Cranberries

October 24, 2010

 Ég er búinn að vera latur. Ekki nennt að blogga. En ég stóð mig að því í dag að finnast netrúnturinn minn orðinn hálf leiðinlegur. Facebook er leiðinlegt og hvað þá þessir bloggarar sem tröllríða öllu. Og þá hugsaði ég mér að ef netsíður eru leiðinlegar þá verður maður kannski bara að skrifa eitthvað sjálfur. Þá er allavega ein almennileg síða sem maður getið lesið.

Og við byrjum á lagi.

Enn og aftur fáið þið snilldarlag frá Keizaranum.  Þetta er svona svo þið getið þroskað ykkar tónlistarsmekk að hætti Keizarans, en eins og allir vita þá er Keizarinn hálærður tónlistarmaður svo þið getið treyst þessu.

Þetta lag kom á sínum tíma sem sprengja inn í bransann.  Varð alveg feiknarlega vinsælt. Eins gott og lagið var í byrjun þá varð maður þokkalega þreyttur á því eftir soldinn tíma.  En þetta eldist allavega vel.  Cranberries er náttúrulega Írsk hljómsveit og ég hef alltaf verið hálf smeykur við söngkonuna þeirra. Hún virðist erfið. En hún er víst svakalega klár. Einhverntímann las ég það að hún hefði verið ein af 10 ríkustu konum Írlands og hefði fjárfest sniðuglega. Ætli hún sé fúl útaf kreppunni í dag……..


Guns and Roses – You could be mine

September 22, 2010

Jæja, það er kominn tími á tónlistarmyndband.  Þetta lag vekur alltaf upp nostalgíu hjá Keizaranum.  Þetta minnir hann nefnilega á sumarið í Þýskalandi.  Úff, þetta var yndislegur tími.  Læra þýsku, drekka í sig þýska menningu, njóta þýska sumarsins, hvað er hægt að hafa það betra.  Enda eru bestu sumurin í Þýskalandi.

Keizarinn var með alveg ákaflega sítt hár um þetta leyti.  Enda var ég tekinn í tollskoðun dauðans á flugvellinum í Köln þegar haldið var heim á leið.  Enda ekki skrýtið.  Með sítt og ritjulegt hár (sumir ónefndir menn sem eru hættir með bloggsíðuna sína kölluðu þetta “heróínhárið”), ungur maður að ferðast einsamall, í leðurjakka og í skyrtu sem ekki var gyrt niður í buxurnar.  En þeir fundu ekkert.  En talandi um heróínhár…..

Hvað er eiginlega málið með Axl Rose.  Þrátt fyrir að þetta sé ógeð þá verð ég að segja að engir aðrir gætu púllað það að standa á sviðinu á skyrtu og nærbuxunum og einhvern veginn virkar þetta alveg ferlega eðlilegt.


Guns and Roses – Civil War

June 9, 2010

Þetta lag var í uppáhaldi hjá mér á tímabili. Ég hafði reyndar alltaf horn í síðu Guns and Roses. Það er aldrei styrkleikamerki að vera háður því að geðklofasjúklingur taki lyfin sín svo að liðið þitt funkeri. Svo voru þetta svona draslrokkarar frá Kaliforniu sem er náttúrulega miklu minna svalt en að vera þunglyndislegur, níhilistiskur grunge gaur frá Seattle.  Svo er líka soldið broslegt þegar greindarskertir dópistar ætla að kenna manni pólitík, hvað er rétt og hvað er rangt.

Myndbandið fór reyndar  í taugarnar á mér. Svona klippur úr Saving private Ryan. Reyndar alveg þolanleg mynd. Ég og besserwisserinn fórum á þessa mynd fullir fordóma og alveg tilbúnir að ganga út í hlé. Ég og Spielberg höfum aldrei verið neinir sérstakir vinir, allavega ekki eins og ég og Rummenigge, en ég verð að játa það að þetta er ein skásta mynd hans. Allavega betri en þessi þarna gráa mynd þarna, hvað hét hún aftur  ?   Schindlers eitthvað.  Það voru sko 3 klukkutímar af lífi mínu sem ég fæ aldrei aftur.

Verð að játa að byrjunaratriðið í myndinni er með því besta sem ég hef séð. Þvílíkur raunveruleiki og þvílík myndataka. En ég leiði alltaf hugann að einu þegar ég sé þetta byrjunaratriðið. Hvernig hefði farið ef Rommel hefði fengið að klára verkið sem hann vann að , þ.e. að hafa yfirumsjón með vörn strandarinnar ??

Auðvitað hefðu bandamenn unnið að lokum en svona herfræðilega er forvitnilegt að vita hvernig málin hefðu þróast ef þeir hefðu ekki komist upp klettana.


Therapy – screamager

March 12, 2010

Þetta er frábær dagur.  Þessum degi ber að fagna.  Og þá fer maður að hugsa um hvaða tónlistarmyndband sé viðeigandi við svona tilefni.  Og hvað er betra en þetta.

Þetta er og verður, alltaf eitt af mínum uppáhaldslögum. Alger klassíker.

Þetta er af hinum legendaríska diski, Troublegum, sem á hvern smellinn á fætur öðrum. Ekkert sérstaklega þekktur diskur en det är skitsamma, svona eins og Svíinn segir. Man alltaf eftir því að pabbi gamli gaf Keizaranum þennan disk í jólagjöf á sínum tíma. Reyndar samkvæmt óskalista. Svo sagði hann þessi fleygu orð á aðfangadagskvöld þegar ég opnaði pakkann ( hann er gífurlega orðheppinn, sá gamli), ” Therapy? – YOU need a therapy !! “.

Þetta vídeó er snilld.  Algert rokk.   Ein upptaka, hljómsveitin spilar og allir eru í stuði. Sama uppstilling og í hinni legendarísku hljómsveit Böl Mannkyns. Einn á trommur, einn á bassa, einna á gítar. Þarf ekkert meira.
Hér sé stuð. Ekkert meiköpp, búningar eða vesen. Bara rokk.

Þetta eru reyndar norður-Írlendingar. En þrátt fyrir það, þá er þetta ein af mínum uppáhaldshljómsveitum. Og þetta eru lúterskir mótmælendur, engir fjandans kaþólikkar sem trúa á konu eins og U2.

Þannig að ef þú villt verða harður gaur eins og Keizarinn þá kaupirðu þér náttúrulega þennan disk. Því þeir sem eiga ekki Therapy, þeir eru kellingar. Í guðanna bænum skiptu nú  út Kalla Bjarna disknum þínum og keyptu þér þennan.

Ein samviskuspurning ?  Langar þig ekki að fara niður á Hlemm og berja pönkara eftir að hafa heyrt þetta lag ??


Franz Ferdinand – Take me out

December 13, 2009

Hérna eru Franz Ferdinand á tónleikum á heimavelli í Skotlandi.  Stemningin góð og þrátt fyrir að þetta séu frekar lúðalegir gaurar þá er það nú þannig að þeir eru nú einu sinni skotar.  Þetta er lagið sem gerði þá fræga – njótið…


Nirvana – you know youre right

December 6, 2009

Hef verið undanfarið aðeins að blaða í Kurt Cobain bókinni og hugurinn hefur flakkað aftur til gamalla, góðra tíma.  Alltaf gaman að hlusta á Nirvana og mér finnst alltaf jafn fyndið eða sorglegt að hugsa um að þegar þetta gamla lag var gefið út, fyrir nokkrum árum, þá var þetta samt eitthvað það ferskasta sem komið hafði fram í rokkinu síðan Nirvana dó……

Það segir ýmislegt um hversu mikil yfirburðahljómsveit þetta var


Lag dagsins – L7 – Shitlist

September 22, 2008

Þetta er sko tussurokk af bestu gerð.  Alltaf þótt vænt um þetta lag sem var reyndar í Soundtrackinu af hinni ömurlegu mynd smámennisins Olivers Stone,  Natural Born Killers.  Alveg hrikalega ofmetin mynd hjá einhverjum ofmetnasta leikstjóra samtímans.  Hann er svo sannarlega á hinum Keizaralega Shitlist eftir Nixon-myndin sem hann reyndar hafði ekki einu sinni manndóm í að gera fyrr en Nixon kallinn var dauður. 

Þetta var nú smávegis útúrdúr.  L7 stelpurnar eru krónískt reiðar og vei þeim sem notar vitlausa línu á þær á barnum.  Þetta eru svona “ef þér finnst mér ekki sæt, þá lemjum við vinkonurnar þig í klessu” stelpur og ber að umgangast með varúð.  Ég yrði allavega skíthræddur við þær.


Selfoss, örlagadagur í 1.deildinni

September 20, 2008

Félagi minn er stressaður í dag.  Þekki einn gaur frá Selfossi.  Hann slapp á einhvern ótrúlegan hátt við FMbyltinguna sem varð þarna á sínum tíma.  Hann er ekki með tribal-tattú, gengur allavega sjaldan í hvítum hlírabol og hefur aldrei, mér vitanlega aflitað á sér hárið.  Þetta er hann E-man, stundum kallaður Eizenegger á góðum degi. 

Ástæðan fyrir því að ég sendi honum kveðjur í dag er að lokaumferðin í 1.deildinni á Íslandi verður leikin í dag.  Á einhvern hátt sem engum hefur tekist að skilja, mjólkurþambararnir frá Selfossi verið að leika eins og englar í sumar og skorað eins og vændiskonur á móti mótherjum sínum.  Hinsvegar misstigu þeir sig um daginn þannig að horfurnar eru minni á að þeir komist upp í úrvalsdeildina. 

Í dag leikur Selfoss við útlendingana frá Vestmannaeyjum, sem þegar eru komnir upp.  Keizarinn gæti skrifað heila bók um skoðanir sínar á Vestmannaeyjum en látum það liggja á milli hluta.  Staðan er einföld.  Selfoss þarf að vinna sinn leik gegn litlu eyjunni og Stjarnan verður að tapa stigi á móti Haukum.  Auðvitað getur allt gerst í fótboltanum, og undanfarið hafa meiraaðsegja smálið eins og Fjölnir og HK komist upp í úrvalsdeildina svo allt getur gerst.  

Sendi allavega Scooter kveðjur á Selfoss með þessu lagi sem ég veit ALLIR Selfyssingar myndu fíla……..


Prodigy- lag dagsins………

September 12, 2008

Jesus Lizard

August 23, 2008

Ég hef verið í einhverri nostalgíu undanfarið og farinn að hlusta á rokkið sem ég var að hlusta á fyrir alltof mörgum árum.  Þetta er brilljant lag, gefið út á 2ja laga plötu ásamt Nirvanalagi sem fáir þekkja.  Þetta lag er hardcore, og þarf helst að hlusta á með allt í botni.

Spilaði þetta fyrir E-man um daginn í bílnum og honum fannst þetta schnillld, held ég.


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.