Kosningarnar á Landsfundinum – analyza

November 19, 2011

Hver erður formaður sjálfstæðisflokksins?  Og hverjum er ekki sama?  Það er reyndar það fyndna þar sem engum virðist sama og það sýnir auðvitað hvað flokkurinn er reyndar stór ennþá.  40prósentin hverfa seint.
Aðalleg virðast það vera rauðvínskommúnistarnir sem hafa miklar áhyggjur af þessu.  Veit reyndar ekki af hverju þar sem það er nánast enginn munur á frambjóðendunum.   EÐA hvað….    Keizarinn hefur analyzerað stöðuna.

Bjarni er eins og fæddur í jakkafötum og lúkkar vel í þeim.   Ég er viss um að hann var í jakkafötum þegar hann fór heim af fæðingardeildinni á sínum tíma.  Allavega peysu og í skyrtu undir.  Þið kannist við þetta.  Hinsvegar er hann linur.  Sem er auðvitað aldrei gott fyrir fólk sem ætlar að leiða stjórnmálaflokk.

Leyfið mér að deila með ykkur einni æskuminningu Keizarans.  Ég fór með pappa upp á stjörnuvöll þegar ég var krakki.  Þeir voru nýkomnir uppí úrvalsdeildina og KR var að koma í heimsókn á þennan frumstæða knattspyrnuvöll þeirra.  Þeir voru með frekar ungt lið og einn af aðalhype mönnunum var einmitt Bjarni Ben.  Þetta var einmitt  fyrsti eða annar leikur David nokkurs  Winnie og einu sinni í leiknum fór hann og Bjarni í 50/50 bolta.  Sem endaði náttúrulega með því að Bjarni lá eftir  með þvílíku öskrinu að það hálfa væri nóg.  Það vantaði bara að hann færi að gráta.  Stór hafsent að gráta.  Haldiði að Jürgen Kohler hefði gert það, eða Thomas Linke.  Hvað þá með Klaus Augenthaler. ?  Þá vissi ég hvaða mann hann hefði að geyma.  Hann er eflaust “rosalega fínn strákur” en hver er það svo sem ekki.

Hinsvegar er það Hanna Birna.  Það má segja margt um hana og ég hugsa að hún sé ein af þessum “erfiðu konum”.  En fjandinn hafi það, þegar hún kemur í umræðuþætti í leðurstígvélunum sínum þá er það nú bara þannig að hún er  MILF.    Og besta vinkona hennar er Ásdís Halla Bragadóttir.  Önnur MILF.  Fjandinn hafi það, þá vantar bara  Unni Steinsson  og þá verður þetta svona MILF þrenna.

Þannig að í mínum huga er þetta engin spurning.  Er ekki alltaf verið að tala um að auka hlut kvenna í sjálfstæðisflokknum ?


Kosningarnar

April 9, 2011

Ekki það að það skipti neinu máli.  Pólitískir pistlar frá Keizaranum hafa nú aldrei þótt vinsælir.  Þó að Samfylkingin reyni að vera eins og pólitískt sleipiefni fyrir Breta og Hollendinga, allt fyrir að komast í EU þá á það heldur ekkert eftir að bjarga okkur.

Í  dag segi ég :     ICESAVE, MY ASS


Áramótaannáll Keizarans

December 31, 2010

Jæja, þá kemur hinn árlegi annáll Keizarans.  Hvað var kúl á árinu og hvað var ekki kúl.  Það fyrsta sem ég sá þegar ég fór nú að undirbúa mig fyrir þennan pistil var hreinlega sorlega lítið aktivitet á Keizaranum.  Ég vissi nú að ég hafði ekki verið eins duglegur og oft áður en þetta er nú too much.  Verð að bæta úr þessu.

En hvernig var nú þetta ár ? Lítum á nokkrar pælingar.

Persónulegt líf
Í raun mjög viðburðarríkt ár og verður að teljast ákaflega gott ár hjá Keizaranum. Þetta var árið sem Keizarinn varð viðurkenndur sérfræðingur í faginu og hrokanámskeiðið sem fylgdi með staðfestingarbréfinu var einstaklega gagnlegt. Mun koma að miklum notum. Takk fyrir það.

Annars var Keizarinn óvenju aktívur á árinu hvað varðar ferðalög. Ég fór til Lapplands, Danmerkur, ÞÝSKALANDS, og svo var farið aftur í skemmtigarðinn hennar Astrid Lindgren. Tekin var árlega vikan á Íslandi um sumarið. Svo til að toppa þetta allt þá fór Keizarinn til USA í fyrsta skipti. Heimsótti Flórida, Chicago og Washington. Það var sko góð ferð. Og góður matur. Það var þá sem Keizarinn fór að fitna verulega. Á heimavígstöðvunum var allt í stabilu ástandi. Keizarinn jr er orðinn mjög aktífur og dóttirin er að verða aðeins minni gelgja sem við öll þökkum fyrir. Helst bar til tíðinda að E-man eignaðist sitt þriðja barn og reyndar gróðursetti Keizarinn alveg helvíti mikið í garðinum. Það er sko töff ef þið vitið það ekki.

Atburðir á Íslandi
Allt litast náttúrulega af þessu fjandans hruni. Það sem mér finnst standa uppúr á þessu ári er hve öll umræða er orðin þreytt. Fjandans Egill Helga og þessir atvinnulausu bloggarar eru alveg að spora út og ég kenni þeim um þennan bloggleiða minn. Stærsti atburðurinn var náttúrulega þegar Ólafur R hafnaði Icesave-samningnum. Við höfum nú átt lítið sameiginlegt í gegnum tíðina en ég verð að játa að þetta move hans Ólafs var bara fjandi gott fyrir land og þjóð.
Svo var það náttúrulega eldgosið sem stendur uppúr. Alltaf þegar ég hugsa um eldgosið þá hugsa ég um litlu kojuna mína í næturlestinni til Gällivare. Takk, Eyjafjallajökull.
Erlendir atburðir
Það sem stendur uppúr er hvað Obama er lélegur forseti en annars var þetta ár náttúruhamfara sem eru leiðinlegar fréttir. Jarðskjálfti á Haiti, flóð á Indlandi og eitthvað álíka. Byggiði betri hús bara. Þá reddast þetta. Annars var ljótu kellingunni í Burma sleppt úr stofufangelsi og annað eftirminnilegt er þessi umhverfisráðstefna þar sem öll ríkin 135 samþykktu einhvern aumingjasáttmála um að bæta jörðina. Nema Bólivia. Ekki vissi ég að þeir væru svona harðir þar.

Svo voru líka skemmtilegar fréttir. Eins og af Pútin. Hann er jafnvel maður ársins. Búinn að rétta yfir Khordorovski og var duglegur að koma sér í fjölmiðla og alltaf er hann jafn töff. Svo var njósnamálið töff, þið munið, sovésku (rosalega er mikil nostalgía í að nota þetta orð) njósnararnir sem voru sendir aftur til Rússlands. Alltaf gaman af smá njósnafréttum.

Íþróttir
Þetta hefur verið ákaflega gott fótboltaár fyrir Keizarann. Bayern varð Þýskalandsmeistari og komust í úrslit Meistaradeildarinnar en töpuðu þar því miður fyrir taktíkvélinni Mourinho. Og Tottenham komst í fyrsta skipti í Meistaradeildina eftir að hafa lent í fjórða sæti í Englandi.
Og svo var það HM, maður. Þetta er svona keppni þar sem allir hafa gleymt hverjir unnu þar sem hinir raunverulegu sigurvegarar voru Þjóðverjar. Spiluðu ótrúlegan bolta, nýjar stjörnur fæddust og bara það að hafa unnið England 4-1 lifir maður á lengi.

En látum þetta gott heita. 2010 var semsagt alveg frábært ár. Eina sem skyggir á árið er að Keizarinn fitnaði alveg gífurlega í desember og er farinn að borða mikið af nammi og snakki. Stefnan er tekin á það að kötta sig verulega á næsta ári, massa sig upp með ólöglega fæðubótarefninu sem ég keypti í USA og blogga meira. Ekkert kjaftæði.
Góðar stundir.


Forseti Írans í stuði

September 25, 2010

Nú er forseti Írans kominn á kreik aftur.  Skrýtni gaurinn með nafnið sem enginn getur stafað.  Svona þjóðarleiðtogar eru afar hressandi.  Alveg frábær náungi.    Alltaf þegar maður heldur að hann sé orðinn rólegur og hálfbúinn að glayma honum  þá segir hann eitthvað geðveikislegt.  Hann er svona eins og gaurinn sem maður bíður í partí og verður svo fullur og allir bíða í ofvæni eftir því að hann segi eða geri eitthvað hræðilegt svo fólk geti hlegið.

Eins og í gær.  Á fundi sameinuðu þjóðanna.  Frekar leiðinlegur og litlaus fundur eins og venjulega.  Menn berjast við að halda sér vakandi og menn eru svona að ræða áhyggjur.  Almennt.  Og þá kemur sko partíkallinn forseti Írans.  Fer að tala um að 911 hafi verið stórt samsæri.  Þetta hafi í raun verið Kananir sem hafi “sett þetta á svið”.  Og veit einhver afhverju hann fór að tala um þetta núna?  Það er allavega helvíti hart þegar meiraaðsegja Fidel Castro er farinn að sussa á bullsögurnar manns. 

Ætli hann sé virkilega svona brjálaður eða er þetta bara frontur?   Reyndar  talaði ég einu sinni við gaur frá Íran.  Ég notaði tækifærið þegar við vorum komnir á chattið og spurði beint út hvað málið væri með forsetann.  Og sá vildi meina að þessi gaur væri einfaldlega ekkert sérstaklega skarpur og hann meinti virkilega það sem hann segði.  Hann væri svona ” þykist vera vondur en væri bara góður”.   

En svona í alvöru.  Hvað er með myndina af íslensku sendinefndinni allri sofandi undir ræðu Mugabes.  Er það kúl?   Þó að maður hafi verið á djamminu kvöldið áður þá reynir maður nú að virðast vakandi. 

 Fyrir utan það að Keizarinn myndi sko aldrei sofa undir ræðu Mugabes. Það hefði verið kúl að sofa eða hreinlega hrjóta undir ræðum Norðmanna, Englendinga, Hollendinga og jafnvel Bandaríkjanna, bara svona útá flippið. 

Hinsvegar   eru alltaf  nokkrir þjóðarleiðtogar sem eru nógu klikkaðir til þess að mann langar að hlusta á þá.  T.d. forseti Írans, Chavez og svo Mugabe.  Og náttúrulega Pútin.  Ég myndi aldrei þora að sofna undir ræðunni hans.  Hann er sko pottþétt með snipera útum allt í salnum.  Eitt lítið hóst og þú ert farinn að sofa með fiskunum…………


Bankaránið

July 26, 2010

Vá það er eiginlega fyndnara en allt fyndið að maður klæddur í gervi svarthöfða ræni banka eins og ég gat lesið um á netinu í gær.  Er til fyndnari hugmynd en þetta.  Það eru nokkrir menn sem engir myndu messa við í þessarri stöðu eins og t.d. Vladimir Putin, Rudger Hauer, Svarthöfði og svo Pink.  Alltaf hef ég verið hálf hræddur við hana.

En möguleikarnir eru endalausir.  Hugsið ykkur línurnar sem hann hefði getað sagt við gjaldkerann.

“Give me your money, it is your destiny.

Search your feelings, you WILL give me the money

Og kíkið á myndbandið hérna fyrir ofan.  Þú hefur aldrei verið dissaður ef þú hefur ekki verið dissaður af Svarthöfða.  Hvar fær maður annars svona kúlu-skrifstofu.  Hversu kúl yrði að vera á bakvaktinni og geta opnað kúluna þegar einhver þarf að tala við mann ?


Hógværar hugleiðingar leikmanns hvað varðar Eurovision

May 25, 2010

Ég settist niður í kvöld og horfði á undankvöldið í Eurovision.  Það er svona tradition hjá Keizaranum og ég skammast mín ekkert fyrir það.  Þá get ég bæri verið að rækta alþjóðlegu og samkynhneigðu hliðina mína samtímis.

Verð að segja að mér fannst ekkert sérstakt kvöld.  En hérna koma nokkrar hugleiðingar um kvöldið.   Nokkur lög stóðu uppúr.  Moldavíulagið var bara nokkuð catchy og ég verð að segja að Möltumenn voru með ágætis lag en komust ekki áfram.  Finnarnir eru hinsvegar greinilega alveg búnir að missa touchið.   Serbía var frábær og allir hljóta að elska hoppið hjá þessum gaur. Dóttur minni fannst hann vera mjög sætur og það voru pottþétt karlmenn í salnum sem deildu hennar áliti.

Bosníumaðurinn verður hinsvegar að skilja að það er ekkert rokk við það að vera í rauðum jakka og það er heldur ekki nóg að vera með þungarokkseffekt á gítarnum, það verður ekkert meira rokk fyrir það.  Rússarnir voru hinsvegar ömurlegir en hver vill eiga reiði Pútins yfir höfði sér?

Og svo var það Ísland.  Hvað er málið með hlussuna?   Ef menn ákváðu að nota þetta koncept, afhverju ekki að taka það bara alla leið og senda bara Soffíu Hansen í staðinn ?  Eða Sturlu trukkabílstjóra?

Ég var faktískt að reyna að gægjast eftir bakraddasöngkonunum í laginu en það var varla að maður sæi þær fyrir rútunni í risastóra rauða kjólnum sem var parkeruð þarna á miðju sviðinu.   Sviðið hreinlega nötraði þegar hún tók þessi örfáu dansspor sem hún tók í laginu.   Ekki gott.   Vonandi að hún hafi nú ekki ofreynt sig þar sem hún þarf að taka nokkur skref aftur á laugardaginn.

Ein pæling í lokin.  Ætli artistarnir séu rukkaðir fyrir veitingar í græna herberginu.  Þetta er nú einu sinni í Noregi……..


Hollenskir hermenn

March 22, 2010

Alveg er stórskemmtilegt þegar menn eru að misskilja hluti.  Þessvegna leiðréttir Keizarinn með ánægju allskonar vitleysu sem fólk lætur út úr sér í fjölmiðlum.  Það er alrangt að þetta sé vegna þess að það séu hommar í hollenska hernum.  Það er auðvitað bara merki um fordóma og þannig eiga menn nú ekki að tala.  Hinsvegar gerðist þetta vegna þess að hollenskir hermenn eru kannski ekki neitt töffaralegustu hermenn í heimi.    Man einhver eftir 1942…..

óbreyttur hollenskur hermaður – Hey, sjitturinn, Þjóðverjarnir eru að koma. Hvað eigum við að gera hershöfðingi?
hollenskur hershöfðingi – bíddu ég er að hugsa..
óbreyttur hollenskur hermaður - eigum við að fara í gallann og mæta þeim “head on”?
hollenskur hershöfðingi – Nei, litli óþolinmóði strákur, ég er með ennþá sniðugra ráð….
óbreyttur hollenskur hermaður – Hvað þá, skipta hernum okkar upp í hópa og gera litlar skæruliðaárásir?
hollenskur hershöfðingi -Nei, nei, enga vitleysu. Við tökum bara tappann úr stíflunum….
óbreyttur hollenskur hershöfðingi – Eru Þjóðverjarnir vatnshræddir ?
hollenskur hershöfðingi - Alveg örugglega. Þeir komast aldrei yfir vatnið, maður.
óbreyttur hollenskur hermaður – Yeess, þú ert snillingur. Þannig að við þurfum ekkert að berjast…….

Sagði einhver gúmmíbátar………..


Repúblikani í vitlausum flokki

March 15, 2010

. Er óhætt að segja að stjórnmálaferillinn hjá Repúblíkanaflokknum sé í örlítilli hættu ?

Fyrir mann í þessum áhættuhóp þá er víst óhætt að segja að hann hafi valið sér rangan flokk.  Hvað hefði Gingrich sagt við þessu ?


Chuck Norris – 70ára

March 13, 2010

Ég sá á netinu í vikunni að Chuck Norris væri orðinn sjötugur.  Merkileg staðreynd.  Chuck Norris er sennilega einn svalasti maður í heimi, næstum því eins svalur og Dolph Lundgren.  En sjötugur, maður.  Ótrúleg staðreynd.

Þá fór ég að hugsa um ýmsar staðreyndir um Chuck Norris.  Allir þekkja jú orðatiltækið að “Chuck Norrisa” eitthvað, sem þýðir auðvitað að leysa ákveðið vandamál án erfiðleika á beinskeyttan hátt.  Svo stal ég af netinu ýmsum staðreyndum svona eins og moggabloggararnir myndu gera.   Njótið vel.

1. Chuck Norris hefur talið upp í hið óendanlega…tvisvar.
2. Chuck Norris heimsótti eitt sinn Jómfrúareyjar. Nú heita þær bara Eyjar.
3. Tárin úr Chuck Norris geta læknað krabbamein. Hann hefur því miður aldrei grátið.
4. Chuck Norris sefur ekki. Hann bíður.
5. Á eftir 31. mars kemur 2. apríl á dagatalinu hans Chuck Norris; það platar enginn Chuck Norris.
6. Þegar skrímsli fara að sofa leita þau að Chuck Norris undir rúminu.
7. Eitt sinn beit kóbraslanga Chuck Norris í fótinn. Eftir margra daga þjáningu dó slangan.
8. Chuck Norris dó fyrir tíu árum. Maðurinn með ljáinn hefur ekki enn safnað kjarki í að segja honum það.
9. Chuck Norris lék upphaflega hlutverkið í sjónvarpsþáttunum 24. Það þurfti hins vegar að skipta honum út eftir að hann var búinn að kála öllum hryðjuverkamönnunum á 12 mínútum og 37 sekúndum.
10. Chuck Norris getur skellt snúningshurðum.
11. Gíraffar urðu til eftir að Chuck Norris gaf hesti utan undir.
12. Súperman klæðist alltaf Chuck Norris náttfötum.
13. Chuck Norris getur kreist appelsínusafa úr sítrónu.
14. Chuck Norris les ekki bækur. Hann starir á þær þangað til að hann fær þær upplýsingar sem hann vill.
15. Chuck Norris sefur með ljósin kveikt. Ekki af því að hann er myrkfælinn, heldur er myrkrið hrætt við Chuck Norris.
16. Chuck Norris sefur hjá öllum konum í heimi á mánaðarfresti án þess að nokkur viti. Afleiðingin er vikublæðing hjá konum.
17. Hundurinn hans Chuck Norris hirðir upp sinn eigin skít. Chuck Norris tekur ekki skít frá neinum.
18. Chuck Norris getur kyrkt menn með þráðlausum síma.
19. Chuck Norris spilar á fiðlu með píanói.
20. Árið 1991 spilaði Chuck Norris 18 holu golfvöll á 14 höggum, sem er tveimur höggum frá því besta.
21. Chuck Norris var eitt sinn kærður fyrir morðtilraun. Málinu var umsvifalaust vísað frá því Chuck Norris gerir ekki tilraun til morðs.
22. Þegar Chuck Norris borðar epli byrjar hann á kjarnanum.
23. Chuck Norris býr til snjókarl úr rigningu.
24. Chuck Norris spilar rússneska rúllettu með fullhlaðna skammbyssu – og vinnur alltaf.
25. Chuck Norris getur drekkt fiskum.
26. Chuck Norris kýldi eitt sinn mann í sálina.
27. Þegar Chuck Norris gengur inn í herbergi kveikir hann ekki ljósin – hann slekkur á myrkrinu.
28. Eina skiptið sem Chuck Norris hafði rangt fyrir sér var þegar hann hélt að hann hafði gert mistök.
29. Chuck Norris er ekki vaxinn niður eins og hestur, heldur eru hestar vaxnir niður eins og Chuck Norris.
30. Það var talið afrek þegar maður fór niður Niagra fossa í tunnu og lifði það af. Chuck Norris fór upp Niagra fossa í pappakassa.
31. Chuck Norris spáir ekki í framtíðina; framtíðin gerir það sem Chuck Norris segir.
32. Flestum karlmönnum er sama þótt konur þeirra dreymi um Chuck Norris í rúminu. Þeir gera það nefnilega líka.
33. Chuck Norris fór eitt sinn til mars. Þess vegna eru engin merki um líf á þeirri plánetu.
34. Kínamúrinn var byggður til að halda Chuck Norris í skefjum. Það mistókst.
35. Ef þú átt þúsund krónur og Chuck Norris þúsund krónur, þá á Chuck Norris meiri pening en þú.
36. Chuck Norris er eini maðurinn sem hefur pantað BicMac á Burger King og fengið hann.
37. Chuck Norris gefur alltaf blóð til blóðbanka, bara ekki hans eigin.
38. Ef blað vinnur stein, steinn vinnur skæri og skæri vinna blað, hvað vinnur allt saman? Chuck Norris.



Haider – RIP

October 11, 2008

Á þessum tímum kreppunnar kom allt í einu í morgunn inn stórfrétt.  EN lítið bar á henni vegna annarra stórfrétta.  Jörg Haider lenti í bílslysi í gær og er dauður, steindauður………. 

Dr Haider var 58ára gamall lögfræðingur.  Hann varð leiðtogi Þjóðarflokksins í Austurríki og árið 1999 unnu þeir stórsigur í kosningum þar.  Mynduðu svo stjórn með Frelsisflokknum.  Þetta kallaði yfir mikla reiðiöldu í Evrópu hjá “gáfaða fólkinu” þar sem Haider hafði víst rangar stjórnmálaskoðanir.  Hinsvegar var þetta bara rökrétt stjórnarmyndun hjá sjálfstæðu ríki sem hafði haldið kosningar á hefðbundinn hátt.  Vandinn vara bara að þetta voru víst “rangar niðurstöður”.     Þetta gekk svo langt að helvítis Evrópubandalagið sýndi sitt rétta andlit, andlit kúgunar og forræðishyggju, og beitti Austurríki refsiaðgerðum, ótrúlegt en satt.  Síðan tók að fjara undan Haider en hann fannst þó alltaf í skugganum og var undir það síðasta fylkisstjóri í einhverju fylki í s-Austurríki.

Haider var mikill persónuleiki, hafði víst þennan one-on-one sjarma og þar af leiðandi vinsæll stjórnmálamaður þótt afar umdeildur væri. Þetta hef ég eftir austurrísku vinafólki mínu sem er uppalið í þessu fylki sem hann var frá. Hann var fylkisstjóri í einhverju fylki í Austurríki og ákaflega vinsæll af fólkinu þar.   Var víst svona go-to gæi.  Vegna stjórnmálaskoðana sinna var hann þó eins og fyrr segir ákaflega umdeildur og það kannski ekkert skrítið.  Verður ekki kveðinn dómur um þetta á þessarri bloggsíðu, fólki er auðvitað frjálst að hafa sínar eigin skoðanir. 

Keizarinn hefur fylgst af velþóknun með Dr Haider.  Mér finnst dauði hans vekja upp ýmsar spurningar.  Er þessi tímasetning ekki svolítið heppileg ?   Það sem venjulega hefði orðið stórfrétt týnist þar sem margar stærri fréttir skyggja á.   Svo er það sjálft slysið, engin vitni, hann missir stjórn á bílnum og fer í klessu.  Strax er tilkynnt að ekkert óvenjulegt hafi verið á seiði.  Er hægt að segja svona strax ?   Eflaust var þetta svona en Keizarinn krefst þess allavega að þetta verði rannsakað í þaula. 

Jæja, farinn að sjá Ísland skíttapa í fótbolta, enn eina ferðina.


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.