Smá öppdeit

November 7, 2009

Keizarinn er þreyttur eftir vinnuvikuna.  Loksins er maður kominn aftur á sína heimadeild eftir langa útiveru og munurinn er sá að nú þarf maður að vinna aftur í vinnunni.  Tekur smávegis tíma að aðlagast þessu.

En nú er laugardagur.  Þá er frí og svo er smávegis bolti.   Þýski boltinn og svo er úrslitaleikurinn í sænska bikarnum í dag, þegar stórlið AIK mætir IFK.  Ég er búinn að ákveða það formlega, svona eins og hinn fullkomni tækifærissinni að ef AIK vinnur þennan leik í dag þá fari ég að halda með þeim.  Ég meina, kommon, Djurgården er næstum því að falla úr Allsvenskan !! 

Ég hef áhyggjur af Bayern.  Síðan hvenær urðu Leverkusen svona góðir ?  Hvað er að Ribery ?  Hvar er leiðtoginn ?   Af hverju eru þeir ekki með betri markmann?  

Eins og í sönnum krísum þá er Karl-Heinz Rummenigge farinn í byrgið sitt, þar sem hann lokar sig inni á erfiðum tímum og stjórnar þaðan umhverfi sínu.  Sem betur fer er ég einn af þeim sem er í innsta hring.  Það þýðir að ég er með svona Führerblitz-símtól sem gefur mér beint samband við rauða símann hans.  Bayern tekur á móti Schalke 04 í dag sem er gífurlega mikilvægur leikur. 

Eftir leikinn ætla ég að hringja í Rummenigge og læt ykkur svo vita hvernig gengur.


Hollendingarnir- “vinir okkar”……….

October 31, 2009

Vildi deila þessu með lesendum mínum.  Ég sé að operation Holland er á áætlun………lesið bara  þetta !!!

 


ICA auglýsing 3

October 30, 2009

Hérna kemur auglýsing númer 3 og þessi auglýsing er personal favorite hjá Keizaranum.  Sjáiði hvernig Ulf er leiddur í gildru af Downsaranum og ICA-Stig er náttúrulega brjálaður yfir þessu. 

Sjáiði svo hversu snilldarlega þeir auglýsa vörurnar á meðan sagan gengur………


ICA auglýsing 2

October 30, 2009

Áfram heldur Keizarinn að reka áróður fyrir ICA, og Keizarinn er sko alltaf tilbúinn að reka áróður fyrir þessa frábæru búð sem meiraaðsegja Besserwisserinn hefur komið í.  Hérna er Ulf að kenna lærlingnum lífsreglurnar…………..


Downsaraauglýsing 1

October 29, 2009

Jæja, ég hef áður talað um auglýsinguna með Downsaranum hér í Svíþjóð.  Þetta var reyndar rugl í mér, þetta eru auglýsingar frá ICA maxi sem er náttúrulega besta búð í heimi.  Þar er hægt að kaupa allt nema kannski eiturlyf, utanlandsferðir og fólk.  Þeir eru með snilldar auglýsingar í gangi núna sem gengur útá Downsara sem er farinn að vinna hjá þeim.  Takið eftir hve frábærlega þeir spila inná þetta, maður bara skiptir út orðinu þroskaheftur og lærlingur……………..


Bayern – Eintracht Frankfurt

October 24, 2009

Jæja, það er leikur í dag.  Bayern Munchen tekur á móti Eintracht Frankfurt á Allianz.  Bayern hefur óneitanlega átt í pínulitlum erfiðleikum undanfarið, því er ekki hægt að neita.  Vandræði með meiðsli hafa gert það að verkum að kreativitetið hefur minnkað í liðinu. 

Ribery er víst með jumpers-knee sem eru slæmar fréttir.  Eftir að ég frétti það þá reikna ég ekki með honum alveg á næstunni.  Robben er hinsvegar á mörkunum að verða fitt, Demichelis er að verða ready og svo er Luca Toni að verða tilbúinn. 

Andstæðingar dagsins, Eintracht Frankfurt eru sýnd veiði en ekki gefin.  Þeir hafa byrjað nokkuð vel og lúra í níunda sæti.   Þeir hafa afar klókan þjálfara, Michael Skibbe sem er mjög reyndur þrátt fyrir aldur.  Honum hefur tekist að sjóða saman frekar gott og stabílt lið án þess að vera með neina stjörnur í liðinu.  Þeirra aðalmaður hefur verið grikkinn Amantidis sem hefur leikið vel á tímabilinu. 

Eins og flest önnur lið í Bundesligunni þá leikur Frankfurt sóknarbolta en búast má við að þeir reyni að “leggja rútunni” fyrir framan markið sitt í dag á Allianz.  

Eftir tapið slæma á móti Bourdeaux hefur Rummenigge kallað eftir því að leikmenn sýni viðbrögð á vellinum og leggi Frankfurt að velli.  Nú er tími fyrir leikmennina að stíga upp og sýna karakter.  Engin ástæða er þó til að panikka, nóg er eftir………


Downsarar…..

October 14, 2009


O, Downsarar eru svooo fyndnir. Koma mér alltaf í gott skap. Reyndar er langt síðan ég sá góðan Downsara.
En svo var ég að horfa á sjónvarpið í kvöld og hver segir svo að Svíar séu leiðinlegir og þori engu. Það voru nefnilega auglýsingar og svo kom auglýsing um einhvern lífeyrissjóð. Þar er Downsari í jakkafötum, alveg glerfínn og eftir langa þögn þá segir hann: Hvað, hafiði aldrei séð fatlaðan mann ? Ég gef sko Svíunum kredit fyrir þetta og enn meiri kredit fyrir að lífga upp á kvöld Keizarans.

Ákvað svo í tilefni af þessu að sýna ykkur einn af uppáhaldsþáttunum mínum á youtube. Þessi er klassíker……..

ps ef fólk ætlar að móðgast yfir þessarri færslu og hve ónærgætinn Keizarinn er, þá er það bara þannig að það er alveg kolrangt. Keizarinn gætir jafnaðar og lítur alveg jafn mikið niður á allt fólk. Það væri sko fyrst hræsni að ekki gera grín að vissum hópum. Þá fyrst væri maður sko að segja að þeir væru ekki eins og við.


Danmörk-Svíþjóð, pælingar

October 11, 2009

Já, það voru góðar fréttir og vondar fréttir í gær. 

Góðu fréttirnar voru þær að Þýskaland sigraði Rússland í Moskvu í úrslitaleik síns riðils.  Þegar maður hugsar betur um þetta þá voru þetta í raun engar fréttir, heldur meira eðlileg framvinda.  Þannig er Þýskaland komið á HM, hvar sem það verður.  Það var reyndar í fréttum um daginn að þeir eru löngu búnir að panta sér hótel í S-Afríku.  Það er kúl. 

Hinsvegar voru leiðinlegu fréttirnar að Danir unnu Svía í gær.  Þessu var tekið illa á mínu heimili og m.a. tók yngsti meðlimurinn upp á því að grenja sér nánast til óbóta frameftir öllu kvöldi, svo þungt féll þetta á hann.   Sænska pressan logar í dag og mönnum er ekki skemmt.   Danir eru sko síður en svo með eitthvað heimsklassalið en þeir eru búnir að vera betri, heilt yfir, í riðlinum í þetta sinn.  Svíarnir hafa einfaldlega ekki verið nóg sterkir í riðlinum.  Þeir hafa hægt og sígandi verið að gefa eftir og það er ljóst að nú verður endurnýjun í leikmannahópnum og hvað varðar þjálfara.  Lagerbäck hættir alveg örugglega og svo má reikna með að landslagið breytist aðeins hvað varðar liðsskipan. 

Stundum verður víst að leyfa litlu þjóðunum eins og Danmörku að komast í úrslitakeppni, þeir hafa ekki komist í úrslitakeppni í síðustu 12-14ár, þó að þeir láti alltaf eins og þeir séu heimsmeistarar í fótbolta.  Gleymum ekki að EM sigurinn sem þeir eru enn að monnta sig af, var fyrir næstum því 18árum…..    

Og bæþevei, línuvörðurinn átti stórleik í gær.  Maðurinn er með svo góða sjón að það ætti að finnast einhver betri nýting á svona snilling.  Að sjá af 80m færi , með markstangir í sjónlínunni, að Zlatan missti boltann útaf áður en hann lagði upp mark Svíanna, það er snilld.  Því að auðvitað sá hann þetta alveg.  Maður tekur ekki svona ákvörðun nema að vera alveg viss, er það ekki ?   Honum verður allavega ekki boðið í 5ára afmæli dóttur minnar…….


Hvað eru Haukarnir að spá?

October 9, 2009

Keizarinn ásamt öðrum eru furðu lostnir á sjálfsmorðsáætlun knattspyrnuliðs Hauka næsta sumar.  Þeir ætla að leika hluta heimaleikjanna á knatspyrnuvelli vals, sem Reykjarvíkurborg er búin að gefa (kaupa af) val held ég einu sinni eða tvisvar til að bæta fjárhagsstöðu þeirra. 

Hvað eru menn að spá ?   Keizarinn veit reyndar að þetta hefur eflaust ekki verið auðveld ákvörðun.  Aðstæður á Ásvöllum eru ekki beisnar, allavega ekki þegar stórlið eins og KR kemur í heimsókn.  Hinsvegar vita allir að það eru nú þegar nokkrir skítavellir í Úrvalsdeildinni.  Til dæmis grasbrekkan á Fylkisvellinum, Fjölnisvöllur og meiraaðsegja Keflavíkurvöllurinn er í raun og veru með risavöxnum tröppum fyrir stúku. 

Með ákvörðun sinni, að leika á heimavelli annars liðs í deildinni finnst mér eins og Haukarnir séu að gefa í skyn að þeir séu litli bróðir og eigi varla heima í deildinni.  Það var annað þegar t.d. Þróttararnir voru að leika á Laugardalsvellinum þar sem það er official völlur, þó að Frammararnir leiki þar líka.  Mér finnst eins og Haukarnir ætli að taka stóru leikina á Valsvellinum til að fá betri aðsókn á kostnað árangurs, svona eins og þeir geri ráð fyrir að “taka Þrótt á þetta” og falla beint niður.  Svo var viðtal við þjálfara Hauka eftir þetta þar sem hann sagði að það væri leiðinlegt að leika á gervigrasi og þeir ætluðuð að reyna að “gera sitt besta ” og “taka vonandi einhver stig”. 

Allir vita auðvitað að Fh-ingar eru fífl.  Ég veit meiraaðsegja að þeir hópuðust inná síðu haukanna um daginn þegar þeir voru með skoðanakönnun um hvort menn ættu að fá að leika á Kaplakrika eða ekki.  Fh-ingarnir voru allir að kjósa ekki Kaplakrika.  Ég veit að KR-ingar fengu pata af þessu og fóru að kjósa á móti, bara til að hjálpa Haukunum.  Þvílík fífl. 

En hvað á að gera ?   Hafnarfjarðarbær ætti að koma að þessu máli og reyna að hjálpa til.  Það hefur alltaf verið gert, t.d. í Grindavík.  Nú eru reyndar sjóðir Hafnarfjarðarbæjar tómari en veski fulls sjóara á strippklúbbi kl4 að nóttu þannig að lítið er kannski hægt að gera.  En hvernig er það, ráða Fh-ingar þessu algerlega hvað varðar Kaplakrika?   Þeir eiga varla völlinn alveg sjálfir, Hafnarfjarðarbær hlýtur að hafa eitthvað um málið að segja. 

En allavega.  Kaplakriki er einhver mesti skítavöllur sem Keizarinn hefur komið á og meiraaðsegja búningsklefarnir eru ljótir.  Þar er líka vont kaffi.  Haukarnir hefðu samt átt að leika alla leikina á Ásvöllum og segja bara restinni af deildinni að éta skít.  Það hefði verið attitúd. 

Þetta finnst allavega Keizaranum.  Og það sem Keizurum finnst gott, það finnst fólkinu gott!!


Gott á Obama!!

October 7, 2009

Hérna sést Jaques Rogge, formaður alþjóða Ólympíunefndarinnar halda á miða sem á stendur að Ríó hafi verið valin til að halda Ólympíuleikana 2016.  Rogge er reyndar bæklunarskurðlæknir, og bæklunarskurðlæknar láta ekki súkkulaðistráka eins og Obama hafa áhrif á sig.

Chicago, af öllum borgum sótti nefnilega um að halda Olympíuleikana 2016.  Hverjum datt það eiginlega í hug ?   Chicago er alger skítaborg.    En Obama er m.a. þaðan, eða allavega bjó þar lengi og var senator fyrir þetta fylki sem Chicago tilheyrir.   Obama er orðinn svo mikil rokkstjarna að hann er farinn að trúa því sjálfur að hann sé æðislegur.  Hann rauk til Kaupmannahafnar til að sýna stuðning við umsókn Chicago.  Jú, auðvitað, frábær hugmynd í miðri kreppunni að halda Ólympíuleika.  

Fyrir Obama var þetta auðvitað ekkert annað en athyglissýki og ekkert annað.  Það er gaman að ferðast og láta dást að sér og miklu skemmtilegra en að ræða einhver leiðindamál eins og efnahagskreppur eða tryllta Írani sem eru að smíða sér kjarnorkuvopn.  Svo er hundleiðinlegt á þinginu.  Hann heldur æðislegar ræður en það er fullt að leiðinlegu fólki sem er á móti málefnum hans á þinginu.  Hlustar það fólk virkilega ekki á æðislegu ræðurnar ?   Veit það ekki að þetta er Obama? 

 Hann fór meira að segja með beygluna sína með sér.  Og þvílík öryggisgæsla. Meiraaðsegja einhver kafarasveit danska hersins var látin gæta sjávarins utanvið hótelið.  Skv fréttum var þetta “harðskeyttasta sveit”  danska hersins.  Keizarinn gefur nú lítið fyrir það.  Harðskeyttur Dani er kannski gaur sem neitar sér um vínarbrauð í eftirmiðdagskaffinu og drekkur SVART kaffi, ekki með mjólk útí.  Harðskeyttur hvað ? 

Fyrir utan það, dettur fólki virkilega í hug að einhver Dani myndi nenna að reyna að drepa Obama.  Standa upp úr huggulega sófanum á kaffihúsinu, leggja frá sér fallega, smurða brauðið og bjórglasið.   Einhver ?   

Nei.  Obama er farinn að læra það að þú getur verið flottur í skólanum, mesta íþróttastjarnan og allir vilja vera vinir þínir.  En svo skiptir þú um skóla og ferð að spila með stóru köllunum.  Þá þýðir ekki bara að vera Obama og biðja um fleiri skrifaðar ræður.  Maður verður að hafa eitthvað meira.  

En hann mun alveg örugglega skrifa góða bók um þetta með hugleiðingum sínum um lífið og tilveruna og jafnvel krydda það með einhverri hugljúfri sögu frá æsku hans.  Gott ef hann fer ekki bara að tala um ömmu sína…..