir -  hvað kemur ríkinu við hvað einkafyrirtæki borga í laun?


Kominn aftur.

February 23, 2011

Úff.  Loksins komst ég inn á síðuna.  Það er greinilega kominn soldill tími þegar maður þarf að hugsa sig vel um áður en maður slær inn lykilorðið.  Mörg komment og alltíeinu virðist síðan vera að vakna aftur.

E-man orðinn órólegur, Besserwisserinn farinn að kommentera og óvæntur gestur kommenterar sem er greinilega með góðan smekk fyrir fótbolta.  Treysti því að hann horfi ekkert á enska fótboltann.

En óttist eigi.  Hér verður bloggað.  Búinn að vera með þennan fræga bloggleiða undanfarið en ætla ekki að fara að væla yfir því.  Reyni að koma með smávegis Meistaradeildarumfjöllun á morgunn.


Beckham til Tottenham

January 5, 2011

Þar sem þýska deildin er komin í frí þá heyrir maður svona eitt og annað um þessa deild þarna í Englandi.

Nýjasta fréttin er sú að David Beckham fari jafnvel til Tottenham.  Frábærar fréttir.  
Tottenham gengur einmitt alveg rosalega illa núna. Þeir hafa ekki verið með eins sterkan leikmannahóp í mörg ár, eru í fjórða sæti ensku deildarinnar og eru komnir í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar. Og hvað gerir maður þá ? Jú, reynir að fá David Beckham. Maður sér þetta alveg fyrir sér…..

Já, strákar. Það gengur vel hjá okkur. Vel í deildinni og í Meistaradeildinni. Eiginlega boðar þetta eitthvað slæmt. Við þurfum að gera eitthvað við þessu, annars verðum við of góðir. Við erum eiginlega með alltof fljóta kantmenn. Getum við ekki hægt á spilinu eitthvað ? Bíddu, hvaða hægir kantmenn eru til ?
Hvað með Beckham? Hann er fínn í þetta. Og svo getum við athugað hvort John Barnes sé ennþá eitthvað að spila. Svo skiptum við út Luka Modric og þessum þarna Rafael vander-eitthvað og fáum Steffen Freund í staðinn. Þá erum við alveg seif.

Persónulega hef ég ekkert á móti David Beckham.. jú, fjandinn hafi það, ég hef alveg heilmikið á móti honum. Fyrir það fyrsta, þá er hann United-maður. Og svo Beckham til Tottenham ?  Einmitt.  Okkur vantar einmitt svona mann.  Afhverju fáum við ekki bara Freddy Ljungberg aftur, eða Eið eða Christian Vieri, hann er víst að spila ennþá.  Eða kalla á Tim Sherwood úr retirement?

Beckham er bara gamall kall. Kommon, hann sleit hásinina um daginn. Það eina sem vantaði var að hann hefði slitið hana við vikulega badmintonspilið með félögunum. Hann er svo gamall að hann er jafngamall og Sigmundur Davíð, ég tékkaði á þessu. Hafið þið séð Sigmund Davíð nýlega ? Hann á algerlega eftir að eyðileggja Tottenham-spilið þar sem hann er alltof hægur. Tottenhamspilið byggir á mjög hröðum kantmönnum en Beckham er bara staur sem gefur sendingar. Jú, góðar sendinar en hann er alltof hægur.

En hann er eflaust rosalega góður í hóp. Hann er svo mikill persónuleiki að þegar hann meiddist fyrir HM þá ákvað breska drottningin ( eða eitthvað ) að hann kæmi nú barasta með á HM til að hafa áhrif á hópinn. Jú, við sáum hann á bekknum. Hann var voðalega fínn í flottu jakkafötunum sínum. EN Jakkafötin hans höfðu engin áhrif á leikinn við Þjóðverjana, var það ?

En svona í alvöru. Þá held ég að þetta sé alveg frábært múv. Menn eru öruglega eftir einhverjum glamúr og því að selja skyrtur. En kommon, koma alvöru Tottenham aðdáendur og kaupa Beckham-skyrtur ?

En svona í lokin þá varð mér eins og svo oft áður, hugsað til hans Rummenigge. Rummenigge er yfirleitt með svör á reiðum höndum við allskonar vandamálum. Hans einkunnarorð eru “Eitt vandamál, ein lausn”

Eitt sinn, fyrir mörgum árum var hann spurður hvort hann gæti hugsað sér að kaupa Beckham til Bayern. Svarið – Nei. Hann er vissulega mjög góður leikmaður en hann er með alltof mikinn “farangur”. Mikið til í þessu hjá kallinum og við skulum vona að þetta gangi ekki eftir


Fyrirgefðu að ég sparkaði í þig ?

January 3, 2011

Ofsalega er ég orðinn leiður á þessum afsökunarbeiðnum sem nú tröllríða öllu. Nú það síðasta var þegar gaurinn sem braut á Wayne Rooney baðst afsökunar á því að trufla stórstjörnuna. Þetta getur náttúrulega haft heilmikil áhrif á Rooney og núna verður hann t.d. að haltra til vændiskvennana sinna í staðinn fyrir að taka sprettinn út úr bílnum til að sjást ekki.

Þetta er náttúrulega aðallega í ensku deildinni og kemur að mínu mati til af þessu “big four” dæmi þarna. Ef þú gerir eitthvað ljótt við leikmann einhvers af stóru liðunum þá mæta fjölmiðlar allir sem einn í rútunni heim til þín og spyrja þig af hverju þú sért svona vondur.
Hafiði oft séð leikmenn ÞESSARA liða biðjast afsökunar ? Roy Keane, Steve Gerard og svo framvegis. Nei, þeir myndu sko frekar hella sér yfir leikmanninn fyrir að “reyna” að fiska sig útaf…….

Og það er orðin svona tíska að biðjast afsökunar. Á hverju segi ég ? Keizarinn jr skilur þetta heldur ekki. Þjálfun hans sem djúpur miðjumaður er hafin og hann mun aldrei verða látinn biðjast afsökunar á því að leika fast. Haldiði að Jens Jeremies, Stefan Effenberg, Torsten Frings eða jafnvel Klaus Augenthaler hafi sent einhver hommaleg sms til leikmanns sem þeir brutu á. Nei, þeir myndu sko frekar reyna að brjóta á honum aftur þegar þeir kæmu út úr búningsklefanum.

Nei. Þetta fylgir leiknum. Menn reyna að leika fast og stundum verða tæklingarnar of harðar. En það er hluti af leiknum. Ekki reyna að gera leikinn kellingarlegri með svona yfirlýsingum, takk fyrir.
Ég tek það reyndar fram að þetta er ekki vandamál í Bundesligunni. Ef þið hélduð það.

Það eina sem maður hefur að segja við mann sem maður hefur brotið á eru gullkorn sem ég er að kenna syni mínum sem maður getur sagt þegar maður kemur laumulega til hans og stumrar yfir honum –

” Stattu upp kelling”
“heyrðu, ég held að maskarinn sé farinn að leka niður”
“Ef þú vilt meira af þessu, komdu þá til mín aftur, það er nóg til”
“nú hefurðu eitthvað að segja sálfræðingnum þínum á morgunn”
“hafðu engar áhyggjur ef þú þarft að fara á sjúkrahús í kvöld, ég skal sjá um kellinguna þína á meðan”
“heyrðu, þetta var gaman. Láttu strákana teipa þig og við hittumst eftir 10mínútur”


Áramótaannáll Keizarans

December 31, 2010

Jæja, þá kemur hinn árlegi annáll Keizarans.  Hvað var kúl á árinu og hvað var ekki kúl.  Það fyrsta sem ég sá þegar ég fór nú að undirbúa mig fyrir þennan pistil var hreinlega sorlega lítið aktivitet á Keizaranum.  Ég vissi nú að ég hafði ekki verið eins duglegur og oft áður en þetta er nú too much.  Verð að bæta úr þessu.

En hvernig var nú þetta ár ? Lítum á nokkrar pælingar.

Persónulegt líf
Í raun mjög viðburðarríkt ár og verður að teljast ákaflega gott ár hjá Keizaranum. Þetta var árið sem Keizarinn varð viðurkenndur sérfræðingur í faginu og hrokanámskeiðið sem fylgdi með staðfestingarbréfinu var einstaklega gagnlegt. Mun koma að miklum notum. Takk fyrir það.

Annars var Keizarinn óvenju aktívur á árinu hvað varðar ferðalög. Ég fór til Lapplands, Danmerkur, ÞÝSKALANDS, og svo var farið aftur í skemmtigarðinn hennar Astrid Lindgren. Tekin var árlega vikan á Íslandi um sumarið. Svo til að toppa þetta allt þá fór Keizarinn til USA í fyrsta skipti. Heimsótti Flórida, Chicago og Washington. Það var sko góð ferð. Og góður matur. Það var þá sem Keizarinn fór að fitna verulega. Á heimavígstöðvunum var allt í stabilu ástandi. Keizarinn jr er orðinn mjög aktífur og dóttirin er að verða aðeins minni gelgja sem við öll þökkum fyrir. Helst bar til tíðinda að E-man eignaðist sitt þriðja barn og reyndar gróðursetti Keizarinn alveg helvíti mikið í garðinum. Það er sko töff ef þið vitið það ekki.

Atburðir á Íslandi
Allt litast náttúrulega af þessu fjandans hruni. Það sem mér finnst standa uppúr á þessu ári er hve öll umræða er orðin þreytt. Fjandans Egill Helga og þessir atvinnulausu bloggarar eru alveg að spora út og ég kenni þeim um þennan bloggleiða minn. Stærsti atburðurinn var náttúrulega þegar Ólafur R hafnaði Icesave-samningnum. Við höfum nú átt lítið sameiginlegt í gegnum tíðina en ég verð að játa að þetta move hans Ólafs var bara fjandi gott fyrir land og þjóð.
Svo var það náttúrulega eldgosið sem stendur uppúr. Alltaf þegar ég hugsa um eldgosið þá hugsa ég um litlu kojuna mína í næturlestinni til Gällivare. Takk, Eyjafjallajökull.
Erlendir atburðir
Það sem stendur uppúr er hvað Obama er lélegur forseti en annars var þetta ár náttúruhamfara sem eru leiðinlegar fréttir. Jarðskjálfti á Haiti, flóð á Indlandi og eitthvað álíka. Byggiði betri hús bara. Þá reddast þetta. Annars var ljótu kellingunni í Burma sleppt úr stofufangelsi og annað eftirminnilegt er þessi umhverfisráðstefna þar sem öll ríkin 135 samþykktu einhvern aumingjasáttmála um að bæta jörðina. Nema Bólivia. Ekki vissi ég að þeir væru svona harðir þar.

Svo voru líka skemmtilegar fréttir. Eins og af Pútin. Hann er jafnvel maður ársins. Búinn að rétta yfir Khordorovski og var duglegur að koma sér í fjölmiðla og alltaf er hann jafn töff. Svo var njósnamálið töff, þið munið, sovésku (rosalega er mikil nostalgía í að nota þetta orð) njósnararnir sem voru sendir aftur til Rússlands. Alltaf gaman af smá njósnafréttum.

Íþróttir
Þetta hefur verið ákaflega gott fótboltaár fyrir Keizarann. Bayern varð Þýskalandsmeistari og komust í úrslit Meistaradeildarinnar en töpuðu þar því miður fyrir taktíkvélinni Mourinho. Og Tottenham komst í fyrsta skipti í Meistaradeildina eftir að hafa lent í fjórða sæti í Englandi.
Og svo var það HM, maður. Þetta er svona keppni þar sem allir hafa gleymt hverjir unnu þar sem hinir raunverulegu sigurvegarar voru Þjóðverjar. Spiluðu ótrúlegan bolta, nýjar stjörnur fæddust og bara það að hafa unnið England 4-1 lifir maður á lengi.

En látum þetta gott heita. 2010 var semsagt alveg frábært ár. Eina sem skyggir á árið er að Keizarinn fitnaði alveg gífurlega í desember og er farinn að borða mikið af nammi og snakki. Stefnan er tekin á það að kötta sig verulega á næsta ári, massa sig upp með ólöglega fæðubótarefninu sem ég keypti í USA og blogga meira. Ekkert kjaftæði.
Góðar stundir.


Nálgunarbannið

November 12, 2010

Það er stundum hægt að hafa gaman af vitleysunni í geðveiku fólki. Eins og t.d. þetta.   Allir vita að þetta er náttúrulega alger della og Obama er svona mikill sveimhugi að hann gæti sko aldrei verið í neinu glæpagengi.  Hann er ekki nógu kúl.

En það er sko gott hjá honum að reyna að fá nálgunarbann á Obama.  Keizarinn varð einu sinni fyrir miklu áreiti og þurfti að fá nálgunarbann á nokkrar persónur.  Lögfræðingar geta verið til margs nýtir og Jenna Jameson og Carmen Electra hafa sko alveg látið mig í friði undanfarin ár.


Bréfasprengjurnar

November 5, 2010

Hvað er málið með allar þessar bréfasprengjur ? Einhvernveginn held ég að hryðjuverkamennirnir séu aðeins að missa kúlið núna. Eftir sprengjuárásirnar í London og Madrid og svo maður tali nú ekki um tvíburaturnana þá er þetta frekar stelpulegt og engan veginn töff.

Bréf eftir bréf. Í alvöru, hver opnar bréf sem er póstlagt í Yemen ? Eða “fjalllendi í Afganistan” ? Myndi maður virkilega opna svona pakka. Og hvernig bregðast menn við ? Jú, Grikkir stöðvuðu allan flugpóst til sín. En dramatískt !! Það þurfti sko enga sérsveit til að stoppa hryðjuverkin þar heldur nægði gamall fúllyndur kall á póstinum sem lokar einfaldlega lúgunni.

Hvað er eiginlega málið ? Eru hryðjuverkapíslarvottarnir allir búnir ? Er úlfaldaskortur ? Er kominn nýr skólastjóri í hryðjuverkaskólanum í Pakistan sem er alveg svakalega strangur og bannar allar “fræðsluferðir” og afturkallar öll leyfi nemanda svo þeir geti ekki lengur skroppið í heimsókn ? Er mullah Omar loksins búinn að fá sér sjónvarp og dottinn í sápur og hefur engan tíma fyrir vesen?

Sjáiði ekki fyrir ykkur 10manna hóp reiðra ungra manna sem eru komnir til hans og trufla hann yfir Oprah.
“Ha, hvað viljiði frá mér ?
“Meistari, gefðu okkur skipun”
“Æji, fjandans vesen. Ég hef ekki tíma fyrir þetta, getiði ekki bara sent einhverjar sprengjur í pósti og svona? ”

Annars sér maður alveg fyrir sér bálreiðan hryðjuverkamann með tryllingslegt glott og hlæjandi tröllahlátri á meðan hann setur frímerki á bréf og setur í póstkassann. ” Þið skulið sko ekkert halda að þið séuð betri en við, þið þarna rotnu Vesturlandabúar. Nú skulið þið sko fá að borga fyrir allar loftárásirnar. Ég set bara þessi bréf í póst og passið ykkur svo bara”.


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.