Essasú????

October 20, 2009

Lesendur síðunnar vita að það eru tveir fótboltamenn sem eru í miklu uppáhaldi hjá Keizaranum vegna þess að það er endalaust hægt að skrifa pistla um þá.  Annar er Ronaldo en hinn er hlunkurinn. 

Rakst á þessa mynd um daginn.   Pissaði næstum því á mig af hlátri….


Leikur dagsins

October 17, 2009

Jæja, nú fer fótboltinn aftur að rúlla í dag. Bayern fer í heimsókn til nýliða Freiburg. Freiburg er búið að vera með hópinn í fríi í 14daga þar sem þeir eru ekki með neina landsliðsmenn en þetta er leikur sem verður að vinnast. Bayern Munchen hefur aðeins verið að gefa eftir aftur og eru nú 8stigum eftir efstu liðunum, Hamburg og Leverkusen.

Síðustu 3leikir hafa ekki verið okkur hagstæðir og svo er alltaf erfitt að fara í útileiki til svona lítilla liða þar sem þau líta á það sem hálfgerðan bikarúrslitaleik að leika við stórlið eins og Bayern. Munum að við töpuðum fyrir smáliðinu FC Mainz.

Þrátt fyrir fréttir á fimmtudaginn að Arjen Robben sé orðinn fit, þá getur Keizarinn staðfest að það var ákveðið í gær að hann yrði ekki með en þetta vita bara mikilvægir menn eins og Keizarinn. Óljóst er hvort Martin Demichelis verði með, enda þreyttur eftir landsleikjatörnina með Argentínu. Franck Ribery verður heldur ekki með, hnéð maður. Keizarinn verður nú bráðum að fara að kíkja á hnéð á honum persónulega, þetta gengur ekki svona mikið lengur.

Hinsvegar snúa 2jálkar aftur, fyrirliðinn Mark van Bommel og Luca Toni eru orðnir fitt.  

EN Keizarinn er bjartsýnn fyrir þennan leik.  Þegar ég hef haft svona “preview” fyrir leiki hér á síðunni þá hafa þeir unnist.  Vonum bara að þetta haldi áfram.


Það er Danmörk-Svíþjóð í kvöld……

October 10, 2009

Jæja, það er spennandi landsleikur í kvöld.  Nefnilega Danmörk – Svíþjóð á Parken.  Mikið undir þar sem riðillinn fer að klárast.  Danirnir hafa verið sannfærandi undanfarið og eru efstir í riðlinum.  Margir hafa meiraaðsegja velt því fyrir sér hvort þeir ætli loksins að drullast í úrslitakeppni HM eftir margra ára hlé.  Hinsvegar hafa þeir aðeins verið að gefa eftir í síðustu leikjum þannig að þetta er orðið aðeins spennandi aftur. 

Það sem kryddar leikinn er auðvitað hinn legendaríski leikur fyrir 2árum á Parken.  Þá var staðan 3-3, kemur horn og Poulsen slær leikmann Svíanna og Svíar fá víti þegar 1mín er eftir.  Þá kom bulla inn á völlinn og reyndi að slá til dómarans.  Leikurinn var flautaður af, Svíar unnu 3-0 og komust áfram í úrslitakeppni EM en Danir ekki. Danir þóttust nú ferlega svekktir en allir vita að Zlatan hefði náttúrulega skorað úr vítinu og Svíarnir unnið hvort eð er.

Nú eru Danir við öllu viðbúnir.  Þeir eru búnir að reisa svona öryggisnet kringum völlinn svo enginn komist yfir.  Svíarnir hafa nú haft góðan húmor fyrir þessu og það var frétt um daginn í Aftonbladet með mynd af Svíum í dönskum hummel-treyjum sem yrðu á leiknum, viðbúnir að hlaupa inná ef leikurinn væri að fara illa. 

Danirnir mættu hinsvegar taka öryggismálin til sín þar sem bjórdósunum rigndi yfir varamannaskýli Svíanna í fræga leiknum fyrir 2árum.

Hinsvegar reikna ég að sjálfsögðu með öruggum sigri minna manna.  Danirnir hafa einfaldlega ekki hörku í svona leiki…..

ps Þess má geta að fyrir þá sem verða nappaðir í netinu eru 10þús krónur danskar í sekt og þú mátt ekki borða vínarbrauð í 2ár……..


Plástur á meiddið-bullandi orka……..

May 14, 2009

Orkuplástrar eru aðal hittið í dag.  Las alveg ógleymanlega grein um þetta á netinu í dag sem alveg bjargaði deginum.  Maður veit varla hvar maður á að byrja.   Það er allavega ljóst að þetta “one born every minute” er enn í fullu gildi.  

Lítum aðeins nánar á gullkorn úr þessari grein.  Þessir plástrar eru sko ekkert svona rusl eins og nebbaplástrarnir sem menn notuðu.  Allir voru hættir að nota þá eftir nokkra mánuði en einhvernvegin gleymdist að segja Einari Þór Daníelssyni þetta.  Hann skeiðaði upp kantinn hjá KR með plásturinn á nebbanum þónokkuð lengi.  Hann hefur sennilega ekki verið áskrifandi að neinum fjölmiðlum og þessvegna ekki fengið að vita þetta.  Og auðvitað var það plásturinn sem jók úthaldið hjá honum en ekki einhver leiðinda úthaldsþjálfun.  Hugsið ykkur hvernig yfirferðin hefði verið hjá Andreas Brehme ef hann hefði fengið nefplástur!!!  

Allavega.  Það eru víst til allskonar plástrar.  Orkuplástrarnir svínvirka og gefum Bjarna Guðjónssyni orðið.

Ég hef fundið mun á orkunni hjá mér og verð minna þreyttur með plástrana“.  Ok, hann skilgreinir reyndar ekki hugtakið orka en hann verður allavega minna þreyttur. Og það er ekki nóg með að hann noti orkuplástrana heldur eru sko til fleiri týpur á póstlistanum…. Í greininni kemur nefnilega fram að “ hann spilar með orku- og liðleikaplástra en hægt er að fá alls konar plástra, meðal annars til þess að sofa betur og jafnvel grennast“.  

  Já, ég hugsa að margir skildu vilja vita hvernig þessir “liðleikaplástrar” virka.  Og auðvitað.  Auðvitað.  Auðvitað hafa plástragaurarnir hugsað fyrir plástrum sem láta fólk grennast.  Hvað annað. Enda stefna þeir ótrauðir á Ameríkumarkaðinn með þetta.   Honum finnst kannski plásturinn hjálpa meira heldur en segularmbandið sem hann keypti sér í fyrra.  Þó ber að geta þess að hann hefur greinilega ekki notað plásturinn lengi ef rýnt er í Bjarna beran á ofan á myndinni.  Þetta þarf kannski að byggjast upp í kroppnum áður en þetta byrjar að virka.?

EN áfram um plástrana góðu.  Fram kemur hjá Bjarna að “hann setur plástrana annað hvort á bringuna eða fæturna á sér“.

  Já, þetta eru svo öflugir plástrar að maður getur meiraaðsegja ráðið hvar maður setur þá.  Spurningin er hvort hann setji þá á skotfótinn svo hann fái meiri “orku” í skotin.  Maður gæti jafnvel prófað að setja hann á liminn, hvað ætli gerist þá?  Endalaus orka.   Spurningin er bara hvað gerist ef maður setur hann á hausinn á sér. Það kæmi mér nefnilega verulega á óvart ef framleiðendurnir væru ekki búnir að þróa svona “einbeitingarplástra” eða “kvíðaplástra”. 

En afhverju stoppa þar ?  Af hverju ekki bara fara alla leið og þróa “gáfnaplástur”.  Sem maður setur að sjálfsögðu á “heilastöðina”.   

En snúum okkur því næst að honum Jónasi, hinum Keflvíska fyrirliða Kr-inga. 

Ég finn fyrir smá orku þegar ég er með plástrana. Samt ekkert sem ég hef tekið mikið eftir. Þetta er ekkert eins og að fá vítamínsprautu,” segir Jónas Guðni, sem hefur spilað með þessa plástra í síðustu tveim leikjum.  

Jú, hann finnur fyrir smá orku en í næstu setningu segir hann samt að hann hafi nú varla tekið eftir því.  Ok, ekki beint rökfræði að hætti Aristótelesar en virkar samt.  Og þetta er ekkert eins og að fá Vítamínsprautu.  Allir vita nú að vítamínsprautur gefa mikið “kick” enda er Bvítamín í rasskinnina ákaflega örvandi.  Akkurat þessvegna er stuldur á B og C Vítamíni úr apótekum gífurlega mikið vandamál þar sem fíklar sækja mikið í þessi “örvandi efni”.  

Svo heldur Jónas áfram. Ég fór á fyrirlestur og varð hrifinn. Það er ekkert í þessu sem á að fara inn í líkamann en á samt að hjálpa manni” .

  OK.  Þetta fer semsagt ekki inn í líkamann en fer samt eiginlega inn í líkamann, ekki satt.  Því ef þetta hefur engin áhrif á líkamann þá ætti það að hafa álíka áhrif eins og Hello Kitty plástur hefur á sáragróanda dóttur minnar, ekki satt?

En. Svo kemur gullna setningin sem hefur væntanlega verið endurtekin og endurtekin og endurtekin á þessum frábæra fyrirlestri.   Nefnilega “þetta eru bara vísindi og ekkert annað“.  

 Nema hvað.  Frábær útskýring.  Svona eins og einhver spyrði mig, jæja, hvernig virkar nú þessi meðferð sem ég er að fara í ?  Og þá svara ég bara, “jú, þetta eru bara bullandi vísindi , skilurðu….”

Þetta örvar nefnilega rafsegulsvið líkamans.  Hmm, hljómar kunnuglega.  Og svo kemur alveg frábær skýring frá gaurnum sem eru að selja þetta, jú, að sjálfsögðu vísindaleg skýring :

Þetta er lokað kerfi. Það eru engin efni, krem eða lyf sem fara inn í líkamann sjálfan heldur eingöngu tíðni. Þessi tíðni verður til við sambland sykurs, súrefnis og blöndu af amínósýrum sem eru inni í plástrinum. Það er í raun og veru bara hómópata-remedíur. Þetta eru náttúruleg efni.”  

  Ok, reynum að skilja þetta aðeins.  Þetta eru náttúruleg efni, jafnvel hómópatísk efni en í sömu setningunni kemur fram að það eru engin efni sem fara inn í líkamann.  Þetta snýst bara um tíðni (þið munið, rafsegulbylgjurnar).    Samt er personal favorite þetta með “lokaða kerfið”.   Kannski hoppaði maður yfir margar blaðsíður í bókunum á sínum tíma en hvaðan í fjandanum kom þetta lokaða kerfi?    Alger schhnilld !!

Og það besta er að hann er svo ósvífinn að dissa svo sjálfa nefplástrana og segir að þetta sé sko ekkert svindl eins og nefplástrarnir, þetta er jú vísindi. 

Já, Keizarinn skilur þetta allavega ekki.  Sennilega er ég bara ekki nógu klár. EN þetta var allavega skemmtileg frétt.  Vonum svo bara að plástrarnir fjúki ekki af í rokinu í Grindavík í kvöld.


Skotland-Ísland

April 1, 2009

Jæja, búinn að vera heima síðustu 2daga með dótturina sem er veik.  Búinn að horfa á “Finding Nemo” 3x undanfarna daga og það er ekkert sem ég mæli yfirhöfuð með.   Hef reyndar komist að því að það er alveg ótrúlega gaman að lita í litabók.  Róandi og ég hef litað hverja myndina á fætur annarri og haft gaman af.

SKemmtum okkur líka við að horfa á út um gluggann. Horfðum t.d. á einn nágrannakrakkann í gær í fylgd taugaveiklaðrar móður sem var greinilega að reyna að læra að hjóla án hjálpardekkja.  Svo datt hann hvað eftir annað sem uppskar mikinn fögnuð okkar feðgina.  

Að öðru.  Það eru landsleikir í dag.  Ísland er að fara að leika við Skotland í dag.  Eins og venjulega eru gömlu tuggurnar farnar á stað, við eigum möguleika og gætum jafnvel farið á HM osfrv.  Svo koma eftirfarandi tuggur sem maður kannast við síðan frá síðasta leik……….
“Allir eru tilbúnir fyrir leikinn”
“Eigum möguleika”
“Verðum að vera einbeittir”
“Hinir munu vanmeta okkur”

Svo eru nokkrar komnar í viðbót. “Ætlum að deyja fyrir Ísland”. Hvað meina menn eiginlega? Allir vita nú að íslenskir atvinnumenn eru ekki beinlínis að drepast úr áhuga í þessum leikjum.

Svo frábið ég mér þessar endalausu pælingar um möguleikana á úrslitakeppninni. Það verður aldrei. Hvernig dettur mönnum annað í hug ? Jú, við erum með alveg hörku lið.
Við eigum nefnilega fullt af gaurum sem sitja á varamannabekkjunum á hinum og þessum liðum í Evrópu og við erum með þjálfara sem er rosalega skemmtilegur á blaðamannafundum.

Við munum skíttapa á móti Skotunum sem reyndar lentu í árekstri við vörubíl á móti Hollendingunum. Skíttöpuðu. En Holland er ekki Ísland. Kannski þarf ég að éta þetta ofanímig en ég stórlega efast um að Skotarnir vinni þetta ekki.

Svo í lokin. Hvað er alltaf með þessar asnalegu fréttir fyrir landsleikina frá því hve góður mórall sé í landsliðinu, hve Hemmi Hreiðars sé hress og fyndinn og því hver hafi verið bestur í lasertag. Svona eins og voðalega skemmtileg ferð hjá einhverjum kvennaklúbb eina helgi í Glasgow. Hvernig væri að fá smávegis hörku í þetta ?

Haldið þið að Siegfried Held hefði farið með strákana í Lasertag eða eitthvað álíka hópefli…..  

Svo er mjög mikilægt ða vita það hversu góður mórall er í hópnum og hvernig spurningakeppnin hafi farið.  Svo hver þekki hvern osfrv

Minnir á þegar íslensku Ólympiufararnir voru að ……….


Nútíma varnarleikur……

March 29, 2009


Svíarnir náðu góðum úrslitum í gær. Náðu 0-0 jafntefli við stelpurnar frá Portúgal. Ekki slæm úrslit því að Danirnir eiga nú eftir að leika við Portúgal á útivelli. Við vinnum alltaf Danina.

Svíarnir beittu óhefðbundinni aðferð við að gæta Ronaldos í gær. Í staðinn fyrir að leika með 4varnarmenn eins og venjulega, léku þeir með 3varnarmenn og svo settu þeir dyravörð í knattspyrnubúning.
Honum var sýnd mynd af Ronaldo og sögðu að “þessi gaur var að segja að þú værir hommi”. Þetta gekk mjög vel…..

Hér sést fyrir ofan mynd af Ronaldo og hinum nýja vini hans. Þarna er dyravörðurinn að æfa hið svokallaða “höfuðgrip” á Ronaldo. Sjáiði hvað hann er búinn að ala Ronaldo upp. Hann sagði Ronaldo bara að setjast og ekki hreyfa sig í 5mínútur og Ronaldo hlýddi. Svo eyddi hann dágóðum tíma í að plokka gelið úr hárinu á Ronaldo á meðan hann beið þægur í grasinu. Annars er það bílaplanið eftir leik…………..


Zlatan – kíkið á þetta

January 2, 2009

Dóttir mín og ég voru um daginn saman í strætó.  Ekki í frásögur færandi þangað til hún fór að syngja hástöfum eitthvað lag.  Svo heyrði ég að hún var að syngja um Zlatan.  Hann er að hennar mati besti fótboltamaður heims.   Eiður Guðjonssen er ekkert merkilegri í hennar augum en gaurinn sem kemur með póstinn til okkar. 

Við fórum svo á youtube til að leita að þessu lagi sem er mikið “cult” lag, gefið út fyrir síðasta EM og syngið af 6ára strák.  Rakst þá á þetta klipp, sem opnaði augu mín fyrir því hvað Zlatan er fáránlega góður.

Það er allavega aldrei tekið fram í sænskum fjölmiðlum eftir helgarumferðirnar hvort Zlatan hafi yfirhöfuð verið í liði sínu.  Hann kemst yfirleitt í það, ef hann er heill.  Hann hefur heldur ekki borðað jafnmarga snakkpoka og Eiður………….


Steven Gerrard afhjúpaður sem stelpa…

December 30, 2008

Iss, alltaf vissi ég að Steven Gerrard væri stelpa.  En maður hélt kannski að hann væri ekki svona mikil stelpa.  Þangað til að ég las þetta

Kommon, ég fílaði ekki einu sinni Phil Collins þegar ég var 10ára.  Ég hélt að eina fólkið sem fílaði Phil Collins væru miðaldra, taugaveiklaðar kellingar sem hringja svo í útvarp Sögu þegar þær eru orðnar drukknar. 

Svo segi ég bara, gangi þér vel í sturtunni þegar þú verður kominn í grjótið, það verða örugglega einhverjir Everton-menn þarna sem þurfa líka að þvo sér………..

En, ef hann hann verður dæmdur í svona samfélagsþjónustu (sem er nú oft með þetta fræga fólk) þá fyndist mér viðeigandi að hann og þessir slagsmálahundavinir hans verði dæmdir í það að leita uppi Phil og brjóta alla trommukjuðana hans og allar upptökugræjurnar hans, svo hann geti ekki gefið frá sér nýtt efni, aldrei.


Greyið Saviola

September 23, 2008

Ég bara varð að setja þetta inn.  Þetta er í Meistaradeildarleik Real Madrid.  Javier Saviola er að hita upp.  Varamennirnir ákveða á einhvern ótrúlega nasty hátt að plata hann í að það eigi að fara að skipta honum inná og kalla hann að bekknum.  Hann fer að klæða sig úr en þá kannast þjálfarinn sko ekkert við þetta.  Alveg ógleymanlegt að fylgjast með þessu.

Og svona fyrir ykkur sem vorkennið honum og finnst þetta vera bögg, gleymum því ekki að þessir gaurar eru með laun sem við hin munum aldrei hafa, svo það er bara gaman að geta hlegið að þessum gaurum af og til…………………..


Skandall í Munchen

September 21, 2008

Þvílíkur skandall í gær.  Bayern Munchen – Werder Bremen 2-5.   Ekki bara eitt stærsta tap Bayern á heimavelli í áratugi heldur er þetta í FYRSTA SKIPTI sem Bayern tapar heimaleik á meðan Októberfest stendur yfir.  Og til að kóróna niðurlæginguna þá komust Werder Bremen í 5-0. 

Góðu fréttirnar eru að Franck Ribery er nánast orðinn leikfær og verður væntanlega með í næsta leik.  Geri nú ekki ráð fyrir því að Klinsmann sé í góðum málum.  Við efasemdarmennirnir ákváðum að taka honum opnum huga en nú fer manni að verða nóg boðið.  Og höfum í huga að Keizarinn er forgiving í samanburði við Skuggaráðið, Rummenigge, Beckenbauer og Höness.  Allavega var haft eftir Rummenigge um daginn að Klinsmann hefði fengið nokkuð frjálsar hendur og gert miklar breytingar í klúbbnum.  Og ef breytingarnar skila ekki árangri þá eru þetta bara breytingar, breytinganna vegna.  Skilar það einhverju ???

Allavega.  Jürgen, farðu nú að skila árangri, það eru margir enn óþolinmóðari menn en Keizarinn sem eru farnir að anda niður hálsmálið á þér, vinur.