what comes around goes around eða eitthvað

April 5, 2011

Keizarinn fer vikulega í sund með dótturinni. Hún er nefnilega á sundnámskeiði og það er orðin hefð að dóttirin vilji fara með honum frekar en mömmunni þar sem ég er miklu harðari “bastari” en móðirin.  Dóttirin fílar nefnilega að taka gott “basta”.  Og hver er betri í að “basta” en Keizarinn ?

En almennt er þetta nokkuð næs.  Vippa mér í skýluna, skila henni í æfingalaugina og svo fer maður í heitapottinn til að drepa tímann.  .  En það hefur í för með sér ákveðin leiðindi, stundum.

Litlir krakkar eru óþolandi í sundlaugum.  Það vita allir.  Sérstaklega fullorðið fólk sem er eitt í sundi.  Þessir krakkaasnar virða nefnilega engar reglur.  Það er voðalega gaman að hoppa og hlæja eins og fífl í sundlauginni og dreifa njálgnum út um allt, en það versta er að þessir gemlingar virða ekki hin óskrifuðu lög heitupottanna.

Þar á nefnilega að ríkja rólegheit.  Og svo er stemningin soldið eins og í lyftu.  Fólk er ekkert að tala hvert við annað nema að það þekkist fyrir.  Sem hentar Keizaranum ágætlega þar sem ég er eiginlega orðinn of gamall til að eignast nýja vini.  Nenni ekki að tala við fólk sem ég þekki ekki.

En aftur að gærdeginum.  Þegar ég sit þarna makindalega í pottinum þá kemur pabbi með lítinn strák með sér.  Ég leit strákinn grunsemdaraugum frá fyrstu mínútu og þessar illu grunsemdir mínar reyndust á rökum reistar þegar strákurinn, eftir að hafa setið stilltur í svosem eina mínútu, fór á ferðina.  Og var að brölta útum allt, sýna pabba sínum hvað hann væri duglegur að gera þetta og hitt og svo framvegis.  Allt þetta óþolandi sem átta ára strákar gera.  Ég hugsaði með mér í smá stund hvort ég gæti náð mér niður á honum en málið var að pabbinn var alltaf við hliðina á honum.  Ég setti reyndar laumulega út hnéð einu sinni sem strákurinn rak sig harkalega í og meiddi sig aðeins .  En það var auðvitað óvart.

En svo náði ég mér niður á honum, í rauninni alveg óvart.  Og það er það sem titillinn vísar í, að stundum hefur maður heppnina með sér.  Keizarinn þurfti skyndilega að fara að pissa.  Vippaði mér útúr pottinum og fór á klósettið.  Klósett í sundlaugum eru alltaf ógeðsleg.  Það er regla.  Maður stendur í einhverjum polli þegar maður er að taka sér stöðu og veltir fyrir sér hvort maður standi í pissi eða vatni.  En þarsem ég stend og velti þessu fyrir mér þá sá ég að setan var niðri.  Eftir smávegis íhugun ákvað ég bara að láta vaða.  License to spill.  Nema hvað.  Ég borgaði mig nú dýrum dómum inn þannig að maður á nú inni soldið License to Spill.  Þannig að ég pissaði á setuna og í raun verð ég að viðurkenna að ég kannski miðaði aðeins á setuna.  Bara fyrir flippið.  Af því að meiraaðsegja Keizarar geta tekið nett flipp á kantinum.

En svo kemur það besta.  Ég fór aðeins inn í bastu-ið til að hita mig upp.  Fer svo inn í sundlaug til að ná í dótturina.  Geng framhjá klósettinu.  En hvað er þetta ?  Sár barnsgrátur frá klósettinu, sem er bæþevei með hurðina galopna.  Ég labbaði laumulega framhjá.  Sat ekki litli krakkaskíturinn á klósettinu, ég tek það fram SITUR á setunni.  Hann er að grenja og pabbinn mjög samúðarfullur að reyna að hjálpa honum af því að “setan var svo blaut”.

Æi.  En leiðinlegt.  En þú áttir þetta skilið, litli strákur.  Ef þú sérð mig í pottinum aftur, farðu þá annað.


Uppeldi byggist á því að gefa réttar upplýsingar

January 10, 2011

Ég var um daginn að horfa á sjónvarpið. Fór svona að flakka á milli sjónvarpsstöðva eins og við fína fólkið gerir stundum sem hefur 49sjónvarpsstöðvar, og datt skyndilega inn á einhvern leik í spænska bikarnum, Atletico Bilbao – Barcelona. Fyrst ætlaði ég nú ekkert að horfa á þetta en svo sá ég nokkur merki um að þetta gæti orðið athyglisverður leikur.

Völlurinn var lélegur, þetta var í Bilbao og það var einhver ljótur andi yfir leiknum, þið vitið, stympingar, harðar tæklingar, menn að mobba dómarann og svona skemmtilegur, almennur pirringur sem sveif yfir vötnum. Svona ljótur andi er oft besti vinur sjónvarpsáhorfandans sem vill fá smávegis aktion. Og svo færðist djöfullegt glott yfir andlit Keizarans þegar hann velti nú því fyrir sér hvort Barcelona gæti tapað þessum leik. Og nú kemur smávegis sem ég verð að deila með ykkur.

Keizarinn hatar Barcelona.

Þetta er eiginlega soldið fascinerandi. Í raun veit ég ekki hvenær ég byrjaði að vera illa við Barcelona. Þegar ég var strákur þá hélt ég reyndar meira með Real Madrid. Sennilega vegna þess að allir aðrir héldu með Barcelona. Svo fór ég eiginlega að halda með Barcelona þegar ég varð aðeins eldri. Á seinni árum hefur þessi hrifning mín verið að dofna en svo kom alltíeinu þetta. Alltíeinu fattaði ég það að mér væri hreinlega orðið illa við þetta katalóníska smámenni.

En ég komst að því að menn geta hatað Barcelona án þess að þurfa endilega að halda með Real. Barcelona er orðið eins og ofvaxið smábarn sem er með heimtufrekju og vilja fá allt sem þeir vilja bara af því að þeir eru þeir. Eins og með leikmenn. Þeir telja sig geta fengið hvern sem er af því að hann “fái” þá að leika með Barcelona. Kommon, það eru víst ekki allir leikmenn eins og Eiður.

Og hvað er þetta með auglýsingarnar ? UNICEF ? Nei, hungurbarnaklám segi ég nú bara. Miðað við að þeir urðu næstum því gjaldþrota í sumar og urðu að taka lán til að greiða leikmönnunum laun þá ættu þeir nú bara að drífa í því að setja einhverja auglýsingar á sig. T.d. einhver vopnaframleiðandi sem á nógan pening og getur séð til þess að allir eru í stuði. Líka skæruliðarnir í Afríkuríkinu. Allir eru ánægðir. En nei.
Ekki barcelona. Þeir eru of fínir.

Þeir eru líka bad losers. Málið er nefnilega að þessi glansmynd er bara umbúðir. Þetta kjaftæði að þeir séu í þessu bara til að spila fallegan fótbolta og fari ekki niður á sama plan og önnur lið. Einmitt. Muniði eftir úðunarkerfinu sem fór í gang eftir Inter-leikinn í fyrra ? Einmitt. Það var mikil reisn yfir því.

En maður mætir samfélagslegum þrýstingi þegar maður hatar Barcelona. En maður verður að taka því verkefni eins og hverju öðru verkefni og standa í lappirnar. Og maður verður að hafa allar klær úti.

Hér kemur eitt dæmi.

Um daginn var dóttir mín að horfa ásamt föður sínum á Shakiru-myndbandið, þetta óþolandi Waka Waka lag. Það er bara fallegt þegar faðir og dóttir geta sameinast um að horfa á eitthvað í sjónvarpinu og bæði hafa gaman af. Ég ætla laumulega að koma því að í framhaldinu að hún fari nú að fíla Shakiru og ég get þá laumulega farið að sýna henni fleiri og léttklæddari Shakiru-myndbönd. Það kemur seinna.

En allavega. Pointið er að þegar þessir aumu Nike-sponsoreruðu fótboltagaurar koma í myndbandinu (enginn þýskur náttúrulega…) þá tók ég eftir því að dóttir mín þekkti litla vælukjóann, hann Lionel Messi.

Dóttir - “hey þarna er Messi” !!
Keizarinn – “hva, þekkirðu þennan litla strák”
Dóttir – “strákarnir í skólanum segja allir að hann sé æðislega góður í fótbolta”.
Keizarinn – “Og er hann það ?  Finnst þér hann   eitthvað góður ? “
Dóttir -  ”Já, hann er alveg rosalega góður”
Keizarinn - “En veistu, MÉR  finnst hann ekkert góður”
Dóttir -  ”Er það ekki ? “
Keizarinn –  ”Nei, og þú manst að pabbi kann alveg rosalega mikið um fótbolta”…………

og svo ákvað ég að gefa honum Messi litla náðarhöggið. Dóttir mín þekkir nefnilega tvo fótboltamenn, Schweinsteiger og Müller og svo hefur hún fengið að læra það að almennt gildir eitt lögmál í fótboltaheiminum,  -  Þýskaland er best -

Keizarinn – “Og veistu hvað Messi sagði einu sinni við Schweinsteiger ? “
Dóttir – frekar hissa –  ”hvað var það ? “
Keizarinn – “hann sagði að Þýskaland væri lélegt í fótbolta” – og þetta sagði ég með alveg gífurlegum hneykslunartón…..
Dóttir - “Sagði hann það ? “
Keizarinn – Ekki bara það heldur sagði hann að  Schweinsteiger væri lélegur í fótbolta”
Dóttir - “En hvað hann var leiðinlegur við hann ? “
Keizarinn –  ”ég veit það, þetta var sko ekki fallegt að segja”
Dóttir - “Nei það var það sko ekki”
Keizarinn - “En veistu hvað, Schweinsteiger og Messi fóru í fótbolta í sumar og Þýskaland vann 4-0″ .
Dóttir – “Vá. En mikið “
Keizarinn - “Og veistu hvað ? “
Dóttir - “Nei”
Keizarinn – “Eftir leikinn þá fór Messi að gráta”
Dóttir - farin að hlæja  -   “Fór hann að gráta ? “
Keizarinn – “já, hann er eiginlega eins og lítil stelpa  ”
Dóttir – “hann fór að gráta, ha ha ha” .
Keizarinn –  ” Það var nú ekki kúl”
Dóttir – “Nei”
Keizarinn – “Schweinsteiger kann ekki að gráta”
Dóttir – “En Muller ?”
Keizarinn – “Ekki heldur”


Fyrirgefðu að ég sparkaði í þig ?

January 3, 2011

Ofsalega er ég orðinn leiður á þessum afsökunarbeiðnum sem nú tröllríða öllu. Nú það síðasta var þegar gaurinn sem braut á Wayne Rooney baðst afsökunar á því að trufla stórstjörnuna. Þetta getur náttúrulega haft heilmikil áhrif á Rooney og núna verður hann t.d. að haltra til vændiskvennana sinna í staðinn fyrir að taka sprettinn út úr bílnum til að sjást ekki.

Þetta er náttúrulega aðallega í ensku deildinni og kemur að mínu mati til af þessu “big four” dæmi þarna. Ef þú gerir eitthvað ljótt við leikmann einhvers af stóru liðunum þá mæta fjölmiðlar allir sem einn í rútunni heim til þín og spyrja þig af hverju þú sért svona vondur.
Hafiði oft séð leikmenn ÞESSARA liða biðjast afsökunar ? Roy Keane, Steve Gerard og svo framvegis. Nei, þeir myndu sko frekar hella sér yfir leikmanninn fyrir að “reyna” að fiska sig útaf…….

Og það er orðin svona tíska að biðjast afsökunar. Á hverju segi ég ? Keizarinn jr skilur þetta heldur ekki. Þjálfun hans sem djúpur miðjumaður er hafin og hann mun aldrei verða látinn biðjast afsökunar á því að leika fast. Haldiði að Jens Jeremies, Stefan Effenberg, Torsten Frings eða jafnvel Klaus Augenthaler hafi sent einhver hommaleg sms til leikmanns sem þeir brutu á. Nei, þeir myndu sko frekar reyna að brjóta á honum aftur þegar þeir kæmu út úr búningsklefanum.

Nei. Þetta fylgir leiknum. Menn reyna að leika fast og stundum verða tæklingarnar of harðar. En það er hluti af leiknum. Ekki reyna að gera leikinn kellingarlegri með svona yfirlýsingum, takk fyrir.
Ég tek það reyndar fram að þetta er ekki vandamál í Bundesligunni. Ef þið hélduð það.

Það eina sem maður hefur að segja við mann sem maður hefur brotið á eru gullkorn sem ég er að kenna syni mínum sem maður getur sagt þegar maður kemur laumulega til hans og stumrar yfir honum –

” Stattu upp kelling”
“heyrðu, ég held að maskarinn sé farinn að leka niður”
“Ef þú vilt meira af þessu, komdu þá til mín aftur, það er nóg til”
“nú hefurðu eitthvað að segja sálfræðingnum þínum á morgunn”
“hafðu engar áhyggjur ef þú þarft að fara á sjúkrahús í kvöld, ég skal sjá um kellinguna þína á meðan”
“heyrðu, þetta var gaman. Láttu strákana teipa þig og við hittumst eftir 10mínútur”


Nýja auglýsingin með Dolph

January 2, 2011

Eins og þeir vita sem fylgjast reglulega með síðunni þá er Dolph Lundgren einn af verndurum síðunnar.  Maðurinn er snillingur og alveg endalaust töff.  Svo verður hann bara flottari með árunum.

Málið er með Dolph að hann hefur góðan húmor fyrir sjálfum sér og hafandi séð hann í sænska sjónvarpinu þá get ég staðfest það að “Dolph Lundgren-enskan” sem hann talar í kvikmyndum er enganveginn enskan sem hann talar raunverulega.  En það sem Dolph veit er að fólk VILL að hann tali svona ensku.

Hér kemur auglýsing sem hann var nýverið að leika í.  Alger snilld.  Og hafiði pælt í hversu mikill status það er að vera farinn að geta leikið sjálfan sig…….    Næsta skref fyrir hann verður að hann fer að geta vitnað í sjálfan sig.


Pútin og Keizarinn

August 26, 2010

Hrikalega er ég alltaf ánægður með Pútin.  Pútin er einfaldlega karlmaður karlmannanna.  Jú, hann er kannski vondur en hann er einfaldlega of svalur.  Stingandi augnaráðið og hann er einhvernveginn alltaf með þannig svip að manni finnst að hann sé að mæla út viðmælanda sinn hvaða stærð af fallöxi maður þurfi að nota við afhöfðunina.

Við munum nú eftir fréttinni um daginn.  Pútin var að horfa á svona “Fight Night” í sjónvarpinu og þá er alltaf gott að horfa á það með einhverjum buddy.  Jafnvel einhvern buddy sem þykist vita allt um sjálfsvarnaríþróttir og getur sagt endalausar lygasögur af sjálfum sér í þokkabót.  Svo hann hringdi í Jean Claude van Damme sem kom og veitti Pútin selskap í áhorfinu.

Og hann er einfaldlega of svalur.  Svo svalur að myndin af honum að skjóta hval með lásboga (eigum við eitthvað að ræða það hvað það er kúl, bara Pútin gæti gert það), vakti sjálfan Keizarann af fegurðarblundinum og ég hugsaði að nú væri ég vaknaður.  Myndi byrja að blogga aftur.

Svo við skulum öll hugsa hlýlega til Pútins og reyna að vera meira eins og hann.  Keizarinn er byrjaður aftur.  Og munum öll eftir orðum Pútin sem hann lét svo falla þegar hann fékk spurninguna hvort þetta hefði ekki verið hættulegt.  ”Lífið er hættulegt”.  Sjitt hvað maðurinn er svalur.  Lífið er sko örugglega hættulegt ef þú dissar Pútin.   Einhvern tímann hringi ég kannski í hann.


Bankaránið

July 26, 2010

Vá það er eiginlega fyndnara en allt fyndið að maður klæddur í gervi svarthöfða ræni banka eins og ég gat lesið um á netinu í gær.  Er til fyndnari hugmynd en þetta.  Það eru nokkrir menn sem engir myndu messa við í þessarri stöðu eins og t.d. Vladimir Putin, Rudger Hauer, Svarthöfði og svo Pink.  Alltaf hef ég verið hálf hræddur við hana.

En möguleikarnir eru endalausir.  Hugsið ykkur línurnar sem hann hefði getað sagt við gjaldkerann.

“Give me your money, it is your destiny.

Search your feelings, you WILL give me the money

Og kíkið á myndbandið hérna fyrir ofan.  Þú hefur aldrei verið dissaður ef þú hefur ekki verið dissaður af Svarthöfða.  Hvar fær maður annars svona kúlu-skrifstofu.  Hversu kúl yrði að vera á bakvaktinni og geta opnað kúluna þegar einhver þarf að tala við mann ?


Það sem raunverulega gerðist með Platini

July 10, 2010

Þýska landsliðið hefur verið að gera það gott undanfarið á HM en tapaði fyrir Spánverjum í undanúrslitunum. Þeir hafa farið erfiða leið á þessu HM og maður sá greinilegan mun á liðunum hvað varða þreytu í leiknum. Þetta getur ekki verið tilviljun. Nú var komið að því. Ég hellti mér einn viskí og tók upp símann. Það var kominn tími til að heyra í Michel Platini og gera upp ýmis mál. .

Platini -  Halló
Keizarinn –  Blessaður (sagt með ískaldri röddu).  Þetta er Keizarinn.  Ég vil fá að tala við Platini.
Platini- Hvað, hvernig fékkstu þetta númer?
Keizarinn –  Það er aukaatriði. Aðalatriðið er að ég er með rétt númer, ekki satt ?
Hver ert þú, litli fransmaður ?
Platini- Ég er aðstoðarmaður Platinis
Keizarinn –  aðstoðarmaður?  Er það eitthvað fínt nafn á kærasta eða ? Er hann of fínn til að svara í símann sjálfur
núna. Hann er kannski upptekinn við að skipuleggja nýjasta samsærið gegn Þýskalandi ?
Platini- Heyrðu, hverskonar dónaskapur er þetta ?
Keizarinn -  Heyrðu, litla croissant bolla. Nú er nóg komið af chit-chatti.  Láttu mig tala við hann. Þú veist að
annars kemur svarti bensinn og tekur þig…
Platini- Halló. (önnur rödd er komin í símann. Ég heyri að þetta er Platini og hann er stressaður).
Keizarinn-  Blessaður.  Þetta er Keizarinn.  Loksins getum við talað saman. Ertu kannski upptekinn ?
Platini- Nei. Ég er bara hérna á smá veitingastað í S-afríku með nokkrum félögum.
Keizarinn-Nei en gaman (í háðstóni). Þið vinirnir eruð væntanlega vanir því að eyða félagsgjaldapeningunum í
persónulega eyðslu.    Alltaf gaman að fara út á lífið með fyrirtækjakortið.  Við könnumst við þetta frá Íslandi.
Þú ert væntanlega að fagna því að Þjóðverjarnir eru dottnir úr HM eða hvað?
Platini - Nei,nei. Ekkert svoleiðis. Maður verður nú aðeins að næra sig stundum.
Keizarinn – Já. Veistu, ég þekkti einu sinni mann sem notaði einmitt þennan frasa. Hann var líka feitur eins og
þú.  Alveg rosalega feitur.  Svo festist hann einu sinni í á klósettinu.
Platini - Hvað meinarðu ?
Keizarinn – Miðað við myndir af þér þá ertu nú nokkuð duglegur við að næra þig.  Mér fannst þú alltaf soldið feitur meðan þú varst að spila en mikið hrikalega ertu orðinn feitur núna. Þú ert næstum því jafn feitur og Al Gore.
Platini- (aðeins farinn að æsa sig). Heyrðu, þetta eru nú bara særandi komment !
Keizarinn – Ég er bara rétt að byrja, kallinn minn. Ég krefst skýringa á samsærinu á móti Þýskalandi og
þýskum fótbolta almennt. Ég og mínir menn erum með sannanir. Við kunnum nefnilega að láta fólk
tala. Látið Þjóðverjana fara erfiðustu leiðina á HM en Spánverjarnir léku á móti einhverjum dúkkuliðum
eins og Portúgal. Hringurinn er farinn að þrengjast um þig.
Platini - En, nei, þetta er sko ekkert samsæri. Ég neita því alfarið ( aðeins farinn að hækka röddina).
Keizarinn – Þetta er nú meira bullið. En viðurkenndu þetta núna og málið er diskó.
Platini - Ég viðurkenni ekkert !!
Keizarinn- En heyrðu kall. Frakkarnir gátu sko ekki neitt á HM í Afríku. Þetta er deyjandi stórveldi.
Platini- Nei, þeir voru nú ekki upp á sitt besta.
Keizarinn – En ertu ennþá virkilega fúll út af leiknum þarna árið 1984?
Platini - Fúll. Nei. Hver segir það ?
Keizarinn - Þetta var sko fyllilega verðskuldað. Við létum meiraaðsegja Uli Stielike klúðra víti fyrir okkur til að
gefa ykkur forskot en þið gátuð ekki drullast til að vinna. Fóruð bara á taugum eins og venjulega.
Platini – Þetta er hneyksli. Þjóðverjarnir spiluðu ruddalega. Besti vinur minn kinnbeinsbrotnaði í leiknum.
Keizarinn - Ertu að meina þennan sem braut á Schumacher ? Hvað hét hann aftur, Battiston eða eitthvað?
Platini - Braut á Schumacher ?
Keizarinn - Klárlega brot. Schumacher er að fara í úthlaupið og þessi kærasti þinn kemur þarna hlaupandi, baðandi út
höndunum eins og taugaveikluð kona á útsölu og hleypur beint á Schumacher
Platini – En Schumacher braut á honum ?
Keizarinn – Nei, kallinn minn. Dómarinn dæmdi ekki neittt. Við getum ekki borið ábyrgð á einhverjum linum
gaurum sem meiðast í 50/50 samstuðum. En fékk hann einhverja lyfjameðferð við þessu ?
Platini – Hvað meinarðu, lyfjameðferð. Hann kinnbeinsbrotnaði.
Keizarinn – Nei, ég meina lyfjameðferð við beinþynningunni, ha, ha, ha. ( Keizarinn hlær tröllahlátri). Svona eins
og gamla fólkið. Fótboltamaður með beinþynningu…. (Keizarinn hlær aftur tröllahlátri og nær meira
að segja pínulítið út í hlátur Keizarans í Star Wars)
Platini – Nei, nú gengur þú of langt. Þú og Rummenigge munið fá að borga.
Keizarinn - Hvað ætlarðu að gera ? Við Rummenigge skjálfum alveg á beinunum.
Ætlarðu að kasta einhverri fínni rauðvínsflösku í okkur eða jafnvel stinga okkur með baguette ?
Platini – Þú, þú…….

Svo komu skruðningar og læti. Símtalinu lauk. Verki mínu var lokið. Svo las ég þetta á netinu. En hann er víst kominn heim núna, kallinn og vonandi erfir hann þetta ekki við mig. En, ég er ennþá með símanúmerið hjá honum………….


Nýi Chuck Norrisbrandarinn

May 9, 2010

Hafiði heyrt nýjasta Chuck Norrisbrandarann.

There is no vulcano in Iceland.  Chuck Norris is just having a barbecue………….

ps   Ég hitti Englending á kúrsinum um daginn.  Hann var einmitt að fjargviðrast yfir fjármálakrísunni og því að allar flugsamgöngur hefðu farið úr skorðum.  Samferðamenn mínir hlustuðu glottandi á hann og bentu svo á mig og sögðu :  ”Talaðu um þetta við hann, hann er Íslendingur”. Svo horfðu þeir á mig, ögrandi, í von um að segði eitthvað fyndið.  Þessi gaur er nefnilega frekar stór kall og einn af kennurunum á kúrsinum.

Þá slengdi ég fram brandaranum um að “We were aiming for London but it´s hard to control a vulcano”.    Hann hló nú aðeins, en sparlega.  Svona léttur samkvæmishlátur.  En honum var ekki skemmt, það var greinilegt.  Ég hinsvegar hló dátt að eigin fyndni og félagar mínir bökkuðu mig upp í gervihlátrinum.

En samferðamenn mínir buðu mér uppá bjór fyrir tiltækið.  Það er stundum gott að vera trophy-Íslendingurinn í vinnunni!!


Flugslysið í Rússlandi og 10reglur Keizarans hvað varðar flug

April 10, 2010

“Hörmulegt flugslys í Rússlandi “

Já, þetta var soldið ironiskt að forseti Póllands lætur lífið á leiðinni á minningarhátíð um fjöldamorðin í Katynskógi þar sem 22þús Pólverjar voru líflátnir af Rússum. Eftir stríðið tilheyrir þetta svæði nú Rússlandi þannig að það var skýringin á þessum þvælingi hans til Rússlands.  Kannski fannst Rússunum 22þús ekki nóg.

Ein pæling þegar maður les þessa fyrirsögn í dag. Eru flugslys yfirleitt annað en hörmuleg ? Eru til “góð” flugslys ? Eru sum flugsslys betri en önnur.  Eða eru bara eins og venjulega, íslenskir blaðamenn steikur……….

Annars koma hérna nokkrar ráðleggingar Keizarans um flug almennt.  Þetta getur verið gott að hafa í huga þegar menn eru að ferðast og að mörgu er að hyggja.

1. Veldu flugfélögin sæmilega skynsamlega
Persónulega myndi ég til dæmis aldrei ferðast með Aeroflot eða einhverju afrísku flugfélagi.
Enginn heilvita maður flýgur með Aeroflot. Yfirleitt yfirvinn ég mína flughræðslu með því að hugsa um að flugstjórinn sé í sömu súpu og ég og reyni pottþétt sitt besta þar sem hann vill ekki drepast heldur. Rússum er hinsvegar ekki treystandi. Ég myndi ekki einu sinni vilja fljúga yfir Rússland. Hver vill vera undir forsjá ölvaða, rússneska flugumferðarstjóranum sem var að oppna aðra vodkaflösku vaktarinnar

2. Ekki hefja samtöl við aðra farþega sem þú þekkir ekki
Þú veist aldrei hvað þú ert að fara út í. Þú gætir verið að fara að fá lífsreynslusögu bitru konunnar eftir skilnaðinn.

3. Ef boðið er uppá ókeypis áfengi þá færð þú þér. Annað er bara ekki kúl.

4. Ekki verða fullur í flugvélinni. Það er gott mál að verða mjúkur en þú vilt geta staulast út um neyðarútganginn á no-time eftir brotlendinguna

5. Ekki fara að sleikja upp flugfreyjurnar.
Það er ekki kúl. Þær eru alltaf með svona uppgerðravinahót og markmið þeirra er að við séum öll svona “saman” í ferðalagi, þær líka. Það er þeirra lymskulega aðferð til að vinna minna. Láttu þær þjónusta þig, þú ert nú einu sinni búinn að borga formúgu fyrir miðann. Og í guðanna bænum, ekki taka undir þetta uppgerðarbless þeirra þegar þær segja bless þegar þú ferð úr vélinni. Þetta er ekkert persónulegt, bara bissness. Segir þú innilegt bless við kassastelpuna í Hagkaup þegar þú ferð út úr búðinni.

6. Biddu um blaðið, líka blöð sem þú lest ekki einu sinni.
Þú ertu að nota peninginn. Og ef maður les ekki blöðin þá getur maður t.d. notað þau til að taka við snuslummum sem þú veist ekki hvað þú átt að gera við. Svo ef maður vill imponera einhvern nálægt, þá tekur maður dagblöð á erlendum málum og þykist lesa þau. Gaur sem tekur þýskt dagblað og franskt dagblað hlýtur að vera klár. Enginn sér í gegnum þetta……

7. Eigðu sætið
Þú borgaðir formúgu fyrir sætið og það er þitt litla konungdæmi. Breiddu úr þér og skoðaðu flugtímaritið vel. Það er þín eign.  Og ef þú sérð einhverja skemmtilega grein, þá rífurðu hana út úr blaðinu.  Af því að þú átt sætið.

8. Passaðu tölvuna þína
Í flugvél eru allir að njósna um alla, þótt lítið beri á því. Enginn hefur neitt að gera þannig að þú getur gert ráð fyrir því að allir lesi það sem þú ert að skrifa á skjáinn. Spyrjið bara steikina hann Indriða Þorláksson
Og eitt enn. Ekki horfa á klámmyndir í tölvunni. Það er ekki kúl fyrir framan annað fólk.

9. Forðastu að setjast við hliðina á börnum
Börn eru ágæt en það gildir um manns eigin börn. Flest börn í flugvél eru óþolandi. Stundum getur maður verið spurður hvort maður geti skipt um sæti við einhvern svo einhver fjölskylda geti setið hlið við hlið. Ekki taka því fyrr en þú sérð sessunauta þína í hinu sætinu. Börn geta ekki verið kyrr og þau geta farið að grenja hátt.
Og aldrei fá þér nammi úr nammipokanum þeirra sem þau bjóða þér. Þá færðu alveg pottþétt njálg.

10. Ekki rísa uppúr sætinu strax og vélin er lent.
Það er eitthvað svo sveitó. Það er hinsvegar kúl að losa beltið, helst með háum smelli. Kommon, hvað getur gerst, vélin er komin niður á jörðina. Í versta falli keyrir einhver töskubíll á hjól vélarinnar. Það er ekkert stórmál. Reyndu að vera kúl, þú fylgist laumulega með því þegar er farið að koma að þér og þá, rétt áður en fólkið fyrir framan þig fer að gera sig líklegt að rísa upp, þá stígur þú upp og tekur þér einfaldlega þann tíma sem þú þarft fyrir að koma þér út. Þið hittist hvort eð er öll á bandinu að ná í töskurnar


Törninni er að ljúka…..

March 19, 2010

Jæja, gott fólk. Keizarinn er hérumbil að ljúka þessarri törn dauðans. Og þvílík törn. Ég verð nú aðeins að fá að monta mig af þessu. Nú er ég vakandi og bara nokkuð hress. Dr Leifsson getur vitnað um það að ég var vakandi í nótt og lagði mig fram um að reyna að vera harður og fókuseraður. Og kannski pínu steiktur í hausnum líka.


Ekki fékk ég neitt að sofa í nótt heldur frekar en á hinum vöktunum. Það þýðir að ég er búinn að vera vakandi síðan kl 14.30 á miðvikudaginn!!!!
Ég er merkilega hress miðað við það. Reyndar svimaði mig pínulítið í gær, ég er með pínulitla ógleði og ég held að það hafi sprungið lítil æð í öðru auganu mínu en hvað er nú það ?

Geri aðrir betur segi ég nú bara. Eftiráaðhyggja þá finnst mér þetta soldið karlmennskutest. Sleppa tveimur nóttum í röð og gera eitthvað gagnlegt í staðinn. Hver þarf kókaín þegar maður hefur zen-fokuseringu.

Þeir sem geta ekki leikið svona eftir geta annaðhvort tekið sig taki og einbeitt sér að því að vera harðari eða þá að halda áfram að bera á sig húðkrem og lesa lífreynslusögu Vikunnar. Prófiði allavega.


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.