Essasú????

October 20, 2009

Lesendur síðunnar vita að það eru tveir fótboltamenn sem eru í miklu uppáhaldi hjá Keizaranum vegna þess að það er endalaust hægt að skrifa pistla um þá.  Annar er Ronaldo en hinn er hlunkurinn. 

Rakst á þessa mynd um daginn.   Pissaði næstum því á mig af hlátri….


Leikur dagsins

October 17, 2009

Jæja, nú fer fótboltinn aftur að rúlla í dag. Bayern fer í heimsókn til nýliða Freiburg. Freiburg er búið að vera með hópinn í fríi í 14daga þar sem þeir eru ekki með neina landsliðsmenn en þetta er leikur sem verður að vinnast. Bayern Munchen hefur aðeins verið að gefa eftir aftur og eru nú 8stigum eftir efstu liðunum, Hamburg og Leverkusen.

Síðustu 3leikir hafa ekki verið okkur hagstæðir og svo er alltaf erfitt að fara í útileiki til svona lítilla liða þar sem þau líta á það sem hálfgerðan bikarúrslitaleik að leika við stórlið eins og Bayern. Munum að við töpuðum fyrir smáliðinu FC Mainz.

Þrátt fyrir fréttir á fimmtudaginn að Arjen Robben sé orðinn fit, þá getur Keizarinn staðfest að það var ákveðið í gær að hann yrði ekki með en þetta vita bara mikilvægir menn eins og Keizarinn. Óljóst er hvort Martin Demichelis verði með, enda þreyttur eftir landsleikjatörnina með Argentínu. Franck Ribery verður heldur ekki með, hnéð maður. Keizarinn verður nú bráðum að fara að kíkja á hnéð á honum persónulega, þetta gengur ekki svona mikið lengur.

Hinsvegar snúa 2jálkar aftur, fyrirliðinn Mark van Bommel og Luca Toni eru orðnir fitt.  

EN Keizarinn er bjartsýnn fyrir þennan leik.  Þegar ég hef haft svona “preview” fyrir leiki hér á síðunni þá hafa þeir unnist.  Vonum bara að þetta haldi áfram.


Downsarar…..

October 14, 2009


O, Downsarar eru svooo fyndnir. Koma mér alltaf í gott skap. Reyndar er langt síðan ég sá góðan Downsara.
En svo var ég að horfa á sjónvarpið í kvöld og hver segir svo að Svíar séu leiðinlegir og þori engu. Það voru nefnilega auglýsingar og svo kom auglýsing um einhvern lífeyrissjóð. Þar er Downsari í jakkafötum, alveg glerfínn og eftir langa þögn þá segir hann: Hvað, hafiði aldrei séð fatlaðan mann ? Ég gef sko Svíunum kredit fyrir þetta og enn meiri kredit fyrir að lífga upp á kvöld Keizarans.

Ákvað svo í tilefni af þessu að sýna ykkur einn af uppáhaldsþáttunum mínum á youtube. Þessi er klassíker……..

ps ef fólk ætlar að móðgast yfir þessarri færslu og hve ónærgætinn Keizarinn er, þá er það bara þannig að það er alveg kolrangt. Keizarinn gætir jafnaðar og lítur alveg jafn mikið niður á allt fólk. Það væri sko fyrst hræsni að ekki gera grín að vissum hópum. Þá fyrst væri maður sko að segja að þeir væru ekki eins og við.


Draumráðning óskast

October 12, 2009

Keizarann óskar hjálpar við draumráðningu á draumi sem hann dreymdi í nótt.  Venjulega dreymir Keizarann hetjudrauma, svona eins og í kvikmyndahandriti en þessi draumur var aðeins öðruvísi.  Í raun var þetta svo ævintýraruglaður draumur að það hálfa væri nóg. 

Vegna þess hve frábrugðinn þessi draumur er öðrum draumum Keizarans hlýtur þetta að þýða eitthvað.  Nú óskar Keizarinn á uppástungum hvaða nýju sigra Keizarans hann hefur dreymt fyrir….

Hérna kemur svo draumurinn:
Keizarinn er staddur í miðbæ Reykjavíkur að kvöldi til. Það er fullt af fólki niðri í bæ og það er greinilega föstudags/laugardagskvöld og allir eru að djamma. Keizarinn er með einhverjum vinum sínum en man ekki hverjum. Svo berst í tal að fara að fá sér hamborgara. Þá segir einhver mér af hamborgarastað sem eigi að vera besti hamborgarastaður bæjarins og eingöngu opinn á næturna.
Við höldum þangað. Til að komast þangað klífum við upp stórt hús og förum svo inn um glugga á risinu. Þá erum við komnir í risíbúð sem er heldur skuggaleg. Þar eru engin borð en hinsvegar fullt af pullum.

Allt er skreytt í KR-litunum og allir sem þarna eru, voru í KR-búningum.
Svo förum við að vilja fá hamborgarana okkar. Þá er okkur sagt af Hemma Gunn, sem þarna var að þjóna til borðs, að gaurinn sem steikti hamborgarana væri í smávegis pásu en hann kæmi rétt strax.
Svo kemur hamborgarakallinn og fer að steikja hamborgarana. Og hver haldiði að það hafi verið ? Jú, Ólafur Ragnar Grímsson mætir og byrjar að steikja börgerana. Svo kemur hamborgarinn á disk en engar franskar. Ég spyr hvar frönsku kartöflurnar séu en þá segir Ólafur -
“Í útlöndum borðar enginn franskar kartöflur með hamborgurum”.
Svo endar draumurinn og ég man ekki hvernig hamborgarinn var á bragðið………

Jæja, hvað finnst ykkur. Þýðir þetta eitthvað eða þarf Keizarinn að fara í segulómun????


Danmörk-Svíþjóð, pælingar

October 11, 2009

Já, það voru góðar fréttir og vondar fréttir í gær. 

Góðu fréttirnar voru þær að Þýskaland sigraði Rússland í Moskvu í úrslitaleik síns riðils.  Þegar maður hugsar betur um þetta þá voru þetta í raun engar fréttir, heldur meira eðlileg framvinda.  Þannig er Þýskaland komið á HM, hvar sem það verður.  Það var reyndar í fréttum um daginn að þeir eru löngu búnir að panta sér hótel í S-Afríku.  Það er kúl. 

Hinsvegar voru leiðinlegu fréttirnar að Danir unnu Svía í gær.  Þessu var tekið illa á mínu heimili og m.a. tók yngsti meðlimurinn upp á því að grenja sér nánast til óbóta frameftir öllu kvöldi, svo þungt féll þetta á hann.   Sænska pressan logar í dag og mönnum er ekki skemmt.   Danir eru sko síður en svo með eitthvað heimsklassalið en þeir eru búnir að vera betri, heilt yfir, í riðlinum í þetta sinn.  Svíarnir hafa einfaldlega ekki verið nóg sterkir í riðlinum.  Þeir hafa hægt og sígandi verið að gefa eftir og það er ljóst að nú verður endurnýjun í leikmannahópnum og hvað varðar þjálfara.  Lagerbäck hættir alveg örugglega og svo má reikna með að landslagið breytist aðeins hvað varðar liðsskipan. 

Stundum verður víst að leyfa litlu þjóðunum eins og Danmörku að komast í úrslitakeppni, þeir hafa ekki komist í úrslitakeppni í síðustu 12-14ár, þó að þeir láti alltaf eins og þeir séu heimsmeistarar í fótbolta.  Gleymum ekki að EM sigurinn sem þeir eru enn að monnta sig af, var fyrir næstum því 18árum…..    

Og bæþevei, línuvörðurinn átti stórleik í gær.  Maðurinn er með svo góða sjón að það ætti að finnast einhver betri nýting á svona snilling.  Að sjá af 80m færi , með markstangir í sjónlínunni, að Zlatan missti boltann útaf áður en hann lagði upp mark Svíanna, það er snilld.  Því að auðvitað sá hann þetta alveg.  Maður tekur ekki svona ákvörðun nema að vera alveg viss, er það ekki ?   Honum verður allavega ekki boðið í 5ára afmæli dóttur minnar…….


Það er Danmörk-Svíþjóð í kvöld……

October 10, 2009

Jæja, það er spennandi landsleikur í kvöld.  Nefnilega Danmörk – Svíþjóð á Parken.  Mikið undir þar sem riðillinn fer að klárast.  Danirnir hafa verið sannfærandi undanfarið og eru efstir í riðlinum.  Margir hafa meiraaðsegja velt því fyrir sér hvort þeir ætli loksins að drullast í úrslitakeppni HM eftir margra ára hlé.  Hinsvegar hafa þeir aðeins verið að gefa eftir í síðustu leikjum þannig að þetta er orðið aðeins spennandi aftur. 

Það sem kryddar leikinn er auðvitað hinn legendaríski leikur fyrir 2árum á Parken.  Þá var staðan 3-3, kemur horn og Poulsen slær leikmann Svíanna og Svíar fá víti þegar 1mín er eftir.  Þá kom bulla inn á völlinn og reyndi að slá til dómarans.  Leikurinn var flautaður af, Svíar unnu 3-0 og komust áfram í úrslitakeppni EM en Danir ekki. Danir þóttust nú ferlega svekktir en allir vita að Zlatan hefði náttúrulega skorað úr vítinu og Svíarnir unnið hvort eð er.

Nú eru Danir við öllu viðbúnir.  Þeir eru búnir að reisa svona öryggisnet kringum völlinn svo enginn komist yfir.  Svíarnir hafa nú haft góðan húmor fyrir þessu og það var frétt um daginn í Aftonbladet með mynd af Svíum í dönskum hummel-treyjum sem yrðu á leiknum, viðbúnir að hlaupa inná ef leikurinn væri að fara illa. 

Danirnir mættu hinsvegar taka öryggismálin til sín þar sem bjórdósunum rigndi yfir varamannaskýli Svíanna í fræga leiknum fyrir 2árum.

Hinsvegar reikna ég að sjálfsögðu með öruggum sigri minna manna.  Danirnir hafa einfaldlega ekki hörku í svona leiki…..

ps Þess má geta að fyrir þá sem verða nappaðir í netinu eru 10þús krónur danskar í sekt og þú mátt ekki borða vínarbrauð í 2ár……..


Hvað eru Haukarnir að spá?

October 9, 2009

Keizarinn ásamt öðrum eru furðu lostnir á sjálfsmorðsáætlun knattspyrnuliðs Hauka næsta sumar.  Þeir ætla að leika hluta heimaleikjanna á knatspyrnuvelli vals, sem Reykjarvíkurborg er búin að gefa (kaupa af) val held ég einu sinni eða tvisvar til að bæta fjárhagsstöðu þeirra. 

Hvað eru menn að spá ?   Keizarinn veit reyndar að þetta hefur eflaust ekki verið auðveld ákvörðun.  Aðstæður á Ásvöllum eru ekki beisnar, allavega ekki þegar stórlið eins og KR kemur í heimsókn.  Hinsvegar vita allir að það eru nú þegar nokkrir skítavellir í Úrvalsdeildinni.  Til dæmis grasbrekkan á Fylkisvellinum, Fjölnisvöllur og meiraaðsegja Keflavíkurvöllurinn er í raun og veru með risavöxnum tröppum fyrir stúku. 

Með ákvörðun sinni, að leika á heimavelli annars liðs í deildinni finnst mér eins og Haukarnir séu að gefa í skyn að þeir séu litli bróðir og eigi varla heima í deildinni.  Það var annað þegar t.d. Þróttararnir voru að leika á Laugardalsvellinum þar sem það er official völlur, þó að Frammararnir leiki þar líka.  Mér finnst eins og Haukarnir ætli að taka stóru leikina á Valsvellinum til að fá betri aðsókn á kostnað árangurs, svona eins og þeir geri ráð fyrir að “taka Þrótt á þetta” og falla beint niður.  Svo var viðtal við þjálfara Hauka eftir þetta þar sem hann sagði að það væri leiðinlegt að leika á gervigrasi og þeir ætluðuð að reyna að “gera sitt besta ” og “taka vonandi einhver stig”. 

Allir vita auðvitað að Fh-ingar eru fífl.  Ég veit meiraaðsegja að þeir hópuðust inná síðu haukanna um daginn þegar þeir voru með skoðanakönnun um hvort menn ættu að fá að leika á Kaplakrika eða ekki.  Fh-ingarnir voru allir að kjósa ekki Kaplakrika.  Ég veit að KR-ingar fengu pata af þessu og fóru að kjósa á móti, bara til að hjálpa Haukunum.  Þvílík fífl. 

En hvað á að gera ?   Hafnarfjarðarbær ætti að koma að þessu máli og reyna að hjálpa til.  Það hefur alltaf verið gert, t.d. í Grindavík.  Nú eru reyndar sjóðir Hafnarfjarðarbæjar tómari en veski fulls sjóara á strippklúbbi kl4 að nóttu þannig að lítið er kannski hægt að gera.  En hvernig er það, ráða Fh-ingar þessu algerlega hvað varðar Kaplakrika?   Þeir eiga varla völlinn alveg sjálfir, Hafnarfjarðarbær hlýtur að hafa eitthvað um málið að segja. 

En allavega.  Kaplakriki er einhver mesti skítavöllur sem Keizarinn hefur komið á og meiraaðsegja búningsklefarnir eru ljótir.  Þar er líka vont kaffi.  Haukarnir hefðu samt átt að leika alla leikina á Ásvöllum og segja bara restinni af deildinni að éta skít.  Það hefði verið attitúd. 

Þetta finnst allavega Keizaranum.  Og það sem Keizurum finnst gott, það finnst fólkinu gott!!


Slumdog millionaire

October 8, 2009

Vá hvað ég horfði á ömurlega mynd í gær.  Konan bað mig um daginn um að kaupa Slumdog millionaire.  Margverðlaunuð óskarsmynd.   Keizarinn hugsaði að svona margverðlaunaðar óskarsmyndir væru kannski kvöldstundarinnar virði, allavega hlaut “Dances with Wolves” marga óskara.

En það var sko enginn Kevin Costner í þessarri mynd.  Í staðinn fyrir hann voru bara skítugir krakkar að flækjast um og urðu enn skítugri fyrir vikið.  Stundum voru þau barin, sem er leiðinlegt og svo urðu þau enn skítugri þegar þau voru að velta sér uppúr drullu. 

Ég hætti að horfa eftir miðja mynd.  Konan fullyrðir hinsvegar að hún hafi horft á endirinn og þetta sé afar góð mynd. 

Nei.  Þetta er ömurleg mynd.  Ef mig langar að sjá skítuga krakka þá get ég bara farið út á rólóvöll og horft á krakka borða sand.  Ef ég verð heppinn þá dettur kannski einhver krakkinn í rólunni.  Það er stundum fyndið, allavega þegar það eru annarra manna börn.  EN óskar, minn keizaralegi rass, það átti þessi mynd ekki skilið.  Allavega ekki á óskarshátið Keizarans. 

Ég gef þessarri mynd hálft typpi, aðallega fyrir frekar svala tónlist ( ég vissi ekki að indverskt rapp væri svona kúl, það er svona næstum því eins kúl og þýskt rapp……..)


Gott á Obama!!

October 7, 2009

Hérna sést Jaques Rogge, formaður alþjóða Ólympíunefndarinnar halda á miða sem á stendur að Ríó hafi verið valin til að halda Ólympíuleikana 2016.  Rogge er reyndar bæklunarskurðlæknir, og bæklunarskurðlæknar láta ekki súkkulaðistráka eins og Obama hafa áhrif á sig.

Chicago, af öllum borgum sótti nefnilega um að halda Olympíuleikana 2016.  Hverjum datt það eiginlega í hug ?   Chicago er alger skítaborg.    En Obama er m.a. þaðan, eða allavega bjó þar lengi og var senator fyrir þetta fylki sem Chicago tilheyrir.   Obama er orðinn svo mikil rokkstjarna að hann er farinn að trúa því sjálfur að hann sé æðislegur.  Hann rauk til Kaupmannahafnar til að sýna stuðning við umsókn Chicago.  Jú, auðvitað, frábær hugmynd í miðri kreppunni að halda Ólympíuleika.  

Fyrir Obama var þetta auðvitað ekkert annað en athyglissýki og ekkert annað.  Það er gaman að ferðast og láta dást að sér og miklu skemmtilegra en að ræða einhver leiðindamál eins og efnahagskreppur eða tryllta Írani sem eru að smíða sér kjarnorkuvopn.  Svo er hundleiðinlegt á þinginu.  Hann heldur æðislegar ræður en það er fullt að leiðinlegu fólki sem er á móti málefnum hans á þinginu.  Hlustar það fólk virkilega ekki á æðislegu ræðurnar ?   Veit það ekki að þetta er Obama? 

 Hann fór meira að segja með beygluna sína með sér.  Og þvílík öryggisgæsla. Meiraaðsegja einhver kafarasveit danska hersins var látin gæta sjávarins utanvið hótelið.  Skv fréttum var þetta “harðskeyttasta sveit”  danska hersins.  Keizarinn gefur nú lítið fyrir það.  Harðskeyttur Dani er kannski gaur sem neitar sér um vínarbrauð í eftirmiðdagskaffinu og drekkur SVART kaffi, ekki með mjólk útí.  Harðskeyttur hvað ? 

Fyrir utan það, dettur fólki virkilega í hug að einhver Dani myndi nenna að reyna að drepa Obama.  Standa upp úr huggulega sófanum á kaffihúsinu, leggja frá sér fallega, smurða brauðið og bjórglasið.   Einhver ?   

Nei.  Obama er farinn að læra það að þú getur verið flottur í skólanum, mesta íþróttastjarnan og allir vilja vera vinir þínir.  En svo skiptir þú um skóla og ferð að spila með stóru köllunum.  Þá þýðir ekki bara að vera Obama og biðja um fleiri skrifaðar ræður.  Maður verður að hafa eitthvað meira.  

En hann mun alveg örugglega skrifa góða bók um þetta með hugleiðingum sínum um lífið og tilveruna og jafnvel krydda það með einhverri hugljúfri sögu frá æsku hans.  Gott ef hann fer ekki bara að tala um ömmu sína…..


Hvað varð um Þossa ?

October 6, 2009

Skrýtið hvernig hugsunin stundum virkar.  Í dag var ég að ryksuga og þá fór ég alltíeinu að hugsa um hvað varð um hann Þossa á X-inu, manninn með fullkomnu útvarpsröddina. Svalasta útvarpsrödd samtímans en um leið þá passaði ekki röddin við þennan nördalega, rauðhærða mann.  Dæmigerður útvarpsmaður þar sem útvarp er fyrir ljóta fólkið.

 Hvað varð um hann ?  Hvernig hefur kreppan leikið hann ?  Hvað er hann eiginlega að gera núna ? 

Það yrði gaman að einhver lesandinn gæti upplýst mig um þetta.