Góður íþróttadagur í gær

May 9, 2010

Ég má til með að deila með ykkur hvernig þetta íþróttaár er að spilast algerlega upp í hendurnar á Keizaranum.

Í gær varð Bayern Munchen meistari í Þýskalandi og endurheimtu þannig titilinn.  Þeir voru nú reyndar nánast orðnir meistarar fyrir síðustu umferðina en voru í fyrsta lagi að leika á móti liðinu sem varð langneðst, urðu að tapa og það líka með 17 eða 18marka mun.  En sem sannur leiðindaþjóðverji þá var auðvitað þetta ekki tölfræðilega pottþétt og þessvegna fagnaði maður ekki titlinum  fyrr en núna.  Þetta er búið að vera frábært tímabil hjá Bayern en tímabilinu er svo sannarlega ekki lokið.   Það hefur væntanlega verið soldið drukkið af Paulaner í Munchen í gær

En 3-1 sigur og Robben með tvö.  Þessi titill er fyllilega verðskuldaður og ég mun koma með analysu á bundesligutímabilinu fljótlega.

Svo ætla ég að nota tækifærið og óska Haukum til hamingju með íslandsmeistaratitilinn í handbolta.  Keizarinn horfði á leikinn á netinu og það er alltaf gaman af spennandi, testosteronfylltum handboltaleikjum.  Haukarnir hafa átt frábær þrjú ár undir stjórn Arons en Keizarinn minnir  ennfremur á það að Haukar eru handboltafélag, ekki fótboltafélag.

En það er alltaf gaman að valur vinni ekki.  Og minni á nýja Valsmerkið sem einhver KR-snillingur birti á KR-heimasíðunni…..


“Stórasta land í heimi”

August 22, 2008

Já, dagurinn í dag varð soldið súrrealískur.  Var á vakt og fylgdist með leiknum í gegnum tölvuna, svona eins og eg gerði með Pólverjaleikinn.  Auðvitað alveg ótrúleg lífsreynsla og eins og margir áður þá er maður varla búinn að átta sig á þessu. Þetta virtist allavega aldrei hafa verið í hættu skv lýsingunni. 

Sem Íslendingur í útlöndum hef ég ekki haft þann lúxus að geta horft á leikina í sjónvarpinu.  Hinsvegar virðist Keizaranum sem lyklarnir að velgengninni felist í tveimur þáttum.  

Vörnin er að smella feiknarlega vel saman.  Þríeykið, Ingimundur, Sverre og Sigfús eru að spila feiknarlega vel og hinsvegar er það markvarslan.  Getur það verið að Íslendingar séu loksins að fá heimsklassa markmann.  Allavega er það ljóst að bæði Svíar og Norðmenn halda varla vatni yfir Björgvini Gústavssyni.  Hann er með svona skemmtilegt Mats Olsson look og virðist hafa hans mentalitet líka.  Ég meina, í stórleik í handbolta eins og í dag varði hann 22bolta.  Þetta er svona sænskur mælikvarði á handboltamarkvörslu og er eitthvað sem Íslendingar eiga ekki að venjast.   Keizarinn lýsir hérmeð yfir velþóknun á þessum markmanni og þar að auki lookar hann vel þannig að kellingarnar fá eitthvað fyrir sinn snúð líka.

Það verður gaman að fylgjast með úrslitaleiknum.  Við höfum náttúrulega engu að tapa.  Frakkar eru með besta liðið á mótinu svo ef við töpum þá er það silfrið sem er auðvitað frábær árangur.  Ef við tökum gullið….  þá verður náttúrulega allt vitlaust.  

Gaman að heyra að Svíar eru gífurlega ánægðir með Íslendingana og maður hefur fengið að heyra það hér.  Held að nánast allir sem eru ekki Frakkar, haldi með Íslendingunum á sunnudaginn og eins og ég segi, höfum við engu að tapa.  Keyrum á þá. 

Annað athyglisvert sem maður heyrir svona í fréttunum þar sem maður getur ekki séð leikina í sjónvarpinu.  Ég vissi ekki að Ólafur Ragnar  væri í landsliðinu.  Skv fréttaumfjöllun virðist hann vera aðalmaðurinn þarna.  Gaman að sjá að hann geti meiraaðsegja notað handboltalandsliðið til að koma sér í blöðin. Það munu bætast nokkrar úrklippur í úrklippubókina hans eftir þessa ferð.

 Hvað varðar kellinguna hans, þá hef ég heyrt að það séu fín námskeið í íslenskri málfræði niðri í Alþjóðamiðstöð………….


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.