Bráðum er komin helgi. Keizarinn hefur því miður verið veikur síðari hluta vikunnar en með nýrri helgi get ég vonandi sett þessa asnalegu helgi á bakvið mig. Hinsvegar er náttúrulega ný umferð í Bundesligunni sem hægt er að fara að hlakka til.
Sjálfur ætla ég mér að horfa á laugardagsleikinn á Bay Arena þegar FC Bayern heiðrar smámennin í Bayer Leverkusen með nærveru sinni. Bayer er reyndar með nokkuð sterkt lið en hafa ekki alveg verið að ná öllu út úr liðinu sínu og hafa glímt við ýmiskonar innanhúsvandamál. Stærsta innanhúsvandamálið hefur auðvitað verið sjálfur Michael Ballack sem einhvernveginn hefur ekki átt þetta come-back sem hann vonaðist eftir. Þjálfarinn Robin Dutt sem náði feiknaárangri með hið litla lið Freburg í fyrra hefur átt í vandræðum með að finna balansinn í leikmannahópnum og mikilvægir leikmenn hafa ekki náð sér á strik eins og t.d. Simon Rolfes. En Bayer er hinsvegar alltaf erfiður andstæðingur.
En Bayer er að glíma við meiðsli. Ahhh, þessir vináttulandsleikir. Já, það voru nefnilega vináttulandsleikir í vikunni. Alerlega tilgangslausir vináttulandsleikir nema kannski fyrir það að leikmenn geta hist og matið keðjurnar sínar og skipst á Spotify-listum. En ég er búinn að komast að því hvernig maður getur notfært sér vináttulandsleiki. Og ég sé að Rummenigge er strax búinn að þjófstarta á “Pre-emptive strike” kenningu Keizarans. Hver er hún eiginlega ?
Jú, eftir landsleikjarununa þá er það nú þannig að Andre Schürrle, Vedran Korluka og Derdiyok, allir leikmenn Bayer Leverkusen meiddust smávægilega í landsleikjunum í vikunni. Og munu ekki leika á móti FC Bayern á laugardaginn.
Leyfið mér að útskýra hina Keizaralegu kenningu : “The pre-emptive strike – solving international football”.
Þetta er alger snilld. Í raun má heimfæra þetta uppá herspeki SunTzu sem var sko alveg næstum því jafn klár maður og Keizarinn. En hann var reyndar aldrei Keizari. Bara ráðgjafi.
En kenningin gengur nefnilega útá eftirfarandi : Pre-emptive strike gengur út á það að í staðinn fyrir að eiga yfir höfði sér árás sterkari manns þá ræðst þú á hann á undan. Þessu á hann ekki von á og sérstaklega þegar árásin hefst áður en að keppnin milli þín og hans byrjar. Þannig neutraliserar þú andstæðinginn í raun áður en keppnin byrjar.
Dæmi. Það er að koma EM í sumar. Ef þú leikur mjög gróft á bestu leikmenn andstæðinganna í sjálfri keppninni þá færðu náttúrulega þína refsingu þannig að það gengur ekki upp. En er til önnur leið. Ójú. Neutralisera mennina þegar þeir eru berskjaldaðir í einhverjum ómikilvægum deildarleik með félagsliðum sínum stuttu fyrir EM. Búmm. Ein tækling frá Slobodan og þeir geta ekki leikið næsta mánuðinn, sem svo óheppilega vill til að er akkurat fyrir EM. Schnilld eða hvað.
Önnur útfærsla á “Pre-emptive strike” er “The intra-operative pre-emptive strike”. Það felur í sér að plokka út mikilvæga menn fyrir mikilvægan atburð. T.d. í framlengingunni þar sem allt stefnir í vítakeppni. Það eru 10mínútur eftir. Þá reynir þú að smámeiða mögulegar vítaskyttur í hinu liðinu og svo maður þurfi nú ekki að tala um hvernig maður geti keyrt inn í markmanninn hjá andstæðingunum, t.d. uppúr saklausu horni (sorrí, maður ég var að fara í boltann)……
Það þarf reyndar ekki að meiða neina Englendinga. Þeir geta ekkert hvort eð er. Aðal umræðuefnið um landsleikinn England-Holland? . Vitiði hver hún var ? : Að Steven Gerrard var fyrstur til að óska Scott Parker til hamingju með að vera fyrirliði Englands. Þarf virkilega að hafa áhyggjur af svona liði ?
Posted by keizarinn