Hvaða væl er þetta eiginlega í þessum Haukurum?

March 18, 2011

Ég er ekki alveg að skilja þetta væl yfir körfuboltadeild Hauka þessa dagana.  Jú, það urðu hópslagsmál í leik karlaliðs Hauka um daginn og svo gerist það í leik kvennaliðs Hauka að leikmaður KR gefur Haukakonu olnbogaskot (óvart eða ekki ) og er rekin úr húsinu.

Og svo kemur dómurinn frá aganefndinni.  Karlaleikmennirnir fá aðeins lengra leikbann en stelpan.  Og þá brjálast Haukarnir.  Þetta er alls ekki karlmannlegt og eiginlega soldið stelpulegt af þeim.   Svona saumaklúbbsstemning yfir þessu  sem byrjar á því að ræða einhverja sakleysislega kjaftasögu þangað til að allar kellingarnar eru orðnar svo æstar að “það verður að gera eitthvað “.  “Bara eitthvað”.  Og á endanum er Haukastelpan búin að kæra þetta til lögreglunnar.     Og það er ekki gott mál.  Í alvöru.  Og aðaatriðið er að hún baðst ekki afsökunar á þessu.  Týpískt KR.  Það eru allir leiðinlegir þar og jafnvel óheiðarlegir líka.

Vilja menn virkilega svona íþróttalíf á 300þús manna skerinu.  Við höfum séð þetta á Englandi og líka á Ítalíu.  Það nýjasta er t.d. að nú er AC Milan að ráða sér high-fly lögfræðing til að áfrýja leikbanni Zlatans Ibrahimovich svo hann geti leikið leikinn mikilvæga á móti Inter.  Er þetta virkilega eitthvað sem við viljum í sportið ?

En þessi viðbrögð ?  Menn verða nú aðeins að hugsa um kúlið.  BÖS, ég veit að þú ert að lesa þetta.  BÖS er nefnilega gaur sem ég þekki sem ég held að sé aðili að málinu.  Sennilega bjó hann til myndbandið sem var sent til fjölmiðlanna í dag.  Menn skulu ekki vanmeta leyniþjónustu Keizarans, ég hef nú einu sinni aðgang að bæði Rumenigge og Putin.

Allir vita að körfubolta kvenna á Íslandi hefur verið íþróttin þar sem trukkalessurnar hafa sameinast.  Menn ættu nú bara að vera glaðir yfir því að prinsessa  eins og Margrét Kara sé í körfunni.   Og Haukastelpan sjálf hefur nú sagt að röntgenmynd sýni að hún sé ekki brotin.  Það var nú gott.  Hinsvegar hefur einvher snillingurinn á slysó komist að því að það hafi nú sennilega blætt inná kjálkaliðinn.  Þetta er nú bara eitthvað sem þessir læknar segja  til að útskýra verki eftir högg sem þú veist eiginlega ekki af hverju sjúkingurinn er með svona mikla verki.  Og ég get vitnað um það að hún hefur nú kannski bara gott af fljótandi fæði í 2vikur, það sýndist mér.  Maður getur massast upp við próteindrykki og verður flottari fyrir sumarið.

Og aðalatriðið er semsagt afsökunarbeiðni.  Hvað átti KR-ingurinn að gera ?   Láta skrifa bréf fyrir sig sem fer í fjölmiðla eins og hinir leikmennirnir ?  Mæta með konfekt, blóm og blöðrur til stelpu sem er búin að kæra mann til lögreglunnar ?  Og hún gæti ekki einu sinni borðað konfektið af því að það “blæddi inn á kjálkaliðinn” ?

En að öllu saklausu gríni slepptu þá ættu nú Haukarnir að vita það að  leikbönn kvenna og karla eru aldrei sambærileg.  Allavega ekki hvað varðar fótbolta.  Konur fá sjaldnar rauð spjöld og sjaldnar leikbönn.  Það er bara þannig.   Menn geta orðið fúlir þegar þeir lesa þetta en það er bara eitthvað sem menn verða að taka upp í næsta tíma með sálfræðingnum sínum.  En Ég hef rétt fyrir mér.  Kíkið bara á tölfræðina yfir fótboltann.

Kommon.  Kæra til lögreglunnar.  Og hvað svo ?  Ráða sér lögfræðing á Lexus til að fá lengra bann hjá KKÍ ?  Er þetta ekki soldið eins og einhver hafi lesið of mikið af Vikunni?    Prinsessan er búin að segja að þetta sé óvart og þannig er það.   Hvað er eiginlega það sem þeir vilja fá fram með þessu ?  Réttlæti ?  Það er ekki til í íþróttum.

En ég veit alveg af hverju þetta fór lengra………  Tvö orð.    Ká Err.

 


Símasölumaður-alltaf jafn hressandi

November 17, 2010

Eins og flestir vita þá eru símasölumenn öllum til ama.  En hvað er hægt að gera við þessu ?  Jú, maður getur falið sig fyrir vandamálinu og ekki svarað símanum þegar grunsamleg símanúmer hringja.  Eða að maður getur einfaldlega flúið frá vandamálinu með því að skrá sig á einhvern kellingarlegan lista sem símasölufólk má ekki hringja í.

Eða að maður getur einfaldlega tekið slaginn.  Og haft gaman af.  Stundum gengur vel og stundum ekki eins vel.  Og smám saman verður maður betri í þessu.

Um daginn hringdi símasölumaður í Keizarann sem var ansi erfiður.  Gaf sig ekki. Það var þetta gamla góða,  hann var því miður að selja eitthvað sem hljómaði of vel til að vera satt.  Þetta leit illa út á tímabili en með snilldarlegri improviseringu náði ég að snúa hann niður.

Keizarinn – Halló
Símasölumaður -Já, blessaður. Hefurðu það ekki gott ? (hress í málrómnum svona eins og Svali á FM, boðar eiginlega bæði gott og vont)
Keizarinn – Jú, jú. Alveg ágætt bara.
Símasölumaður – Heyrðu ég er að hringja út af því að þú hefur verið dreginn út, svakalega ertu heppinn, maður
Keizarinn – Hvað meinarðu, dreginn út ?
Símasölumaður -Já, við erum með svona bílahappdrætti hérna þar sem dregnir eru út nokkrir í landinu sem vinna…
Keizarinn – Já. Ok. Ég hef ekki tekið þátt í neinu svona
Símasölumaður - Nei við drögum út úr þjóðskránni
Keizarinn  - Og Hvað. Hvað þýðir þetta eiginlega ?
Símasölumaður – Jú, sjáðu til, þú heppni gaur. Svakalega ertu heppinn, annars….
Keizarinn – Já þú nefndir það svona fyrir 15sekúndum síðan. Hvað er það svona rosalegt sem ég hef unnið ?
Símasölumaður – Jú, þeir sem hafa verið dregnir út þeir fara í annan pott þar sem eru alveg rosalegir vinningar.
Keizarinn – Já, ok.
Símasölumaður – Sko það er sko bara 1á móti fjórum að þú vinnir í þeim drætti..
Keizarinn – EN gaman. Og hvað getur maður unnið ?
Símasölumaður – Til dæmis ferð til útlanda og þú velur hve marga ferðafélaga þú tekur. Hvað ertu með stóra fjölskyldu ?
Keizarinn- Fjölskyldu, minn svarti rass. Verður maður að taka hana ?
Símasölumaður – Nei. Þú ræður alveg sjálfur….  (sölumaðurinn aðeins kominn úr jafnvægi sem þýðir það að Keizarinn er kominn með yfirhöndina í samtalinu, lykilatriði….
Keizarinn – Þannig að ég gæti tekið með mér 10brasilískar ljósmyndafyrirsætur og þær verða að gera allt sem ég segi t.d. baða mig uppúr kampavíni og svoleiðis……  (þarna var ég reyndar alveg kominn fram á varirnar hvort ég mætti taka með mér 10feita Downsara og Jennu en svo mundi ég reyndar að hún ég nýbúin að vera ófrísk þannig að það yrði ekkert gaman……)
Símasölumaður – Já, þú ræður áfangastað og hve marga þú tekur með.
Keizarinn – Heyrðu það hljómar vel
Símasölumaður – Svo geturðu unnið bíla. Hvernig bíla fílarðu ?
Keizarinn –  Farið að leiðast þófið. Heyrðu vinur, nú er þetta farið að hljóma soldið ótrúlega. Ég læt nú yfirleitt bjóða mér út að borða og svoleiðis áur en maður fær svona nærgöngular spurningar.
Símasölumaður – Jú, maður borgar smávegis gjald fyrir hvern drátt.
Keizarinn – Aha. borgar maður meira og meira og þá er dregið aftur og aftur. Og svo aftur og aftur og aftur……..
Símasölumaður – Já en líkurnar eru 1 á móti fjórum maður.
Keizarinn – Heyrðu ég held ég sleppi þessu.
Símasölumaður – Í alvöru?  Af hverju ?  Veistu að líkurnar eru 1 á móti fjórum ?
Keizarinn – Heyrðu. Nú er ég þreyttur á þér. Ég sleppi þessu bara.
Símasölumaður – Af hverju ?
Keizairnn – Ég ætla sko ekkert að segja þér frá því.
Símasölumaður – Jú. Af hverju?
Maðurinn bara gaf sig ekki. Ég var kominn í smávegis vandræði en fékk þá algera hugljómun sem breytti gangi samtalsins.
Keizarinn – Það er sko persónulegt.
Símasölumaður –  Nú hvað er það ?
Keizarinn –  Þú ert sko búinn að koma mér í svakaleg vandræði. Ég var einu sinni háður spilum. Þetta var mikil fíkn. Erfiður tími fyrir fjölskylduna, skilurðu. Ég spilaði burtu öllum mínum peningum. Ég fór í langa meðferð til að sigrast á þessu og hef tekist að halda mér frá þessu hingað til.  1ár af edrúmennsku.
Símasölumaður – Jú, hvað ertu að segja….
Keizarinn Og svo dirfistu að þjarma að mér til að byrja að spila aftur. Ég finn sko alveg fyrir hvernig ég berst við freistinguna núna.  Þú trúir því ekki hvað mig langar að vera með í þessu happdrætti, ég á sko pottþétt eftir að vinna.
Símasölumaður  - Ok. Ekkert vera að þessu maður. Það er sko best að þú sért ekkert með.
Keizarinn –  Já en þú sagðir einn á móti fjórum ?
Símasölumaður – Já en þetta er ekkert sniðugt fyrir þig.
Keizarinn – Nei það er sennilega rétt. Heyrðu nú ætla ég að hringja í stuðningsfulltrúan minn. Ekki hringja í mig aftur.
Símasölumaður – Neibb. Ég strika þig út af listanum.
Vertu blessaður.

Já, þetta stóð tæpt um tíma en ég náði að snúa mig út úr þessu. Nokkuð gott trikk verð ég að segja. Mæli með þessu gegn öllum keppnum og happdrættum.  Algerlega skothelt.


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.