Já, Tottenham. Hvað getur maður eiginlega sagt núna. Hef ákveðið að setja upp nýjan flokk fyrir færslurnar sem muna héreftir heita “kvartað yfir Tottenham”. Eins og einhver sagði : “Lífið er of stutt fyrir að halda með Tottenham”.
Einhvern veginn er samt Tottenham eins og fulli frændinn í fjölskylduboðinu, svo ég vitni í orð þekkts Köttara þegar hann lýsti Þrótti í fótbolta. Málið er að engum er illa við hann og allir hafa svolítið gaman af honum en einhvernveginn tekst honum alltaf að klúðra fyrir sjálfum sér með einhverri vitleysu. Þá er svo bara byrjað upp á nýtt og reynt aftur.
Það er langt síðan maður var jafn bjartsýnn fyrir tímabilið og núna. Loksins komnir með almennilegan þjálfara, komnir með ágætis hóp en hvað gerðist eiginlega ? Jú, fyrst sviku búlgarska vændiskonan og írski garðdvergurinn okkur, allt fer í panik, og menn sitja eftir næstum því framherjalausir. Fengum einhvern framherja frá Man Utd í staðinn “til að fá reynslu”. Hann var ekki einu sinni klárari en það að hann lét hafa eftir sér að þetta yrði góður reynslutími fyrir hann áður en hann færi svo að spila með Man Utd aftur!!! Persónulega veit ég alveg hvað Keizarinn hefði sko gert við svona dindla og ég hefði sko farið létt með að hanna gott “æfingaprógramm” fyrir hann………..
Allavega. Það er ljóst að eitthvað var ekki að virka. Hvað það var veit auðvitað enginn. Fótbolti er stundum skrítin íþrótt. Ramos kom allavega liðinu í form en lítið meira. Hann er án efa frábær þjálfari og svo var hann bara svo kúl. Einhvern veginn var hann ekki að virka í Englandi. Hvort það voru tungumálaerfiðleikar eða hvað, veit ekki. Keizarinn sér mikið eftir honum.
Hinsvegar fær stjórnin prik fyrir að gera loksins eitthvað að viti. Þegar menn tóku ákvörðunina að reka Ramos þá útfærðu þeir það allavega teknískt vel. Sömdu strax við Redknapp og komu þannig í veg fyrir einhverjar pælingar og óskalista hver yrði næsti þjálfari. Og svo er auðvitað það skrítna. Stundum virðist nóg að rugga bátnum og hrista upp í liðinu.
Leikurinn gegn Bolton var besti leikur tímabilsins hjá Tottenham. Luka Modric var valinn maður leiksins hjá soccernet, Rússinn skoraði , Bentley náði loksins að gefa eina sendingu fyrir markið osfrv.
Redknapp hefur alltaf farið í taugarnar á mér. Hann er svona hommalegur tjalli sem er sko ekkert kúl. En það er allavega kúl að vera farinn að vinna leiki. Keizarinn lýsir hérmeð yfir stuðningi við kallinn.
ps - Vek athygli ykkar á því að þetta er hundraðasti pistill Keizarans. Stoltur af því.
Posted by keizarinn